Ferðir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Ferðir - 01.03.1940, Qupperneq 3

Ferðir - 01.03.1940, Qupperneq 3
F E R Ð I R BLAÐ FERÐAFÉLAGS AKUREYRAR 1. tbl. Marz, 1940. 1. árg. Avarp. Góðir Félagar í F. F. A. Þið fáið nú heim til yðar svolítið blað. Stjórn félagsins hefir löngum þótt leitt að geta ekki náð til yðar, en mis- jafnlega gengið með fundahöld, og vill því ræða við yður á þenna hátt, því nauðsynlegt er starfsemi félagsins, að allir meðlimir meðlimir þess geti fylgst með henni. Nú gafst okkur tækifæri að senda þessa kveðju um leið og ferðaáætlun sumarsins er send út. Væntum við þess að nýbreytni þessari verði vel tekið, enda þótt við ekki get- um látið blaðið hafa svo mikinn fróðleik að færa, sem æskiiegt hefði verið. Ekkert er ákveðið um það, hversu oft blaðið kemur út, það er háð fjárhag félagsins, en okk- ur langar til að það gæti orðið einu sinni til tvisvar á ári. Þetta fyrsta blað er sýnishorn þess hvert efnið verður, þ. e. fréttir frá félaginu, umræður um viðfangsefni félags- ins, og þegar unt er, stuttar leiðarlýsingar. Annars er að- altilgangur blaðsins að vera tengiliður milli félaganna, og minna þá á það og störf þess. Félagatalan er nú 300, en hún þarf enn að aukast, svo að því vaxi starísmegin. Á næsta ári verður það 5 ára. Ef allir félagsmenn legðu sig fram væri þeim kleift að auka félagatöluna um 100 á þessu ári, og væri til fallið að færa félaginu þá afmælis- gjöf. Stjórn Ferðafélags Akureyrar.

x

Ferðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.