Ísafold - 02.10.1928, Side 4
4
1 S A F 0 L D
Karlmanoafatnaðor.
Nýkomið: Karlmannaföt blá einhnept ■ og tvíhnept, nýjustu
snið, einnig mislit föt í stóru úrvali, verð frá kr. 39,00,
Unglingaföt, Matrosaföt, Drengjajakkaföt, Manchettskyrt-
ur, Flibbar, Slaufur, Bindi, Treflar, Hattar, Enskar húfur
og Loðhúfur. Regnjakkar, Stormjakkar og Kuldajakkar,
SPortbuxur, Sportsokkar, Legghlífar (úr leðri og taui og
Olíuföt.
Vörur sendar út um alt land' gegn póstkröfu.
L. H. Miiller
Reykjavík.
Vorist eliirlikingar!
Munið vörumerkið!
Vjer leyfum oss hjer með að vekja athygli þeirra, er
með sjóklæði versla og þeirra, er þau nota, á því, að nú
höfum vjer birgðir af hinum: x
Endurbœffu siðsfökkurn,
sem hlotið hafa meðal sjómanna, einkunnarorðið:
„Bestu stakkarnir**.
Einnig höfum við fyrirliggjandi: Olíu-Svuntur, pils
og hálfbuxur, sem eru að sínu leyti jafn vönduð framleiðsla
og síðstakkarnir.
Ennfremur verða á næstunni fyrirliggjandi: olíu*
treyjur og buxur (með axlaböndum).
Allir, sem með sjóklæði versla, ættu því fyrst og fremst
að hafa á boðstólum hina vönduðu vöru frá
Siðkiæðaoerð íslands
6 Humber Place, Hull,
■nnast innkaup é erlendum v5rum.
og a5lu lalenakra afurda.
—-
Tapaöur hestur.
Úr girðingu við Sauðárkrók tap-
aðist 9. september rauður reið-
hestur, stjörnóttur með glóbjart
hrokkið tagl og fax, 10—11 vetra
gamall, mjög fallegur ca. 54 þuml.
á hæð', klárgengur, viljugur, al-
járnaður. Yfirmark ekkert. Undir-
mark bitar. Verði nokkur var við
hest þenna er hann vinsamlega
beðinn að gera mjer aðvart.
Kristján Gíslason,
Sauðárkrók.
Steingrímur Steinþórsson befir
verið skipaður skólastjóri bænda-
skólans á Hólnm frá 1. okt. þ. á.
Hnífsdadsmálið. Halldór Júlíus-
son sýslumaður dvelur nú vestur
á Isafirði og hefir yfirheyrslur í
Hnífsdalsmálinu.
Hjeðinn fær ábætir. Framkvæmd
arstjóri Tóbaksverslunar íslands
og erindreki miljónafjelagsins
breska, Hjeðinn Valdimarsson, 2.
þm. Reykvíkinga, hefir sennilega
þóttst fara varhluta við bitlinga-
úthlutun stjórnarinnar. Svo sem
kunnugt er, var hann skipaður í
yfirskattanefnd hjer í Reykjavík,
en fyrir það starf fær hann að-
eins örlítið brot móts við sam-
herja hans suma, sem stjórnin
hefir rjett bita. En nú hefir
stjórnin gefið' Hjeðni ábæti, skip-
að hann meðstjórnanda við Slysa-
tryggingardeild Tryggingastofn-
unar ríkisins. Ókunnugt er enn-
þá, hvað ábætir þessi gefur Hjeðni
í beinum peningum.
Mjólkurbú Flóamanna. Bygg-
ingu þess á að verða lokið 1. júní
næstk., ef hún kemst undir þak
fyrir frost í haust. Þeir Arinbj.
Þorkelsson og Sig. Bjargmundsson
hafa tekið að sjer að reisa bygg-
ingú þesáa fyrir 84.500 kr. f þess-
ari upphæð eru ekki innifaldir
flutningar á möl og sandi, gröftur
fyrir grunni, miðstöð, hitavarnar-
lög o. fl. Búist við að byggingar-
kostnaður verði alls um 120 þús.
krónur.
Raflýaing sveitabæja. í sumar
var reist rafmagnsstöð í Varma-
hlíð xmdir Eyjafjöllum og voru
skilyrði ágæt; afl nægilegt til
ljósa, snðn og hitunar. Guðmundur
Einarsson í Vík í Mýrdal setti upp
stöðina. t Fagradal í Mýrdal hefir
einnig verið reist rafmagpstöð í
sumar; einnig ágæt skilyrði.
Bjarni í Hólmi setti upp þá stöð.
1 haust verður sett upp rafmagns-
stöð í Kerlingardal í Mýrdal og
sjer Guðmundnr Einarsson nm
verkið. — Áhugi bænda er sem
óð'ast að vakna fyrir nauðsyn raf-
magnsin3 til heimilisnotkunar,
euda umskapast heimilin við
k»mu rafmagnsins.
Þorkell Þorkellsson brá sjer ný-
lega norður á Akureyri og athug-
aði þar laugauppsprettur í Glerár-
gilinu. Hefir mönnum dottið í hug
að bora þar fyrir heitu vatni til
þess að nota það til upphitunar
m. a. í barnaskólann nýja sem
Akureyringar ætla að reisa.
20 nemendur er tóku gagnfræða-
próf í Akureyrarskóla í*vor ætla
að stunda þar 4. bekkjarnám í
vetur.
Brödrene Levy“ og Einar 01-
geirsson. Stjórnarblöðin á Akur-
eyri eru enn að reyna að telja
mönnum trú um að „Brödr'ene
Levy“ í Höfn hafi eigi haft nein
afskifti af síldareinkasölunni.
Ætla blöðin að fræða lesendur
sína um það, hvernig á því stóð,
að Einar Olgeirsson bafði bæki-
stöð sína fyrst framan af á skrif-
stofu þeirra Levy bræðha í Höfn.
Hann f jekk þar púlt til afnota fyr
ir einkasöluna. Menn geta gert
sjer í hugarlund hvernig á því
stóð að Einar fjekk þar inni með
úthald sitt.
Kristín Sigfúsdóttir skáldkona
hefir nýlega gefið út síðari hluta
af bók sinni „Gömul saga“.
Haraldur Bjömsson hefir sent
Leikfjelaginu tilboð um að stjórna
sýningu þriggja leikrita hjer í vet-
ur á vegum fjelagsins ;Galdra-Lofti
Dauða Natans Ketilssonar og leik-
riti einu eftir Gandrup. Á aðal-
fundi f jelagsins er haldinn var ný-
lega hafnaði fjelagið tilboði Har-
aldar að öðru leyti en því, að það
gaf honum kost á að stjórna sýn-
ingu á Dauða Natans Ketilssonar.
Hefir eigi komið svar frá Haraldi
um það hvort hann taki þessu.
Einkennileg auglýsing. 1 blaði
einu í Noregi, fremur ómeíkilegu,
birtist nýlega svobljóðandi auglýs-
ing í auglýsingabálkinum „Ledige
plassar.“ Ársvikaríat pá Island
for norsk-engels filolag. „Den
högare skulen paa Ákureyri
ynskjer ein kvalifisert norsk
gymnaslærar i engelsk i kom-
mande skuleár: oktober—mai incl.
24 timar i vika. Lönn 4000 isl. kr.
og fri reis fram og tilbake. —
Söknad, stila til stjóm Gangfræða-
skólans á Akureýri, sender' eín til
lektor Erik Eggen, Voss.
Menn spyrja: Hvað rekur skóla-
stjóm til þess óyndisúrræðis að
leita til útlanda eftir kennara í
ensku, og auglýsa eftir slíkum
manni á norskum útkjálkaí
Stjómarkosning Verslunarráðs-
tns. Samkvæmt lögum Verslunar-
ráðsin's fór fram talning atkvæð'a
þann T. þessa mánaðái- til stjórn-
arkosningar í Vetslunarráðinu, og
hlutu þessir fjórjr kosningu:
Garðar Gíslason, stórkaupmaður
(endurkoginn).
Ólafur Benjamínsson, stórkaúp-
maðuf.
Rich. Thors, útgerðarmaður.
Hai;aldur Árnason, kaupmaður.
'„Dræbende Kys1,-
er bók, sem fjallar um stærsta böl
mannkynsins.
“Ægteskabsbogen"
er hin eina bók, sem til er, er skýr-
ir til fullnustu frá takmörkun barn-
eigna samkvæmt kenningum þeirra:
Dr. Malachowski Dr. Harris og Dr.
Lesser’s. Báöar eru bækur þessar
með mörgnm myndnm. Sendar
burðargjaldsfritt fyrir kr. 1.25 hvor,
ef andvirðið, i ísl. frímerkjum, er
sent með pöntnn eða gegn póst-
kröfn að viðbættu burðargjaldi.
Nyhedsmagasinet Afd. 21 Kbhv. 0.
Prjónavjelin
„Hushielp"
Skrifiö eftir
verölista!
Leiöarvísir, sem
gerir hverjum
einum fært aö
læra allskonar
prjón, er sendur
með.
Maskinhuset,
Stavanger,
Norge.
Útrýmið rottunum.
Það er nú fullsannað, að afkvæmi
einna rottuhjóna geta á einu ári orð-
ið 860 rottur. Af þessu er auðsæ
þórfin á að útrýma rottunum. Til þess
að ná góðum árangri er því tryggast
að nota Ratin og Ratinin. Ratiu
sýkir rotturnar, og þær sýkja svo aðr-
ar rottur, sem þær umgangast meðan
þær eru veikar, og drepast að 8—10
dögum liðnum. Ratinin hefir aftur á
móti bráðdrepandi verkanir á þær rott-
ur sem jeta það.
Ratin-aðferöin
er : Notiö fyrst Ratin, svo Ratinin, þá
fæst góður árangur.
Sendið pantanir til
Ratinkontoref, Kðbenhavn
Allar upplýsingar gefur
Ágúst iósefsson
heilbrigðisfulltrúi, Reykjavik
Skiði,
fyrir karla, konur og börn,
allar stærðir, margar teg-
undir.
Ennfremnr: Skíðabönd,
Skíðastafi, Skíðaskó, Skíða-
sokka og alt það er að skíða-
útbúnaði lýtur.
L. H. Miilier,
Reykjavik.
Hálaliðið.
Á Kjósarfundinum gat Ólafur
Thors þess, að eigi væri ólíklegt að
hann breytti einhverju af fyrir-
huguðum leið'arþingum í almennan
umræðufund um landsmálin.
Kvaðst hann þá mundu bjóða
Jónasi dómsmálaráðherra á þann
eða þá fundi en eigi heimila öðr-
um utanhjeraðsmönnum málfrelsi.
Með því gæti Jónas fengið rífleg-
an ræðutíma, og því eigi borið við
tímaleysi ef lítt yrði úr andsvör-
um.
Sýndist fundarmönnum, sem Jón
as Ijeti sjer fátt um finnast, og
mundi haan fremur kjósa að vera
í skjóli málaliðs sósíalistanna svo
minna bæri á hve honum er erfitt
um vamir.
Menn eru nú að spjalla um
hverra bragða J. J. muni neyta
til þess að' geta notið stuðnings
sósíalistanna á þessum fundum.
Er helst giskað á að Jónas muni
láta þá sjálfa boða til fundar á
þeim stöðum er helst þykir líklegt
að Ólafur muni bjóða honum á,
en reynslan sker úr hrer töggur
er í JónasL
1