Ferðir


Ferðir - 01.03.1940, Page 13

Ferðir - 01.03.1940, Page 13
Ferðir] 11. blaðsíða FJALLASKÁLAR. (Framhald af bls. 6). þótt um stutta ferð sé að ræða, og einkum er þó létt und- ir með göngumönnum. Þá eykst öryggi ferðamannsins eigi lítið, er hann að kveldi á það víst að koma að húsi með hitunartækjum, þar sem hann getur þurrkað vos- klæði og hefur hvílurúm að liggja í. Honum er því ekki háski búinn, þótt skyndilega breytist veðurlag, svo ferð hans teppist í bili. En það.veit gerst sá, er reynir, hve notalegt er að liggja í þröngu tjaldi í illviðri fjarri mannabyggðum. Ein aðalhvötin til þess að Ferðafélag Akureyrar var stofnað var sú, að vinna að því, að sæluhús yrðu reist á öræfunum hér nyrðra og leiðir opnaðar þangað. Því að enn þurfi um 1200 vinnustundir til að koma veginum upp á fjallsbrún. Ferðirnar sjö í Hafrárdal, eru allar að nokkru ætlaðar til þessarar vegagerðar. Þó verða þær vafalaust skemmti- ferðir. Það er ætíð skemmtilegt að ferðast um hinn fagra Eyjafjörð. Þá mun ílestum þykja ennþá skemmtilegra að sjá yfir þessa blómlegu sveit, af Hafráröxl eða Tungnahnjúk. Það er líka hugsjónablær yfir því starfi, að ryðja braut- ir frá höfuðstað Norðurlands, upp á fjöll og suður til jökla. Það væri gaman að komast í sumar með veginn á Vatnahjalla. 1941 að Laugarfelli og 1942 á Sprengisand. Má þá vænta þess að þar mættum við Sunnlendingum, og þar með væri fenginn vegur yfir fjöllin. Um leið og við skemmtum okkur, er ánægjulegt að geta greitt fyrir skemmtiferðum sem síðar verða farnar. Skemmtiferðastarfsemin byggist á þátttöku og hegðun félaganna í ferðunum. Við væntum vaxandi þátttöku og áframhaldandi ánægju í ferðum félagsins,

x

Ferðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.