Lesbók Morgunblaðsins - 21.08.1999, Side 2
Handverksdagur í Árbæjarsafni
HANDVERK verður í hávegum haft á kynnast þjóðlegum hefðum og faglegu
handverksdegi í Árbæjarsafni á morgun, handverki. Myndin er tekin í eldsmiðjunni
sunnudag. Þá gefst gestum tækifæri til að í Árbæjarsafni.
HEKLA Á GEISLAPLÖTU
SÆNSKUR
ORGANISTI
í HALL-
GRÍMSKIRKJU
NÆSTSÍÐASTA helgi Kirkjulistahá-
tíðar í Hallgrímskirkju fer nú í hönd,
og á sunnudagskvöld kl. 20.30 verða
þar tónleikar með sænska organistan-
um Lars Andersson frá Stokkhólmi.
Á efnisskrá Anderssons eru fímm
verk. Fyrst leikur hann 6. þáttinn úr
Les corps glorieus eftir Olivier Messi-
aen. Þetta verk skrifaði Messiaen árið
1939 og í 6. þættinum lýsir hann gleði
og hreinleika hinna upprisnu líkama í
himneskri birtu. Eftir Bach leikur
hann sálmforleikinn Schmúcke dich, o
liebe Seele og Prelúdíu og fúgu í Es-
dúr. Þetta er með rismestu prelúdíum
og fúgum Bachs, m.a. eina fimm-
radda orgelfúga Bachs. Bæði prelúdí-
an og fúgan hylla hina heilögu þrenn-
ingu: þrisvar sinnum þrjú b sem for-
merki, þrjú stef bæði í prelúdíu og
fúgu. Eftir franska tónskáldið Jehan
Aiain leikur hann Aðra fantasíu sem
sýnir sterk áhrif frá hljómum og hryn
Austurlanda í verkum AJains. Hann
lést í byrjun síðari heimsstyrjaldar-
innar, 29 ára gamall. Síðasta verkið á
efnisskránni er Sinfónísk fantasía og
fúga eftir Max Reger sem hann skrif-
aði árið 1901. Reger hefur sagt að In-
ferno (Víti) eftir Dante væri hug-
myndin að verkinu, og er það því oft
kallað Vítisfantasían.
Lars Andersson fæddist árið 1967 í
Járfálla, rétt hjá Stokkhólmi í Sví-
þjóð. Hann stundaði nám við Konung-
lega tónlistarháskólann í Stokkhólmi,
fyrst við kirkjutónlistardeildina m.a.
hjá Hans Fagius og Anders Bondem-
an og síðan í einleikaradeildinni hjá
Erik Boström og Mats Áberg. Þá hef-
ur hann einnig stundað nám hjá Naji
Hakim í París. Lars Andersson hefur
haldið fjölda tónleika og leikið með
kórum víða um Evrópu og í Banda-
ríkjunum. Hann hefur leikið inn á
margar geislaplötur og gert upptökur
fyrir Sænska ríkisútvarpið. Lars And-
ersson er organisti og kórstjóri við
kirkjuna í Járfálla og kennari í orgel-
einleik við Ersta-Stora Sköndal há-
skólann.
SÆNSKA útgáfufyrirtækið BIS hefur gefíð
út geislaplötu með verkum Jóns Leifs,
leiknum af Sinfóníuhljómsveit íslands undir
stjóm En Shao.
I kynningu með plötunni segir Árni
Heimir Ingólfsson, að verkin spanni svo að
segja alla starfsævi Jóns Leifs. „Elzta verk-
ið (svítuna úr Galdra-Lofti op. 6a) hóf Jón
að semja á unglingsárum sínum, en þegar
hann lauk við Hinstu kveðju op. 53 átti hann
innan við sjö ár ólifuð. Verkin gefa því góða
mynd af þroskaferli tónskáldsins, og eru
jafnframt ágæt dæmi um hversu fjölbreytt
stflbrigði er að finna í verkum Jóns, frá
trylltri eldgoslýsingunni í Heklu til kyrr-
látrar hljómadýrðarinnar í Requiem op.
33.“
Auk framangreindra verka eru á þessari
plötu Minni Islands og Endurskin úr norðri.
Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola
cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar
syngja í þremur verkanna, en platan var
tekin upp í Hallgrímskirkju í september í
fyrra og í febrúar sl.
RICHTER MESTI HUÓÐ-
FÆRALEIKARI ALDARINNAR
Sviatoslav Richter David Oistrakh Vladimir Horowitz
RÚSSNESKI píanóleikarinn Sviatoslav
Richter er mesti hljóðfæraleikari aldarinnar
að mati gagnrýnenda brezka tónlistarblaðs-
ins Classic CD. Gagnrýnendumir tilnefndu
hver þá 20 hljóðfæraleikara sem þeir telja
að verði minnzt sem mestu hljóðfæraleikara
aldarinnar og varð Richter þar efstur, en í
öðm og þriðja sæti urðu landar hans, David
Oistrakh, fiðluleikari og stjórnandi, og Vla-
dimir Horowitz píanóleikari.
Tímaritið telur upp þá 100 hljóðfæraleik-
ara sem flestar tilnefningar hlutu. í fjórða
sæti er spænski sellóleikarinn Pablo Casals
(1876-1973), fimmti er rússneski sellóleikar-
inn Mstislav Rostropovich (1927), þá kemur
bandariski fíðluleikarinn Yehudi Menuhin
(1916-1999), rússneski fiðluleikarinn Jascha
Heifetz (1899-1987) er sjöundi og næstir
honum koma; rússneski pianóleikarinn
Sergei Rachmaninov (1873-1943), kanadíski
píanóleikarinn Glenn Could (1932-1982) og
austurríski fiðluleikarinn Fritz Kreisler
(1875-1962) skipar tiunda sætið.
Síðan em taldir upp; austurríski píanó-
leikarinn Artur Schnabel (1882-1951),
pólski pfanóleikarinn Artur Rubinstein
(1887-1982), argentínski pfanóleikarinn
Martha Argerich (1941) er fremst kvenna
og sögð geta fyllt hvaða tónleikasal sem er í
heiminum. Næst henni kemur rúmenski pí-
anóleikarinn Dinu Lipatti (1917-1950, þá
chileanski píanóleikarinn Claudio Arrau
(1903-1991), brezki sellóleikarinn Jacque-
line du Pré (1945-1987) er í sextánda sæti
og næstur henni landi hennar, hornleikar-
inn Dennis Brain (1921-1957). Austurríski
píanóleikarinn Alfred Brendel (1931) er
næstur og þá koma tveir aðrir pianóleikar-
ar; Englendingurinn Clifford Curzon
(1907-1982) og Svisslcndingurinn Alfred
Cortot (1877-1962). Bandaríski fiðluleikar-
inn Isaac Stern skipar 21. sætið.
Af þeim sem em í 100 manna hópnum og
enn em á h'fi má nefna írska flautuleikar-
ann James Galway, sem er 25. í röðinni,
ísraelski fiðluleikar-
inn Itzhak Perlman
(27), þýzki fiðluleik-
arinn Anne-Sophie
Mutter (39), franski
organleikarinn
Marie-Claire Alain
(40), enski fiðlulcik-
arinn Nigel Kenn-
edy (44), Vladimir
Ashkenazy (62), en
hann var einnig í
hópi 100 mestu
hljómsveitarstjóra aldarinnar, þegar gagn-
rýnendur Classic CD völdu í þann hóp.
Rússneski pianóleikarinn Evgeny Kissin er
talinn númer 63 og sænski trompetleikar-
inn Hakan Hardenberger kemur fyrstur
Norðurlandabúa í 68. sæti og kanadíski pí-
anóleikarinn Marc-André Hamelin skipar
það 89.
í hundraðasta sæti er þýzki klarinettu-
leikarinn Sabine Meyer (1959) og banda-
rísku trompetleikararnir Miles Davis
(1926-1991) og Louis Armstrong
(1898-1971) skipa 92. og 99. sætið, en Louis
Armstrong var einnig í hópi þeirra 100
söngvara sem gagnrýnendur Classic CD
töldu fremsta á öldinni.
MENNING/
USTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn
Yfirlitssýning: verk Asmundar Sveinssonar.
Gallerí Stöðlakot
Guðný Svava Strandberg. Til 22. ágúst.
Gallerí Sævars Karis
Pétur Magnússon. Til 26. ágúst.
Gerðarsafn, Listasafn Kópavogs
List um list/forvarsla. Til 10. okt.
Vestur- og Austursalur: Björg Örvar og Dora
Bendixen. Neðri salir: Kolbrún Sigurðardóttir
og Inga Rún Harðardóttir. Til 29. ág.
Hallgrímskirkja
Georg Guðni Hauksson. Til 1. sept.
Hafnarborg
Sumarsýning á landslagsmálverkum í eigu
safnsins. Sverrissalur: Verk úr listaverkagjöf
hjónanna Sverris Magnússonar og Ingibjargar
Sigurjónsdóttur. Apótekið: Tré- og dúkristur
eftir Gunnar Ásgeir Hjaltason. Til 23. ágúst.
Ingólfsstræti 8, i8
Kjell Strandqvist. Til 5. sept.
íslensk grafík, Hafnarhúsinu
Bragi Ásgeirsson. Til 12. sept.
Kjarvalsstaðir
Vestursalur: Karel Appel. Austursalur: Verk
úr eigu safnsins. Til 29. ágúst.
Listasafn ASI
Ásmundarsalur: Stefán Jónsson. Gryíja: Bryn-
hildur Guðmundsdóttir. Arinstofa: Sýnishom
verka úr eigu safnsins. Til. 22. ágúst.
Listasafn Akureyrar
Hlynur Hallsson og Makoto Aida. Til 7. okt.
Listasafn Ámesinga, Selfossi
Eduardo Santiere, Faith Copeland og Elisabet
Jarsto. Til 22. ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn íslands
Yfirlitssýning á völdum sýnishornum af ís-
lenskri myndlist. Sumarsýning.
Mokkakaffi
Sara Björnsdóttir. Til 6. sept.
Rauði veggurinn, Laugavegi 13
Listahópurinn Artemisia. Til 5. sept.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar
Sumarsýningin Spor í sandinn.
Listhús Ófeigs
Samsýning þriggja listhúsa; Meistari Jakob,
Listhús Ofeigs og Inga Elín gallerí: 17 lista-
menn. Til 4. sept.
Norræna húsið
Ljósmyndir Kay Bergs. Til 22. ág. Anddyri:
Einar Vigfússon, Útskomir fuglar. Til 21. sept.
Nýlistasafnið
Gryfja og Forsalur: Oliver Comerford. Bjarti-
og Svartisalur: Kristveig Halldórsdóttir. Súm-
salur: Áslaug Thorlacius. Til 22. ágúst.
Safn Ásgríms Jónssonar
Sýning á verkum Iistamannsins. Til 29. ág.
Safnhúsið, Borgarfirði
Helga Magnúsdóttir. Til 19. sept.
Safnasafnið, Svalbarðsströnd
Ragnar Bjarnason, Hálfdán Björnsson, Gunn-
ar Amason, Svava Skúladóttir, Þór Vigfússon,
Óskar Beck. Handverk í Húnaþingi, 8 sýnend-
ur. Til 29. ágúst.
Sjórninjasafn íslands, Vesturgötu 8, Hafnarf.
Fiskurinn í list Sveins Bjömssonar. Til 15.
okt.
Stofnun Árna Magnússonar, Ámagarði v.
Suðurgötu
Handritasýning opin kl. 13-17 daglega til 31.
ágúst.
Þjóðarbókhlaðan
Ánddyri: Undir bláum sólarsali - Eggert
Ólafsson. Til 31. ágúst. List Inúita, Til 4. nóv.
TÓNLIST
Laugardagur
Hallgrímskirkja: Lars Andersson, organisti.
Kl. 12.
Sunnudagur
Hallgrímskirkja: Lars Andersson, organisti.
Kl. 20.30.
Þriðjudagur
Listasafn Siguijóns Ólafssonar: Angela Spohr
sópran og Fríða Sæmundsdóttir píanó. Kl.
20.30.
Miðvikudagur Salurinn, Kópavogi: CAPUT-
hópurinn. Kl. 20.30.
Fimmtudagur
Ilallgrímskirkja: Hádegistónleikar. Ki. 12.
LEIKLIST
Borgarleikhúsið: Litla hryllingsbúðin, lau.
21., fös. 27. ágúst.
fslenska Óperan: Hellisbúinn, fös. 27. ág.
Iðnó: Hádegisleikhúsið: 1000-eyja sósa, fim.
26., fös. 27. ág. Þjónn 1 súpunni, fim. 26., fös.
27. ágúst.
Loftkastalinn: S.O.S. Kabarett, lau. 21., fós.
27. ágúst.
Kaffileikhúsið, Hlaðvarpanum: Þar sem hún
beið og Kallið: Ragnheiður Skúladóttir leik-
kona, þríð. 24., mið. 25. ág.
Ferðaleikhúsið, Tjarnarhíó: Light
Nights: lau. 21., fim. 26. fós.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eft-
ir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa
borist bréflega eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á
miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, Menn-
ing/listir, Kringlunni 1,103 Rvík. Myndsendir:
5691222. Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. ÁGÚST 1999