Lesbók Morgunblaðsins - 27.08.1988, Blaðsíða 21

Lesbók Morgunblaðsins - 27.08.1988, Blaðsíða 21
HELSINGJAEYRI - með Krónborgarkastala Hamlets Fjarlægðir eru stuttar í Danmörku og gaman að skreppa í dags-eða helgarferðir út frá Kaupmannahöfn. Helsingjaeyri á Norður-Sjálandi er 45 km frá Kaup- mannahöfn. Borgin varðveitir sagnaríka fortíð meðal annars í gömlum miðbæjar- kjarna og borgarvirkjum Krónborgarkast- ala, sem er sögusvið Hamlets. Aðeins 20 mínútna sigling er yfir sundið til Hels- ingjaborgar í Sviþjóð og feijur ganga á milli eins og strætisvagnar. Helsingjaeyri var um tíma stærsta og mikilvægasta borg Danmerkur, alþjóðleg borg vegna legu sinnar og á margan hátt sambærileg við höfuðborgina. Helsingjaeyri hefur bæði verið nefnd ELSINORE af sjófarendum, en líka „Gullegg danska kon- ungsins“, sem tetfa má rétt- nefni þar sem borgin „malaði grull“ fyrr á öldum, þegar allir er um sundið sigldu þurftu að borga toll til Krónborgarkast- ala. Aðeins 35 mínútur frá Kaupmannahöfn Það er aðeins 35 mínútna lest- arferð til Helsingjaeyrar frá mið- bæ Kaupmannahafnar, yfir hlý- leg, skógivaxin svæði þar sem byggðin hverfur næstum í skógin- um og rétt glittir í sendna strönd- ina. I helgarferð er gaman að dvelja á Hótel Marienlyst, sem er Hótel Marienlyst. virðulegt strandhótel í dönskum hallarstíl, þar sem myndir af dönsku konungshjónunum við op- inberar móttökur tiginna gesta til Danmerkur prýða veggi — má þar sjá meðal annarra frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands. Þar dunar dans um helgar í Marienlyst dunar dans um helgar. Þar er góð innisundlaug, aðstaða til heilsuræktar og „mini- golf“. Mikið er lagt upp úr góðum mat, framreiddum í samræmi við hughrif staðarins — hópar geta beðið um Krónborgarkvöld og þá er allt sett á svið í anda Hamlets og Ófelíu. Það er hvflandi að ganga eftir ströndinni, eftir skóg- arstígunum, meðfram hallarsík- inu og vindubrúnni að Krónborg- arkastala, en tumar hans, inn- gangar og falleg staðsetning við innsiglinguna til Helsingjaeyrar laða gesti til inngöngu. Kastalinn geymir nú safn um konunglegt hervirki er skattlagði allar sigling- ar um sundið — skattur er síðar var nefndur „400 ára löglegt sjór- án“. Hamlet á sviðinu Sviðsetning á Hamlet í sínu rétta umhverfi þykir alltaf merki- leg og þessa dagana stendur yfir sýning á leikritinu í Krónborgar- kastala, með enskum gestaleikur- um. Konunglegar íbúðir, mál- verkasöfn og geysistór danssalur sýna mikinn íburð hjá grannþjóð — á sama tíma og við bjuggum í torfkofum. Kastalinn geymir líka fróðlegt sjóminjasafn og fallega sjómannakirkju. Á eftir safn- göngu er notalegt að fá sér kaffi- sopa í litla varðhúsinu, sem hefur verið breytt í veitingahús. Iðandi frístundalíf við höfnina Frá liðnum tíma yfir í iðandi Derek Jacoby lék Hamlet í Krónborg 1979 — núna sviðset- ur hann leikritið. frístundalífið við höfnina, þar sem Danir og Svíar mætast í siglingum um sundið. Á sunnudegi sést hér hjólreiðafólk með körfur — böm að eltast við maríuhænur á sjávar- klöppum — menn að skoða auglýs- ingar um bátasölu, hengdar upp á veggi að gömlum sið. En tómar bjórflöskur á hafnarbakkanum bera þess þögult vitni að margir hvolfa sér um of niður í lífsnautn- ina og því miður er bjórdrykkjan hér oft vandamál um helgar. Bátalífið forvitnilegt Sjólax og rækjur bragðast vel í ferskri sjávarlykt á bryggjunni hjá veitingahúsinu Kabyssunni — frá káetum bátanna berast harm- onikutónar og vindstögin syngja í þúsundum siglutijáa. Við feijuna Krónborgarkastali þar sem Holger danski vakir yfir. }rfír til Svíþjóðar er biðröð af bflum og hjólhýsum — margir að stefna í sumarfrí til nágrannanna, en nokkrir stoppa líka á tjaldstæði við ströndina þar sem er góð að- staða. Óhætt er að mæla helgar- dvöl á Helsingjaeyri í fallegu umhverfi, en þar er forvitnilegt að koma við, þó ekki sé til annars en skoða bátalífið hjá frændum okkar Dönum. Dvöl á mann í tveggja manna herbergi með morgunmat í Hótel Marienlyst kostar frá um 1.800 íslenskum krónum. Að sigla með bátnum yfir til Hels- ingjaborgar kostar 117 krónur islenskar aðra leiðina. ------- HÓPFERÐABÍLAR - ALLAR STÆRDIR SÍMAR 82625 685055 Vs /á? er liótel fyrir þig Velkominá HÓTEL W ÖÍ2K HVERAGERÐI sími 99-4700. Þú svalar lestrarþörf dagsins ' jtóum Moggans! LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 27. ÁGÚST 1988 21

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.