Lesbók Morgunblaðsins - 21.08.1999, Page 8
ÞEGAR farið er norður eftir Hafnargöt-
unni, sem er aðalgatan í miðbæ Keflavík-
ur, er komið á svæðið þar sem byggð hófst í
Keflavík. Þar sem standa tvö rauðmáluð
gömul hús, er upphaf verzlunarstaðarins. í
daglegu tali eru þau nefnd Duushúsin og er
lofsvert að þeim er vel við haldið og verður
senn fundið hlutverk við hæfi. Húsið til
vinstri á myndinni er kallað Gamfa búðin.
Hans Duus, umsvifamikill kaupmaður í
Keflavík á síðustu öld, byggði það á þessum
stað 1871. Verzlunin var á neðri hæðinni, en
á efri hæð var íbúð assistentanna. Nafnið,
Gamla búðin, er til komið vegna þess að á
árunum 1890-1900 keypti Duusverzlun tvær
aðrar verzlanir í Keflavík, Fischersverzlun
og Knutzonsverzlun, og flutti þá sína verzl-
un yfir í Fischershús. Eftir það var þetta
hús nefnt Gamla búðin.
Til hægri á myndinni er Bryggjuhúsið.
Það er samskonar hús og Bryggjuhúsið sem
stóð við enda Aðalstrætis í Reykjavík, enda
byggði Duus þau bæði. Bryggjuhúsið í
Keflavík var byggt 1877 uppúr tveimur eldri
pakkhúsum og stóð annað þeirra á þessum
stað, svo segja má að Bryggjuhúsið hafi
einnig staðið þama frá upphafi. Fram af
KAFFI DUUS við smábátahöfnina í
Keflavík.
Bryggjuhúsinu var bryggja þar sem vörum
var skipað upp.
Gamla búðin og Bryggjuhúsið eru í eigu
bæjarins, en sem stendur eru þau ekki not-
uð. Endurgerð að innanverðu er hafin og
stendur til að Byggðasafnið flytji í Bryggju-
húsið með tímanum, _en ekki er enn ákveðið
til hvers Gamla búðin verður notuð. Gæti
hugsast að það yrði eitthvað í tengslum við
ferðaþjónustu. I viðbyggingu við Bryggju-
húsið var elsta kvikmyndahús Keflavíkur
1923-24. Elínmundur Ólafsson sem átti húsið
þá, byggði yfir port sem fyrir var og eftir að
Fjalakötturinn í Reykjavík var rifinn er
þetta elzta kvikmyndahús landsins.
Upp af Duushúsunum er grasi vaxinn hóll.
Þar er bæjarstæði hins foma Keflavíkur-
bæjar, sem rifinn var seint á síðustu öld og
tóftunum jafnað út.
GROFIN I
KEFLAVÍK
OGGÖMLU
HÚSIN
»
LJÓSMYNDIR OG TEXTAR: GÍSLI SIGURÐSSON
AF MYNDINNI má í fyrsta lagi sjá að
húsið Skólavegur 1 er ekki venjulegt
íbúðarhús og í öðru lagi að höfundur þess
hefur haft góða tilfinningu fyrir formi og
hlutföllum. Það kom því ekki á óvart þegar
athugun leiddi í ljós að sá sem teiknaði
húsið er Rögnvaldur Ólafsson, fyrsti ís-
lenzki arkitektinn, sem teiknaði nokkrar
frábærar byggingar í byrjun aldarinnar,
Húsavíkurkirkju og Vífilsstaðaspítalann
þar á meðal. Húsið á myndinni er eitt af
eldri húsum Keflavíkur: Barnaskólinn, sem
byggður var 1911. Jafnframt er skólahúsið
elzta steinsteypta húsið í bænum, 163 fer-
metrar á tveimur hæðum; sú efri undir
súð. Á sínum tíma kostaði byggingin 13
þúsund krónur og leysti af hólmi lítið
barnaskólahús við Íshússtíg, sem hafði ver-
ið notað síðan 1895.
Húsið hefur verið notað til kennslu fram
til þessa; undanfarin ár til smábarna-
kennslu. Óhætt mun að slá því fostu að í
þessu húsi hafi allir núlifandi og innfæddir
Keflvíkingar stundað nám og ugglaust ein-
►
hverntíma verið þröngt setinn bekkurinn,
en auk kennslustofa á jarðhæð eru tvær
uppi, sín í hvorum enda rishæðarinnar. Sú
hugmynd hefur verið viðruð að Bamaskóla-
húsið verði „Höfði“ Reykjanesbæjar í fram-
tíðinni, notað fyrir fundarhöld og móttökur.
Að utanverðu virðíst húsinu vel við hald-
ið, en þegar skoðaðar eru gamlar myndir
má sjá að gerðar hafa verið breytingar og
þá ekki gengið fram með þeirri gætni sem
eina verk Rögnvaldar Ólafssonar í bænum
verðskuldar. Upphaflega voru stórir kross-
póstar í gluggum, svo og aðrir smærri. Ein-
hverntíma hafa gluggarnir verið endurnýj-
aðir og þá ekki hirt um að hafa þá í upp-
runalegri mynd, heldur með jafnri pósta-
og rúðustærð.
Um 1960 voru gerðar lítilsháttar breyt-
ingar á útlitinu. Dyr sem verið höfðu á gafl-
inum sem sést á myndinni voru lagðar nið-
ur og þar eru í staðinn komnir tveir glugg-
ar, en inngangurinn var færður á suður-
gaflinn. Reykháfur sem verið hafði á húsinu
var þá brotinn niður að ástæðulausu.
• 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 21. ÁGÚST 1999