Morgunblaðið - 25.11.2006, Page 30

Morgunblaðið - 25.11.2006, Page 30
|laugardagur|25. 11. 2006| mbl.is daglegtlíf Við lifum á tímum mikillar um- ræðu um erfiðleika í hjónabönd- um en hjónasæla getur líka blómstrað á 21. öldinni. » 32 daglegt Grrr … það er tími til kominn að gefa innra villidýrinu lausan taumin því sjóðheit og villt tígramynstur eru í tísku. » 36 tíska Önnu Maríu Sigurðardóttur fannst vanta jólatengt efni fyrir börnin og skellti sér því sjálf í útgáfumálin. » 33 börn Listmálarinn Guðný Eysteins- dóttir er vön að framkvæma hlutina um leið og henni detta þeir í hug. » 34 lifun Stólkollar hafa fengið veiga- meiri sess í hönnun og híbýlum á fyrsta áratug þessarar aldar en þeir hafa áður haft. » 33 hönnun Hugmyndin að Lykkjufallikviknaði hjá mér fyrirnokkrum árum þegarvinkona mín eignaðist barn og ég sá að hún átti í miklum vandræðum með að gefa barninu sínu brjóstamjólk í fjölmenni,“ segir fatahönnuðurinn Sigrún Bald- ursdóttir, sem er nýlega búin að opna verslunina Lykkjufall við Garða- stræti 2 ásamt manni sínum, Valdi- mar Geir Halldórssyni ljósmyndara. Þar selur hún eigin hönnun, peysur úr prjónaefni, sem sérstaklega eru hannaðar fyrir konur með börn á brjósti. Þó er hægt að nota þær áfram eftir að brjóstagjöfinni lýkur. Sigrún hlaut styrk frá Nýsköpun- arsjóði námsmanna sumarið 2005 og lét þá verða af þeirri hugmynd að at- huga hvort á markaðnum væri þörf fyrir fatnað, sem auðveldaði aðgang fyrir brjóstagjöf. Skoðanakönnun sem hún gerði sannreyndi að svo væri. „Með þessari hönnun vonast ég til að uppfylla að einhverju leyti þarf- ir markhópsins með því að auðvelda aðgengi fyrir brjóstagjöf í þægileg- um fatnaði. Útlitslega séð er fatn- aðurinn hönnunarvara, sem nota má svo áfram eftir að brjóstagjöfum lýk- ur.“ Hyggur á útflutning Sigrún er fædd árið 1980, en auk þess að starfa sem fatahönnuður Lykkjufalls hefur hún starfað sem fatahönnuður hjá prjónafyrirtækinu Janus ehf. og sem „freelance“-stílisti. Sigrún útskrifaðist sem textíl- og fatahönnuður úr Listaháskóla Ís- lands vorið 2005. Hún hefur að und- anförnu sótt Brautargengisnámskeið hjá Impru nýsköpunarmiðstöð sem hún segir að hafi reynst sér vel við að koma af stað eigin atvinnurekstri. Hún lítur björtum augum til versl- unarrekstursins enda segir hún að peysurnar sínar hafi hlotið góðar við- tökur. Peysurnar eru framleiddar í Shanghai í Kína. Sigrún hyggur nú á útflutning til Norðurlandanna og hefur hún nýlega hlotið styrk til frek- ari markaðssetningar frá Atvinnu- málasjóði kvenna sem heyrir undir félagsmálaráðuneytið. Verslunin Lykkjufall býður einnig upp á fylgihluti og handunnar smá- vörur tengdar börnum. Þá ætlar Sig- rún einnig að hafa til sölu handunnar töskur eftir hönnuðinn Hedí Jóns- dóttur. Nýja verslunin er opin á virkum dögum nema miðvikudögum frá 13.00–18.00 og á laugardögum kl. 12.00–16.00. Peysurnar auðvelda aðgengi að brjóstinu Morgunblaðið/G.Rúnar Fatahönnuðurinn Sigrún Baldursdóttir hefur nú opnað verslunina Lykkjufall ásamt manni sínum. Ljósmynd/Valdimar Geir Halldórsson Brjóstagjöf Peysurnar eru sér- hannaðar fyrir konur með börn á brjósti, en þær má líka nota eftir að brjóstagjöfinni lýkur. TENGLAR ..................................................... www.lykkjufall.com www.silbataska.com Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Hjá Hjálparstarfi kirkjunnar ernú hægt að fá nýstárleggjafakort sem fela í sér gjafir til þurfandi einstaklinga í fátækari löndum heims. Gjafabréfin, sem í boði eru, eru sex talsins. Þannig má gefa vatn eða geitur til fátækra fjölskyldna. Það má líka mennta börn á Indlandi eða leysa þrælabörn úr ánauð með gjafabréfi. Líka má gefa gjafabréf sem styrkir íslensk ungmenni til náms. Hjón gáfu hvort öðru brunn „Þrjú ár eru liðin síðan við byrj- uðum að búa til þessi gjafakort sem við prentum út úr litaprentara og skrifum á mismunandi texta. Kort þessi voru mjög vinsæl í fyrra. Sem dæmi get ég nefnt að hjón komu og gáfu hvort öðru helming í brunni og greiddu þannig fyrir heilan brunn sem getur séð allt að þúsund manns fyrir hreinu vatni. Einn einstaklingur kom og keypti tíu gjafabréf fyrir vatn á 1.000 krónur stykkið og gaf öll- um frændsystkinunum. Ömmur hafa gefið barnabörnum gjafa- kort, t.d. með eða í staðinn fyrir páskaegg og vinsælt hefur ver- ið að gefa svona gjafakort í stórafmælisgjafir. Margir láta það berast til væntanlegra gesta sinna að þeir óski þess að andvirði gjafa fari í tiltekið málefni hjá okkur. Við höfum þá, eftir óskum fólks, látið það hafa gjafabréf til að afhenda í afmælinu eða við höfum safnað nöfnum saman á lista og sent afmælisbarninu eftir af- mælið með samanlagðri upphæð gjaf- anna,“ segir Anna M. Þ. Ólafsdóttir, fræðslu- og upplýsingafulltrúa Hjálp- arstarfs kirkjunnar. Eitt þúsund að lágmarki Til að gefa gjafakort getur fólk skoðað þau á vefnum www.help.is. Fólk velur sér kort og lætur vita í síma eða með tölvupósti um textann sem á að fara á kortið. Staðlaður texti er auk þess á kortinu sem segir frá verkefn- inu en fólk ákveður sjálft persónuleg skilaboð. Borgað er fyrir gjafakortin í gegnum síma eða þegar komið er að sækja kortin sem afhendast svo þiggj- endum eins og hver önnur gjöf. Lágmarksupphæð gjafakorts er eitt þúsund krónur en geitabréfin kosta 2.400 krónur í takt við almennt geitaverð í Malaví. Gefa má geit, vatn og frelsi í jólagjöf Elsku mamma og pabbi. Okkur langaði til að bæta aðeins við bústofninn hjá ykkur í tilefni brúðkaupsafmælis ykkar. Fyrir andvirði gjafa- bréfsins verða keyptar þrjár geitur sem fátækar fjölskyldur í Malaví munu ann- ast fyrir ykkur næstu árin. Innilegar hamingjuóskir frá okkur. Bára, Biggi og Jói, makar og börn. TENGLAR ..................................................... www.help.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.