Morgunblaðið - 25.11.2006, Page 32

Morgunblaðið - 25.11.2006, Page 32
hjónabandið 32 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ                                                                                                                                      !    " Hugmyndafræðin að bakihjóna- og sambúðar-messunum er að leiðasaman helgihald ogfræðslu og það hefur gefist mjög vel,“ segir sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, prestur í Garða- sókn. „Þarna fær fólk uppörvun í gegnum fræðslu er varðar hjóna- bandið og fjölskylduna og hvíld og endurnæringu í því að dvelja í helgihaldinu. Í messunni eru hefð- bundnir messuliðir eins og ritning- arlestur, fyrirbænir, altarisgöngur eða blessun en með einfaldara sniði og tónlistin fær rýmri sess en í hefðbundnu messuhaldi. Við notum einnig sálma þjóðkirkjunnar en þeir eru útsettir með djassívafi.“ Prest- urinn segir að mætingin sé góð í þessar messur og fólk komi aftur og aftur. „Hjón og sambúðarfólk er að sækjast eftir endurnæringu og uppörvun og fyrir marga er þetta orðið hluti af því að rækta sam- bandið, sem er frábært. Hjóna- bandið er sú eining sem þarf að setja í forgang í samfélaginu, það er því til heilla. Við eigum því að hafa það að markmiði að varðveita þessa einingu, annars eykst firringin í mannfélagi okkar og um leið þján- ing margra.“ Kenna betri samskiptatækni Sálfræðingarnir dr. Erla Sigríður Grétarsdóttir og dr. Berglind Guð- mundsdóttir verða með fyrirlestur í hjóna- og sambúðarmessu í Bessa- staðakirkju annað kvöld. Þar fjalla þær um samskipti á milli hjóna og sambúðarfólks en þær segja mikla þörf fyrir ráðgjöf og fræðslu á þessu sviði. „Fólk vill læra og gera betur en veit oft ekki hvert það á að leita. Samskipti geta oft verið mjög flókin, fólk hefur ákveðin hlutverk í fjölskyldum og oft festast ákveðin samskiptamynstur í sessi sem erfitt er að brjóta upp án aðstoðar. Í fyrirlestrum okkar bendum við fólki á þessar gildrur og kennum því leiðir að bættum samskiptum, t.d. hvað hefur góð áhrif á samskipti og hvað ekki. Það er mikilvægt að fest- ast ekki í viðjum hversdagsleikans og rækta sambandið á milli ein- staklinga sem deila lífinu. Nútíma- fólk upplifir oft mikla streitu, það er upptekið af vinnunni, barnaupp- eldi og oft er hætt við því að parið gleymi að gefa sér tíma til að hlúa að sambandi sínu.“ Mikilvægt að forgangsraða – Nú eru jólin að nálgast og jólin eru álagstími fyrir mörg hjónabönd. Eigið þið einhver góð ráð fyrir hjón og sambúðarfólk á aðventunni? „Það er rétt að jólin og undirbún- ingur þeirra geta verið álagstími fyrir mörg hjónabönd. Það er því mikilvægt að forgangsraða og huga að því sem skiptir mestu máli. Að- ventan getur verið yndislegur tími fyrir hjón og sambúðarfólk ef það gefur sér tíma til að njóta samvista hvort við annað. Oft eru það litlu hlutirnir sem skipta mestu máli eins og til dæmis að hlusta á góða tónlist, kveikja á kertum og tala saman, fara saman út að ganga eða á kaffihús. Það er auðvelt að gleyma sér í jólagjafakaupum og öllu því sem „endilega þarf að gera fyrir jólin“ en oft er dýrmætara að leggja meiri áherslu á samvistir við maka sinn og börn,“ segja Erla og Berglind og benda á að eftirfarandi vísa í kvæðinu Einræður Starkaðar sem Einar Benediktsson orti eigi mjög vel við í þessu samhengi. Í hallarglaum var mitt hjarta fátt Hreysið ég kaus með rjáfrið lága Geðið ber ugg þegar gengi er hátt Gleðin er heilust og dýpst við það smáa. Mikilvægt að festast ekki í viðjum hversdagsleikans Við lifum á tímum mikillar umræðu um erfiðleika í hjónaböndum en hjónasæla getur líka blómstrað á 21. öldinni. Unnur H. Jóhannsdóttir fræddist um nýstárlegt samstarf presta, tónlistarfólks og sálfræð- inga í Garðasókn sem standa að hjóna- og sambúðarmessum í kirkjunni. Aðhlynning Hjón þurfa að hlúa að sambandinu og rækta það til að viðhalda ástinni. Morgunblaðið/Golli Fræðsla Þær Erla og Berglind fræða hjón um góða samskiptatækni. Hjóna- og sambúðarmessurnar eru haldnar síðasta sunnudag í hverjum mánuði kl. 20, til skiptis í Garðakirkju og Bessastaða- kirkju. uhj@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.