Lesbók Morgunblaðsins - 21.08.1993, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 21.08.1993, Blaðsíða 8
ÓLAFUR REYNIR GUÐMUNDSSON Dauðans alvara Löngum mér dvaldist við hamrana háu hlustaði á fuglanna vonglaða kvak, leit ég á siglandi bátana bláu bærandi vatnið við áranna blak. Hve fagurt var lífið í Iaufunum hlýju það lýsti upp drungann sem nálgaðist brátt, og senn reyndu foreldrar fuglanna að nýju að fljúga eftir björg fyrir ungviðið smátt. Hættumar dyljast er deginum hallar dimman og fálkinn þar hörfa nú ei endirinn nálgast er eilífðin kallar enginn hér semur við himnanna þey. Já, löngum ég dvaldi við hamrana háu hlustaði á fuglana kvaka þá enn, þóttu mér hnjúkamir himnanna bláu hnykkla þá brúnir, og tárast í senn. Lífið er stríð þar sem gefst enginn griður gerir þar náttúran lífinu skil en fuglanna söngur og fossanna niður fegrar hér lífið við hamranna gil. Og lífið er vetur með vorinu góða þótt vindurinn feyki oft sumrinu burt og alltaf vex gróður við hamarinn hljóða ég heillast af ævinnar fjölæm jurt. Hamranna fuglinn sem hverfur og fer haltu nú áttum og reyndu að þreyja, það sannleikur var og það sannleikur er að sá sem hér fæðist, hann verður að deyja. Höfundur er nemi í Menntaskólanum í Reykjavík. KARLÍNA HÓLM Einleikur á hörpu Verndargyðjan Aþena stígur á svið. Stígur á svið líknarsystir með smyrsl í leirkeri. Hlustið: „sá sem er í samræmi við Alvaldið í verkinu mun vissulega sameinast því!“ Senn hljóma undur- tærir strengir Davíðssálma, harpan nýstilltí Við og við stakur hátónn: kallar klukknaport holtsins. Hljómurinn traust, ómurinn trú. Nálægð við von og áveitu kærleika hvar sem almættið kann að halda sig. Á altari vínbikar, afskorin RÓSIN. Innan stundar mun hún drúpa höfði í auðmýkt. Sem stendur á ég vingott við ofkrýnda rós. Vínrauð sú — ókunn angan —. Háttvís kinkar kolli RÓSIN, vakin — sofin ofar öllum heimsins sviðsljósum. Leikmynd og munir langt að komnir. Höfundur er hjúkrunarfræðingur. Engisprettuplága Smásaga eftir DORIS LESSING egntíminn var hagstæður þetta árið. Það rigndi hæfilega, einmitt, þegar komplöntumar þurftu á vætu að halda — eða það skildist Margréti af tali karlmannanna. Hún hafði aldrei sjálf- stæða skoðun á veðri eða þvíumlíku, vegna þess að jafneinfaldir hlutir kröfðust reynslu. Og hana hafði Margrét ekki. Karlmennimir voru Ríkarður, eigmmaður hennar og Stefán gamli, faðir hans, gamal- reyndur bóndi og þessir tveir áttu það til að stæla svo klukkustundum skipti um hvort regnið ylli skaða eða aðeins venjuleg- um óþægindum. Margrét hafði verið á bænum í þrjú ár. Enn skildi hún ekki hvers- vegna þau urðu ekki alveg gjaldþrota, þar sem karlmennimir ýjuðu aldrei góðu orði að veðrinu, jarðveginum eða stjórninni. En nú var hún farin að kynnast málfar- inu. Málfari bóndans. Og þau urðu aldrei gjaldþrota né heldur veralega rík. Þetta mjakaðist svona hjá þeim og þau höfðu vel til hnífs og skeiðar. Þau ræktuðu maís. Jörð þeirra var þijú þúsund ekmr á rindunum neðan við Zamb- esihæðirnar, hálent, þurrt og stormasamt landsvæði, kalt og rykugt á veturna, en nú á regntímanum léku um það heitar gufubylgjur, sem stigu upp af víðáttu- miklu laufþykkninu. Fallegt var þarna, bjartur og skínandi blár hvelfdist himinn- inn yfir landinu og svæðið fyrir neðan bylgjaðist ljósgrænt í hæðum og lægðum, en skarpir drættir hijóstragra fjalla blöstu við í tuttugu mílna fjarlægð handan árinn- ar. Birta loftsins skar hana í augun. Hún var ekki vön henni. Menn horfa ekki svo oft til lofts í borginni, þaðan sem hún kom. Og kvöldið, sem Ríkharður sagði: „Stjómin hefur sent út viðvöran um að von sé á engisprettum frá ræktunarstöðv- um fyrir norðan,“ varð fyrsta viðbragð hennar að horfa á trén umhverfis. Skordýr — og það í stórhópum. Hræðilegt! En Rík- arður og gamli maðurinn horfðu upp yfír fjöllin. „Við höfum ekki lent í engisprettum í sjö ár,“ sögðu þeir. „Engisprettur koma alltaf með vissu millibili." Og síðan: „Þarna fer þá uppskeran okkar þetta árið.“ En þeir héldu áfram störfum sínum á bænum eins og vant var, þangað til dag nokkum þegar þeir vora á leið sinni heim traðimar til miðdegishvfldar, að Stefán gamli stansaði og benti upp í loftið: „Sjáið, sjáið, þama eru þær.“ Ut hljóp Margrét til þeirra að horfa upp í hæðimar og út kom vinnufólkið úr eldhús- inu. Öll stóðu þau og störðu. Yfir tindóttum fjallabrúnunum var ryðlitt ský. Engisprett- ur! Þarna komu þær. Ríkharður kallaði strax í eldastrákinn og Stefán gamli æpti á húsþjóninn. Elda- strákurinn hljóp til og tók að beija gamla plógblaðið, sem hékk á tijágrein og var notað til að gefa vinnufólkinu til kynna að hætta væri á ferðum. Húsþjónninn hljóp út í geymslu og sótti niðursuðudósir og allan gamlan málm, sem fyrirfannst. Allur bærinn glumdi af málmslögum og þau sáu verkamennina koma þjótandi út úr kofa- þyrpingunum og benda í átt til hæðanna og hrópa í æsingi. Brátt vora þeir allir komnir upp að íbúðarhúsinu og Ríkarður og Stefán gamli skipuðu þeim fyrir verk- um. Flýtið ykkur, flýtið ykkur, flýtið ykkur! Og burtu hlupu þeir og hvítu mennimir tveir með þeim og innan fárra mínútna sá Margrét reyk stíga upp allt umhverfis bæjarlandið. Þar hafði verið komið fyrir hrúgum af viði og grasi. Þama voru sjö moldarskikar, gulir, blóðrauðir og bleikir, þar sem ungmaísinn var nýkominn upp og myndaði Ijósgræna slæðu og nú stigu þykk reykjarský upp umhverfis hvern skika. Núna voru mennimir að kasta votu laufi á eldana til þess að reykurinn yrði rammur og svartur. Margrét horfði yfir til hæðanna. Þaðan sást nálgast langt ský, lágt á lofti, ennþá var það ryðlitt og belgdist út meðan hún horfði á það. Síminn hringdi. Nágrannar, fljótt, fljótt, — engispretturnar koma! Uppskera Smiths gamla var etin niður í rót. Fljótir, kveikið elda. Auðvitað vonuðu allir bændurnir að engisprettumar færa framhjá sínum bæ, en maður varð að vera heiðarlegur og Það dimmdi í lofti, kynlegt rökkur í glaða sólskini. Þetta líktist sinubruna, þegar loftið fyllist af reyk. Sólin brýst fram afmynduð eins og stór, heit appelsína. Loftið var þrúgandi eins og í stormviðri. Engispretturnar nálguðust óðfluga. vara hina við. Alls staðar í sveitinni, á fimmtíu mflna svæði, kom upp aragrúi af eldum. Margrét svaraði í símann, en stóð þess á milli og fylgdist með engisprettun- um. Það dimmdi í lofti, kynlegt rökkur í glaða sólskini. Þetta líktist sinubrana, þeg- ar loftið fyllist af reyk. Sólin brýst fram afmynduð eins og stór, heit appelsína. Loftið var þrúgandi eins og í stormviðri. Engispretturnar nálguðust óðfluga. Nú var helmingur himinsins myrkvaður. Að baki rauðleitu skýjaslæðunnar fremst, þar sem vora framsveitir fylkingarinnar, birtist aðalflokkurinn sem þykkt, svart ský, sem virtist næstum ná til sólarinnar sjálfrar. Margrét velti fyrir sér hvað hún gæti gert til hjálpar. Hún vissi það ekki. En þá kom Stefán gamli heim frá ökranum. „Við eram búin að vera, Margrét, búin að vera. Þessir vargar eta hvert strá á jörð- inni á hálftíma. Og aðeins komið fram yfir miðjan dag, — ef okkur tekst að fram- leiða nógan reyk og nógan hávaða fyrir sólsetur, setjast þær kannski einhvers staðar annars staðar. Settu ketilinn yfír. Þetta er þorstlátt starf.“ Margrét fór því til eldhúss og skaraði í eldinn og hitaði vatnið. Hún heyrði nú á þunnu eldhúsþakinu bresti og hvelli í engi- sprettunum, sem skullu á því og klórið í þeim, er þær rannu fram af. Þetta vora þær fyrstu. Neðan af ökranum glumdu slögin, þegar barið var í hundruð olíutunna eða málmbúta. Stefán beið óþolinmóður meðan steinolíufata var fyllt af tei, heitu, sætu, appelsínugulu og önnur af vatni. A meðan sagði hann frá því, er hann var etinn út á gaddinn af engisgrettuherskör- um fyrir um tuttugu áram. Á meðan hann var að tala, tók hann olíufötumar, sína í hvora hönd, en þær vora tengdar saman með spýtum í kross og skokkaði af stað niður traðirnar til þyrstra verkamannanna. Þegar hér var komið, skullu engisprettum- ar eins og hagl á eldhúsþakinu. Það var sem stormhvinur. Margrét horfði út og sá að loftið var svart af flögrandi skordýram, hún beit saman tönnunum og hljóp út í þetta, það sem karlamir gátu, gat hún líka. Upp yfir henni var loftið þykkt, alls staðar voru engisprettur. Þær skullu á henni og hún sópaði þeim í burtu, þungum, rauð- brúnum skepnum, sem horfðu á hana glansandi gamalmennisaugum og loddu við hana á sagtenntum fótum. Full við- bjóðs hélt hún niðri í sér andanum og hljóp inn í húsið. Þar var enn líkara að hvas- sviðri ríkti. Það glumdi og söng í járnþak- inu og hávaðinn frá málminum niðri á ökrunum var sem þrumur. Úti voru trén undarleg og kyrr, klístrug af skordýram, greinamar beygðar að jörðu. Jarðvegurinn virtist hreyfast, alls staðar skriðu engi- sprettur, hún sá alls ekki út á akrana svo þykkur var sveimurinn. í átt til fjallanna var hann eins og dynjandi regn — og þótt hún gætti sérstaklega að, sá hún alls ekki til sólar. Það var hálfgerð nótt, óeðlilegt myrkur. Svo heyrðist hár brestur í rannun- um, grein hafði brotnað af. Og önnur. Tré niðri í brekkunni hallaðist og lagðist þung- lega á jörðina. Maður kom hlaupandi gegnum haglél skordýranna. Þá vantaði meira te og vatn. Hún sá þeim fyrir því. Hún hélt eldinum logandi og fyllti fotumar drykk og svo var klukkan orðin ijögur eftir hádegi og engi- sprettumar höfðu verið á sveimi í tvo klukkutíma. Aftur kom Stefán gamli upp- eftir og marði engisprettur undir fótum sér í hveiju skrefí og þær loddu við hann frá hvirfli til ilja. Hann bölvaði og ragnaði og lamdi þær frá sér með gamla hattinum sínum. Hann stansaði snöggt í dyrunum og sópaði af sér skordýranum í flýti og henti þeim í burtu og stökk síðan inn í engisprettulausa dagstofuna. „Öll uppskera er eyðilögð. Ekkert eft- ir,“ sagði hann. En ennþá glumdu málmslögin og menn- imir hrópuðu og Margrét spurði: „Hvers vegna haldið þið þessu þá áfram?“ „Aðalsveimurinn hefur ekki sest. Þær eru þungar af eggjum. Þær era að leita sér að stað til að setjast og verpa. Nú skiptir öllu máli áð forða því að aðalflokk- urinn setjist að á okkar landi. Ef þær fá tækifæri til að verpa, mun ungviðið éta

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.