Morgunblaðið - 25.11.2006, Síða 76

Morgunblaðið - 25.11.2006, Síða 76
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 329. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Norðan 5–13 m/s og snjókoma eða éljagangur fyrir norðan en léttskýjað sunnan- og suð- vestanlands. » 8 Heitast Kaldast 0°C -10°C KJÓSI Ísland að gerast aðili að Evrópu- sambandinu (ESB) myndi slík ákvörðun hafa minni áhrif á daglegt líf í landinu en það stökk sem tekið var við aðild að Evr- ópska efnahagssvæðinu (EES), sagði Val- gerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra, við setningu málþings um nýja stöðu Ís- lands í utanríkismálum í gær. Hún sagði mikilvægt að átta sig á því að Íslendingar hefðu tekið stór skref í Evr- ópusamrunanum sem hefði haft mikil og margvísleg áhrif á íslenskt samfélag. „Kjósi Ísland í framtíðinni að gerast að- ili að Evrópusambandinu tel ég að slíkt skref – án þess að gera lítið úr því – hafi minni áhrif á daglegt líf Íslendinga en stökkið sem tekið var við aðildina að EES, jafnvel þótt að hin lögformlega breyting yrði vafalaust meiri,“ sagði Valgerður.  Skref en ekki stökk | Miðopna Minni áhrif af aðild að ESB Morgunblaðið/Ómar Evrópa Utanríkisráðherra í ræðustól. FRÁ því að Kristnihátíðarsjóður tók að verja fé til fornleifarannsókna árið 2000 hefur tekist að safna gríðarlegu magni gagna. Nýverið kláraðist hins vegar fjár- magnið og virðist úrvinnsla gagnanna, sem safnað hefur verið með uppgröftum, í upp- námi. Orri Vésteinsson fornleifafræðingur seg- ir í samtali í Lesbók í dag að hugsanlega hafi ákveðin mistök verið gerð við úthlutun styrkja úr Kristnihátíðarsjóði, svo virðist vera sem menn álíti að eftir uppgröft sé starfi fornleifafræðingsins svo að segja lok- ið en þá sé flókin og tímafrek úrvinnsla eft- ir: „Maður spyr sig hvort það hefði ekki mátt reyna að klára málið strax þegar sjóð- urinn var stofnsettur. Það er að segja, það hefði mátt haga úthlutun þannig að sjóð- urinn kláraði þau verkefni sem hann stofn- aði til.“ Nýlegur tækjabúnaður fornleifafræð- inga hér á landi hefur verið nefndur sem hugsanleg lausn á mögulegum fjárskorti í framtíðinni en miklar framfarir hafa orðið í rafrænni kortlagningu fornminja í jörðu. Sérfræðingar telja þó að slík tækni geti enn ekki komið í stað uppgraftar. | Lesbók Úrvinnsla á forn- leifum í uppnámi Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is LJÓST er að Flugfjarskipti ehf. fá ekki að reisa tíu fjarskiptamöstur í landi Galtarstaða í Flóahreppi í Árnessýslu eftir að sveit- arstjórn hafnaði tillögu að breytingu á deiliskipulagi á landareigninni á fundi sín- um á fimmtudag. Möstrin eru nú á Rjúpna- hæð á Vatnsenda og eru á hæðarbilinu 18–36 metrar. Vildu Flugfjarskipti flytja þau í land Galtarstaða sem félagið hafði fest kaup á undir væntanlega starfsemi. Allt var þó háð afstöðu sveitarstjórnar sem nú liggur ljós fyrir. Staðan er því sú að Flugfjarskipti eiga landið en geta ekki nýtt það eins og að var stefnt. Að sögn Brands Guðmunds- sonar, framkvæmdastjóra félagsins, hefur hann þó svæðinu og taldi enn fremur að verðmæti lands myndi minnka ef möstrin kæmu á svæðið. Þá væri nánast ekk- ert á þessu að græða fyrir sveitarsjóð og sveitarfélagið í heild og þá yrði að taka til- lit til þeirrar miklu andstöðu við málið en a.m.k. 36% íbúa 15 ára og eldri voru mót- fallnir komu mastranna. Flugfjarskipti ehf. er dótturfélag Flugmála- stjórnar. engar áhyggjur af því að sitja uppi með ónotað land. Undirskriftum safnað Fimm athugasemdir vegna málsins bárust sveit- arstjórn fyrir afgreiðslu þess, auk undirskriftalista með nöfnum 152 íbúa og landeigenda sem mótmæltu fyrirhuguðum framkvæmd- um. Sveitarstjórn taldi framkvæmdirnar ekki sam- ræmast atvinnu og búsetu á Möstur munu ekki rísa í Flóahreppi Flugfjarskipti ehf. fá ekki leyfi til að reisa tíu fjarskiptamöstur í landi Galtarstaða  Félagið hefur fest þar kaup á landi undir væntanlega starfsemi  Framkvæmdastjórinn kveðst áhyggjulaus Morgunblaðið/Ómar Andstaða Flytja átti möstrin frá Rjúpnahæð austur í Flóa. Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is VIRÐISAUKASKATTUR af áfengi verður lækkaður niður í 7% skattþrep 1. mars nk. samkvæmt frumvarpi fjármálaráðherra um lækkun virðisaukaskatts af mat- vælum o.fl. Á móti verður áfeng- isgjaldið hækkað frá sama tíma þar sem markmið breytinganna er ekki að lækka almennt áfengisverð til neytenda. Á hún því ekki að leiða til þess að tekjur ríkisins af sölu áfengis minnki, skv. upplýsingum Árna Mathiesen fjármálaráðherra. Það er hins vegar ljóst að þessar breytingar munu hafa í för með sér að einhverjar breytingar verða á smásöluverði víntegunda í hverjum styrkleikaflokki áfengis fyrir sig. Ódýrari vín hækka og dýrari vín sömu tegundar lækka Þar sem áfengisgjaldið er miðað við magn vínandans en ekki inn- kaupsverð, mun breytt álagning hafa þau áhrif að dýrari vín lækka í verði en ódýrari vín af sömu tegund munu hækka í verði. Fjármálaráð- herra segist ekki gera ráð fyrir að þessar verðbreytingar verði stór- vægilegar. „Álagningin sem er óháð verðinu hækkar en álagningin sem er háð verðinu lækkar. Áfengi sem er þá dýrara lækkar en það sem er ódýr- ara hækkar innan sömu áfengisteg- undarinnar,“ segir Árni. Breytingin er gerð til að einfalda og samræma álagningu virðisauka- skatts á vörur og þjónustu hjá hót- elum og veitingahúsum. Fram kemur í tillögum meiri- hluta fjárlaganefndar við fjárlaga- frumvarp næsta árs að hækkun áfengisgjaldsins er áætluð 3,8 milljarðar kr. Einnig er í frumvarpinu lagt til að virðisaukaskattur af tónlistar- geisladiskum verði lækkaður í 7%. Vsk. af áfengi í 7% en áfengisgjald hækkar Í HNOTSKURN »Virðisaukaskattur afáfengi á að lækka í 7% þrep 1. mars. Á móti verður áfeng- isgjald hækkað og á að skila 3,8 milljörðum. »Breytingarnar þýða aðverð á flösku af dýru rauð- víni lækkar en ódýr rauðvín með sama áfengisstyrkleika hækka í verði. »Ríkisstjórnin hefur sam-þykkt frumvarpið sem er nú til meðferðar í stjórnar- þingflokkunum. HUGAÐUR var hann maðurinn sem vann við stækkun Reykjavíkur- hafnar í gærdag. Frost í lofti og nístingskaldur sjórinn rétt undir fótum en engan bilbug lét hann á sér finna og hélt verki sínu áfram á meðan ljósmyndari Morgunblaðsins smellti af. Upp vakna hins vegar spurn- ingar um hvort öryggisbúnaður starfsmannsins hafi verið í lagi þar sem hann stóð óbundinn, án björgunarvestis, ofan á flotpalli. Morgunblaðið/ÞÖK Óbundinn á flotpalli við Reykjavíkurhöfn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.