Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1997, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1997, Blaðsíða 3
 IJESBÖK MORGUIVBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 3. TÖLUBLAÐ - 72. ÁRGANGUR EFNI A Stöng í Þjórsárdal var frægur bær og lengi hefur verið talað og skrifað um eitt bygg- ingarskeið þar, en nú leikur enginn vafi á því, segir Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson fornleifafræðingur, að búseta hefur verið þar frá lokum 9. aldar og fram á 13. öld. Ljósmyndasýning Blaðamannafélags íslands og Blaðaljós- myndarafélags íslands stendur yfir í Gerðarsafni í Kópavogi. Þar gefur að líta á þriðja hundrað myndir sem fylla báða aðalsýningarsali safnsins.Sýningin er fyrsti liðurinn í hátíðardagskrá í tilefni af því að í nóvember næstkomandi verða liðin eitt hundrað ár frá stofnun Biaða- mannafélags Islands. Tvær sýningar eru nú haldnar á myndverkum Hrings Jóhannessonar, myndlistarmanns, sem féll frá á síðasta ári, á Kjarvalsstöðum og í Listhúsinu Fold. Af þessu tilefni hefur Bragi Ásgeirsson skrifað grein, þar sem hann rifjar eitt og annað upp. Bragi seg- ir, að veigurinn í list Hrings Jóhannesson- ar séu þau fjölþættu brotabrot og óvæntu sjónarhorn sem hann fangaði í síbreyti- legri kviku og mögnuðum formunum og grómögnum náttúrunnar, þar sem mann- anna verka sér stað í bland. Auglýsingar eru sérstakt tungumál sem örva ímyndu- naraflið í nokkur augnablik. Þær vísa oft til fortíðar, en snúast alltaf um framtíðina og það sem hægt verður að gera og fá, segir greinarhöfundurinn, John Berger. Spike Lee er einn umdeildasti leikstjóri í Bandarikj- unum. Jónas Knútsson fjallar um feril hans og segir, að hvað sem öðru líði, sé það Spike Lee að þakka að aðrir blökku- menn; fjölmargir efnilegir leikarar og leiksljórar hafa fengið aðgang að Holly- wood. Schuberthótíð hefst í Garðabæ í dag. Þann 31. janúar næstkomandi eru 200 ár liðin frá fæðingu austurríska tónskáldsins, Franz Schu- berts. Af því tilefni hefur hollenski píanó- leikarinn og hljómsveitarstjórinn Gerrit Schuil efnt til tónlistarhátíðar þar sem fram koma um tuttugu innlendir og er- lendir listamenn. Frá 18. janúar til 31. maí verða haldnir níu tónleikar. WOLE SOYINKA SÍÐASTA LUKTIN Baldur Óskarsson þýddi Fölrauð ein sprunga í hörundi nætur deyjandi út — blóðroðinn smátt og smátt á leið frá stöð niður stíg og hjúpurinn skugginn horfinn úr dansi á ufsunum efra umlykur hana þéttu svikuiu djúpi en olíulyktin er lampi fóta hins auðmjúka lýðs er mann fram af manni á markaði stjáklar — heyr síðasta andvarp hins þolinmóða, á þessum annastað... Hún var kvöldstjarna kveikt í rifjahylki nöktu. Höfundurinn er nóbelsverölaunaskáld frá Nígeríu. Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af málverki Hrings Jóhannessonar; Þjóðhátíðarregni. AÐ TENGJA SIG VIÐ TÍMANN RABB Við áramót höfum við ríkari tilfinningu fyrir tíma en í erli hversdagsins. Þá sóp- ast að okkur minningar frá liðnum árum auk þess sem við reynum óhjá- kvæmilega að ráða dálítið í framtíðina. Að þessu sinni kom upp í huga mér gömul framtíðar- sýn sem ég hefði dregið upp fyrir rúmum fjórum áratugum. Hún var af sjálfri mér árið 2000. Ég sá fyrir mér roskna, virðu- lega konu með blómahatt og slör á leið í Tívolí í Vatnsmýrinni til að fagna 17. júní. Hún kjagaði dálítið stirðlega, eins og hálf- sextugar ömmur gerðu á þeim tíma, reyndi að sneiða hjá verstu drullupollunum og leiddi tvær feimnar telpur með hárborða sem hneigðu sig kurteislega fyrir kunnug- legum vegfaranda. Vegfarandinn tók ofan fyrir þrenningunni að þeirra tíma sið. Ekki þarf að taka fram að þessi kona á lítið skylt við þá sem situr í íþróttagalla og hamrar á tölvu í upphafi árs 1997 og verður áreiðanlega ekki að ösla um Vatn- smýrina með blómahatt eftir þrjú og hálft ár. Hvað þá verður veit enginn því að fram- tíðin er óráðin gáta eins og sjálfur tíminn sem vísindamenn, heimspekingar og skáld hafa glímt við frá ómunatíð en fáum veitt betur en Ása-Þór í glímunni við elli kerl- ingu. Og hvað sem öllum útreikningum og bollaleggingum líður er það eitt víst að við höfum yfir að ráða afmörkuðum tíma hér á jörð en stundum býsna lítinn ráðstöfunar- rétt yfir honum. Sá ráðstöfunarréttur er háður umhverfi og aðstæðum ogtekur aðeins til líðandi stundar. Fortíðin er geng- in, framtíðin óráðin - einungis andartakið er að einhveiju leyti á valdi okkar sjálfra. Og þó. Stundum er nefnilega eins og við getum endurskapað fortíðina og gætt hana lífi því og litum sem við kjósum helst. Minningarbrotið, sem ég riíjaði upp hér að framan, er nokkuð dæmigert fyrir hugs- unarhátt barna sem reyna að ráða í fram- tíðina. Þau gera sér grein fyrir því að sjálf eiga þau eftir að eldast og breytast en eru svo háð sinni eigin samtíð að breytingar á henni eru ekki teknar með í reikninginn. Sá sem elst upp við að Tívolí í Vatnsmýr- inni sé hápunktur tilverunnar og að karl- menn taki ofan fyrir virðulegum dömum getur ekki ímyndað sér annað en að þann- ig verði það líka í framtíðinni. Hann vakn- ar svo skyndilega upp við þá staðreynd að allt er breytt og gamlar myndir, sem hugurinn kallar ósjálfrátt fram, eru svo mjög á skjön við veruleikann að þær birt- ast eins og í spéspegli. Á slíkum stundum er sem allt hafi tekið stakkaskiptum nema maður sjálfur, - alger tímaskekkja á vit- lausum stað í tilverunni. Þá gæti verið freistandi að láta sogast inn í heim minn- inganna þegar tíminn stóð nánast kyrr og fólk átti sér afdrep gegn hraða og hávaða. Kannski væri ekki úr vegi að brýna sig gegn samtíðinni með því að fá sér blóma- hatt! Að minsta kosti hafa antíkverslanir sprottið upp eins og gorkúlur svo að fólk geti keypt sér andblæ liðinna ára, kyrr- stöðu og frið í krafti þess að peningar séu tími en ekki öfugt. Tíminn er samt flóknara fyrirbæri en svo en að hann geti gengið kaupum og sölum. Og þegar við köllum fram gamlar liugljúfar minningar hefur þessi harðstjóri farið sínum höndum um þær, teygt þær og togað á ýmsa lund. Bernskuminning, sem skaut upp kollinum fyrir áratug, lítur allt öðruvísi út núna og þegar við röbbuðum við systkini eða gamla vini um sameigin- lega atburði úr fortíðinni er stundum eins og þeir hafi verið á annarri plánetu. Annað- hvort hafa þeir steingleymt því sem við töldum mikilvægast eða sjá það í gerólíku ljósi. Fortíðin er nefnilega að einhveiju leyti á valdi okkar sjálfra því að við virð- umst geta hagrætt henni að vild og þess vegna er svo skelfing notalegt fyrir gam- alt fólk að taka sér þar bólfestu þegar áreiti andartaksins verður því um megn. En þá eru gömulu erfiðleikarnir oftast horfnir og við blasir endalaus kyrrstaða og hlýja. Trúlega er það eintóm blekking að tíminn hafi liðið eitthvað hægar áður en tækni- og fjölmiðlabyltingin kom til sögunnar? Streituvaldarnir hafa alltént verið nægir, ótti við náttúruhamfarir, haf- ís, gæftaleysi, sjóslys, drepsóttir og hung- urvofan á næsta leiti. Yfir allt þetta hefur tíminn lagt sína líknandi hönd. Flestir kannast við þá tilfinningu að vilja stöðva hjól tímans, láta gullvæg andartök endast til langframa eða hlaupa yfir tor- færur í lífi sínu með því að sleppa úr dög- um og vikum. Og margir eru sannfærðir um að þeir eigi ekkert erindi við samtíð sína, séu tímaskekkjur og leiksoppar í öldu- róti lífsins - að tíminn sé þeim óhallkvæm- ur. En hvað sem slíkum vangaveltum líður heldur tíminn áfram á nákvæmlega sama hátt og áður og kærir sig kollóttan um það sem okkur kann um hann að finnast. Við verðum nauðug viljug að samsama okkur flestum þeim breytingum sem hon- um fylgja - að öðrum kosti er hætta á að við dögum uppi sem tilfinningasljó nátt- tröll. Og lífsins kvöð og kjami er það að líða og kenna til í stormum sinna tíða. Þetta kvað Klettafjallaskáldið Stephan G. Stephansson í ljóði sínu Við vatnið árið 1893 og brýnir þar með fyrir okkur að líf okkar og tilfinningar eigi heima í samtíð- inni. Annað íslenskt skáld kveður dálítið öðru- vísi um tímann en það er líka angurvær tónn í kvæðinu A nýársdag sem Jónas Hallgrímsson orti árið 1845. Svo ris um aldir árið hvert um sig eilífðar lítið blóm í skini hreinu; mér er það svo sem ekki neitt í neinu, því tíminn vill ei tengja sig við mig. Þarna hittir Jónas naglann á höfuðið svo sem endranær og færir í einfaldan og und- urfagran búning hin sífelldu og tilgangs- lausu átök einstaklingsins við tímann en grunlaus um það að þarna vann hann nokk- urn varnarsigur á fyrirbærinu. Því takist einhveijum að höndla tímann um stundar- sakir og eiga erindi við framtíðina eru það listamenn sem snerta vitund okkar með næmi og snilld og gefa okkur þar með örlitla hlutdeild í eilífðinni. Þau andartök, sem við getum skapað í návist þeirra, eru löng og notaleg. Slík andartök geta gert samtíðina og þrautir hvunndagsins öllu bærilegri og þegar upp er staðið höfum við ef til vill öðlast nothæfa tengingu við tímann í allri sinni ómælisvídd. GUÐRÚN EGILSON. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 18. JANÚAR 1997 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.