Ísafold - 27.08.1910, Blaðsíða 3
ISAFOLD
215
Skifvincfan Diaboío
rgður sér sföðugf meira og meira brauf
á fjeimsmarkaðinum, encía regnisf f)ún
veí og er þriðjungi ódíjrari en áður þekt-
ar skiívindur.
Sfærð nr. í skiíur Í20 pf. á kíukku-
stund, nr. 2 220 pt.
Tlæg meðmœli tif sýnis.
Tií söfu bæði fií kaup-
manna og nofenda
í verzíun
Jóns Pórðarsonar,
Heifhjavík.
Hafdið borðlíni og húslíni
yðar jafnan hvitu sem snjó
með þvt að nota ávallt
Sunlighi sápu.
Leiðbelnlngar viðvlkjandi notkun
sápunnar fylgja hverri sápustöng.
1688
Kína-Líls-Elixír
fæst nú hjá
Guðm. Olsen.
Þá skal eg stuttlega drepa á skanim-
irnar og smánarorSin. Það er hryggi-
legt að heyra skilamanninn(!) Þ. Th.
drótta því að eins alkunnum sæmdar-
manni og samvizkusömum trúnaðarmanni
fólaga og einstakra manna um land alt
í peningasökum þeirra, sem Sighvatur
bankastjóri Bjarnason er, að hann muni
hafa týnt þ. e. dregið undir sig 3213
krónur. Sliammaryrði þau, sem Þ. Th.
velur honum, munu engin áhrif hafa
á álit allra vandaðra manua á Sighvati,
og hann mun láta þau sér í lóttu rúmi
liggja. Þ. Th. kallar það ekki göfug-
mannlega aðferð að boða sig ekki á
fundinn, en er það göfugmannlegra, að
ráðast eins og hann gerir á fjarverandi !
mann, sem burtu verður i fullan mán- j
uð, og þá fyrst getur svarað, þegar ill- j
mælin eru komin út um alt land ?
Hversvegna Þ. Th. fer að ráðast á ;
ráðherra, er mór alveg óskiljanlegt; hann j
átti hór engan hlut að máli; en út af j
ummælunum um ráðherrann vil eg að j
eins taka það fram, að hann hefir sem
ritari fólagsins í full 2 ár unnið miklu j
meira fyrir fólagið, en Þ. Th. hefir gert ;
alla fólagsins tíð, og það þó alt hefði j
verið með feldu hjá Þ. Th.
Hr. Þ. Th. hefir auðsjáanlega viljað i
segja eitthvað ilt um mig, og þó átti j
eg það ekki skilið; eg talaði ekki eitt j
orð honum til miska á fundinum, eg i
skýrði blátt áfram frá faotis og rök-
studdi þau með því að lesa upp brófin,
semyfirstjórnin liafði sent honum; Þ. Th.
hefir þó ekki fundið annað mór til
ámælis en að eg borgaði lítið tillag og
greiddi það með tregðu. Eg skal játa
það, að eg hefði gjarnan viljað hafa til-
lagið, ekki 8 heldur 12 ltrónur, sem
borgaðar eru úr mínu húsi og beint úr
mínum vasa, ennþá hærra; það hefði eg
líka getað altónd í bráð, ef eg hefði
viljað gjörþurka innan allar þær spari-
sjóðsbækur, sem eg hefi í mínum vörzl-
um og í eru mörg þúsund krónur, en
það hefi eg ekki gjört, heldur altaf reynt
til að sníða útgjöld mín eftir tekjunum
og má hver maður lá mór það, sem vill.
Sá áburður að eg væri tregur að borga
skuldir mínar, kom mér satt að segja
alveg á óvart; að vísu kemur það oft
fyrir að eg vísa möunum, sem koma
með reikninga heim fcil mín, að koma
upp í stjórnarráð, því þar er eg mest-
an hluta dagsins, og afgeri allar mínar
peningasakir þar; á þenuan hátt má
vel segja, að tvisvar só komið til mín,
en eg hygg ekki, að þetta sóu kölluð
vanskil, ef þá er borgað; auk þess get-
ur svo staðið á með mig eins og aðra,
auðvitað að Þ. Th. undanteknum, að eg
hafi ekki peninga þá rótt í svipinn,
þegar reikningur kemur. Af því mér
er ekki sama um, að þessi ósanni orð-
rómur berist út um landið óhrakiun —
vegná viðskiftamanna miuna í Reykjavík
þarf eg þess ekki — þá hefi eg fengið
vottorð frá aðalinnheimtumanni bæjar-
ins, manni sem er öllum kunnur fyrir
nákvæmni og samvizkusemi í innheimtu;
vottorð þetta hefi eg hvorki stílað sjálf-
ur nó látið stíla, en það er þannig:
Eg sem um mörg undanfarin ár hefi
fengist við innheimtu bæði á opinberum
gjöidum og ýmsu öðru, get með góðri sam-
vizku vottað, að herra landritari Klemens
Jónsson hefir ætíð sýnt mér einstakakurteisi,
hvort heldur sem eg hefi heimsótt hann
heima eða í stjórnarráði, lika hefir hann
reynst mér einn af áreiðanlegustu borgnr-
nm bæjarins i öllum viðskiftum.
Reykjavik 24. ágúst 1910.
Þóroddur Bjarnason.
Eg gat þess í upphafi, að mig hefði
furðað á því, að hr. Þ. Th. skyldi ekki
hafa haldið sór í skúmaskoti sínu, —
eg endurtek það að endingu, og sór-
staklega furðar mig á því, að hann skyldi
fara að ráðast á mig; hann mátti þó
þekkja mig svo, að eg mundi ekki láta
honum ósvarað, og hann mátti vita, að
mór var unt að koma áþreifanlega við
hann, þó eg ekki hafi gjört það betur
að þessu sinni, hann mátti vita,
að eg þekti formensku hans í heilsuhæl-
isdeildinni, að eg þekti afskifti hans af
styrk þeim, sem Good-Templarafólaginu
er veittur úr landssjóði, og síðast eu
ekki sízt, að eg þekti frammístöðu hans
sem gjaldkera við íslands banka, og
ástæðurnar fyrir því, að hann varð að
hröklast úr þessari stöðu. Sá sem býr
í svo brothættu glerhúsi, að ekki þarf
nema litla steinvölu til að brjóta það,
á ekki að kasta stórgrýti á aðra.
Reykjavík, 25. ágúst 1910.
Kl. Jónsson.
Reykjavikur-annáll.
Aðkomufólk siðustu daga: Magnús Sæ-
björnsson læknir frá Flatey. Ólafur Thor-
lacius læknir frá Djúpavogi.
Fasteignasala. Þingl. 25. ágúst
Ári Þórðarson (Hvg. 18 c) selur Sigurði
Guðmundssyni (Hvg. 28 B.) húseign nr. 18
við Óðinsgötu (Reynistað) með tilheyrandi.
Dags. 23. ág.
Guðmundur Egilsson trésmiður selur
Magnúsi Sæmundssyni lóð nr. 22 B við
Grettisgötu, ca. 525 ferálnir, fyrir 625 kr.
Dags. 22. marz.
Gunnar GunnarsBon trésmiður fær upp-
boðsafsal fyrir húseign nr. 46 við Hverfis-
götu m. tilh. fyrir 4400 kr. Dags. 19. ág.
Islandsbanki fær uppboðsafsal fyrir hús-
eign nr. 4 við Kirkjustræti m. tilh. fyrir
9100 kr. Dags. 13. ág.
Sami selur Steingr. trésmið Guðmunds-
syni sömu húseign m. tilh. Dags. 18. ág.
Jón Magnússon bóndi í Gaulverjabæ i
Árnessýslu selur Ara Þórðarsyni húseign
sina nr. 18 við Oðinsgötu (Reynistað) með
tilh. fyrir 2611 kr. 06 a. Dags. 7. mai.
Kristján Teitsson selur Sólmundi syni sín-
um húseign sina við Bjargarstíg m. tilh.
fyrir 10.500 kr. Dags. 18. ág.
Magnús Sæmundsson, Bergstaðastr., 26 B,
selnr Jóhanni kaupmanni Jóhannessyni lóð
við Grettisgötu 22 B, ca. 525 ferálnir, fyrir
525 kr. Dags. 24. ág.
Ferðalög: Einar skáld Hjörleifsson befir
verið í ferðalagi auBtur um sveitir.
Andrés Björnsson ritstj. fór fyrir skömmu
landveg norður i Skagafjörð. Þorst. Er-
lingsson skáld hefir verið i ferðalagi um
Norðurland mánaðartima, og er nú nýkom-
inn heim.
Gasmennirnir flestir fóru héðan á Botniu
siðast, m. a. Schöpke verkfræpingur og
Paternoster. Stöðvarstjóri við gasstöðina
verður hr. Otto Radtke en gasmeistari
hr. Jens Sigurðsson (prófasts Jenssonar)
frá Flatey.
Hjónaefni: Lorentz Miiller verzlunarstjóri
og ym. Marie Bertelsen.
Árni Sighvatsson verzlunarm. og ym.
Hansína Þórðardóttir.
Yaldemar Hansen verzlm. og ym. Hlíf
Sívertsen, frá Hrappsey.
Guttormur Pálsson skógræktarmaður og
ym. Sigríður Guttormsdóttir frá Stöð í
Stöðvarfirði.
Guðm. Þorbjarnarson múrari og Aðalbjörg
Stefánsdóttir frá Vallanesi.
Hjúskapur: Ifvar Wennerstr$m, sænskur
blaðamaður og ym. Ólafla Guðmundsdóttir
frá Nesi við Seltjörn. Giftust borgaralega
13. ágúst.
Pétur Bogason læknir við Boseruphæli á
Sjálandi og ym. Lára Indriðadóttir. Gift-
ast í dag í Kaupmannahöfn.
Veðrátta: Einstök bliða og heiðrikja all-
an ágústmánuð um þessar slóðir — fram á
siðustu dagana. En dálitið komið úr lofti
seinni hluta þessarar viku.
Skipaferðir.
Botnía fór hóðan til útlanda á mánu-
dagskvöld — og á henni mesti fjöldi
farþega. Þar á meðal voru: Bogi Mel-
steð sagnfræðiugur, stúdentaruir Sig.
Nordal, Guðm. Thoroddsen, Björgólfur
Els. „AUSTRI" jSölubúð
fer í strandferð austur og norður
3. september kl. 9 árdegis.
Ólafsson, Laufey Valdimarsdóttir, Bryn-
jólfur Arnason og Ólafur Jónsson. Ennfr.
Einar Indriðason bankamaður (til 4 mán-
aða dvalar í Khöfn).
Sterling fór á þriðjudag. Eitthvað
50—60 farþegar. Þar á meðal: Jón
Krabbe skrifstofustjóri, læknaskólakandí-
datarnir Henrik Erlendsson og Magnús
Júlíusson, stúdentarnir: Guðm. Kamban,
Júlíus Havsteen, Sighvatur Blöndahl, Sig-
tryggur Eiríksson, Ólafur Pótursson.
Jungfrú Gerda Nyrop, Guðm. Thorsteins-
son málari, frú Magnea Helgesen og
kjördóttir hennar, Har. Sigurðsson píanó-
leikari frá Kallaðarnesi, Pótur Antons-
son Monnet, Kjartan Konráðsson, Fischer
listmálari, kapt. Trollejr., frú Þuríður Þó-
rarinsdóttir og 2 synir hennar, Gísli
Guðmundsson gosdrykkjumaður, Kjögx
verkfr., jungfrú Júlíana Sveinsdóttir o.
fl. o. fl.
Lavoisier, frakkneska herskipið, kom
snemma í vikunni og fór aftur þriðju-
dagskvöld kringum land.
Brillouin konsúll tók sór fari.
Kong Helge kom hingað þriðjudag
síða8tliðinn. Farþegar Georg Ólafsson
cand. polit. og enskir ferðamenn nokkr-
ir. Kong Helge fór aftur vestur og
norður um land í fyrrakvöld. Farþegar:
Trolle kapteinn, Magnús Sæbjörnsson
læknir, Magnús Ásgrímsson hreppstjóri
frá Slóttubjarnarvöllum o. fl.
Austri kom þriðjudagsmorgunn og fór
aftur í hringferð á fimtudaginn. Að
austan komu Ólafur Thorlacíus læknir,
frú Sigr. Eggerz. En með honum fóru :
kaupm. Þórh. Danfelsson, verzlunarstjóri
Páll H. Gíslason, Ólafur Thorlacius lækn-
ir, Ward fiskikaupm., Torfi Tómasson
verzlunarm., Hjörl. Þórðarson trósm. o. fl.
Fálkinn kom snöggva ferð hingað í
gærmorgun til eftirlits og vistafanga.
Vel er það, að bankinn hefir séð
sér þelta fært — og vel er það, að
botnvörpungum á innlendra manna
höndum fjölgar. — Framleiðslan eykst
og atvinna manna að sama skapi.
Manni finst þetta fyrirtæki boða
ljósglætu í atvinnu- og viðskiftadimm-
viðrinu, sem hér hefir verið vor á
meðal undanfarið. — Betur að fleiri
slík fyrirtæki fylgdu á eftir.
Aðalmennimir í hlutafélaginu ísland
eru þeir Jes Zimsen kaupm., Hjalti
Jónsson skipstj. og Björn Guðmunds-
son kaupmaður.
Látinu
er 5. þ. m. Runólýur Jónsson dbrm.
í Holti á Síðu. Hann varð 83 ára.
— Mesti merkismaður.
Biskupsvígslan á morgun.
Jens prófastur Pálsson lýsir vígslu,
en dómkirkjuprestur, síra Jóhann Þor-
kelsson, verður fyrir altari. Hinir
vigsluvottarnir eru lektor síra Jón Helga-
son og docent síra Eiríkur Briem.
Sungin verða biskupsvígsluljóð síra
Valdimars á undan og eftir sjálfri
vígsluathöfninni, þeir kaflarnir, sem
Sigfús Einarsson tónskáld setti lög
við.
í kórnum sitja prestar hempuklæddir.
Þeir, og aðrir sem sæti er ætlað og
viðvart hefir verið gert um það, koma
um skrúðhúsdyr laust fyrir kl. 12.
Nýr botnvörpungur.
Hlutafélagið ísland kvað hafa í
hyggju að fá sér nýjan botnvörpung.
Það á undir botnvörpunginn Marz.
Hefir hann borgað sig mjög vel —
og mun hlutafélagið nú eiga mikinn
hluta í honum.
Það er íslands banki, sem kvað
ætla að lána félaginu það fé, sem til
kaupanna þarf. Er það ekkert smá-
ræði — liklega /y0,000 kr.
Þurkuð:
Ekki svaravert.
Ritstj. Lögr. lýsir því yfir í síðasta
blaði, að hann telji það ekki svara vert,
sem A. J. Johnson bar upp á hann í
síðustu ísafold:
að hann hejði spunnið upp Jrá rót-
um vlsvitandi ósannindi og Jlutt pau i
blaði sínu!
Telja aðstandendur Lögréttu þetta
ekki heldur svara vert?
Kunna þeir því vel, að ritstjóri blaðs-
ins verði að liggja undir því ámæli:
að vera opinber, vlsvítandi ósanninda-
maður ?
Kunna flokksm'enn ritstjórans því
vel?
Kunna lesendur blaðsins þvi vel?
Hvernig stendur á því, að ritstj.
þegir og hefir undanbrögð?
Er áburðurinn sannur?
Hefir ritstj. Jrá rótum skrökvað
því, að A. J. Johnson hafi sent sér
blöð og greinar, og meira að segja
gert honum upp orð »á gásalöppum*,
sem enginn stafur er fyrir?
Hann hejir haft tækifæri til að bera
það af sér.
En ekki gert það.
Og geri hann það ekki — og það
undir eins — hlýtur stimpillinn að
festast við hann: opinber, vísvitandi ó-
sannindamaður.
Tlæsta bíað á miðvikudag
frá 1. október til leigu i
Bankastræti 14.
-fatatauin,
nýir litir, eru komin
í
Verzlunina
Björn Kristjánsson.
Stór og björt
sölubúð
við fjölförnustu götu bæjarins til leigu
frá i. október. — Ritstjóri ávísar.
Duglegur piltur,
15—16 ára, getur fengið atvinnu við
verzlun hér í bænum. Eiginhandar
umsókn, með meðmælum frá skóla-
stjóra, þar er pilturinn hefir flært, send-
ist ritstjóra, merkt: »PiItur*.
Ollufatnaðurinn
margeftirspurði kominn aftur í verzl.
Jóns Þórðarsonar.
Tilboð óskast
í gröft og uppfyllingu á c. 200 álna
löngum skurði og c. 2 ál. djúpum.
Nánari upplýsingar hjá
Th. Thorsteinsson.
Epli,
Aprikoser,
K j ötseiðisteningar
Drueagurkur og
nýkomið í
Verzl. BREIÐABLIK,
Lækjargötu 10 A
Sömuleiðis gott og ódýrt reyktóbak,
vindlar og sigarettur.
Paris Mysterier.
Sá, sem hefir að láni Tredie Del af
Paris Mysterier, Roman af Eugéne
Súe, er beðinn að skila honum hið
fyrsta til Borgpórs Jósejssonar Laugav. 11
Nýsilfurbúinn baukui* fund-
inn í gær á Mosfellssveitarveginum.
Eigandi vitji hans til Fríkirkjuprests-
ins mót borgun þessarar auglýsingar.
Taða til sölu á Lauganesspítalan-
um.___________
Úrval af lifandi blómum sel eg
nú með niðursettu verði. Laugav. 12.
Svanl. Benediktsdóttir.
(5 og 6 herbergi)
til leigu á góðum stað í bænum.
Upplýsingar í verzl. Jóns Þórðarsonar.
Brúkuð ísl. frímerki
kaupir mjög háu verði Kristmann J.
Guðmundsson, Laugaveg 22 A.
Tapast hefir jarpskjóttur hestur
á íþróltamótinu við Þjórsárbrú dálítið
kryppuvaxinn, hann á vera aljárnaður
með fjögra nagla haldi, mark veit eg
ekki um, vakur og þægilegur. Ef
einhver skyldi verða var við svona
hest, er hann vinsamlegast beðinn að
koma honum til Ólafs Isleifssonar við
Þjórsárbrú.
Elías Steinsson, Oddhól.
Beit fyrir hesta fæst á Ey-
vindarstöðum nú þegar og fram á
vetur.
Til leigu frá 1. október 4 her-
bergja íbúð ásamt eldhúsi hjá undir-
skrifuðum.
H. Hafliðason, Smiðjustíg 6.
Reiðhross til sölu á Eyvindar-
stöðum nú þegar.