Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1988, Blaðsíða 21

Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1988, Blaðsíða 21
mánaðartíma. Skoðunarferðir frá hveijum áfangastað með staðarfróðum mönnum gefa glögga mynd af byggðakjömum og nágrenni. Jafnvel má hugsa sér að ferðalangar taki með sér eða leigi hjól á hveijum stað, þannig að ekki sé lagt í meiri kostnað við samgöngur. Eins dags flugferðir með staðarleiðsögn Einnig er boðið upp á eins dags ferðir frá Reykjavík til ísa- fjarðar, Egilsstaða, Vestmanna- eyja og Akureyrar — flogið frá Reykjavík að morgni og komið aftur að kvöldi. Sérstakar skoð- unarferðir _eru í tengslum við ferðimar. Á Akureyri er boðið Að fljúga hrínginn með Flugleiðum Fáir íslendingar — erlendir ferðamenn eru betur meðvit- aðir — gera sér grein fyrir ferðamöguleikum Flugleiða innanlands, enda eru farnar 130 áætlunarferðir vikulega frá Reykjavík til tíu áfanga- staða. Flestir íslenskir ferða- menn nýta einkabílinn til ferðalaga — til dæmis til að aka hringinn með innskotum í sumarleyfinu. Vissuiega gef- ur einkabíllinn marga val- kosti, en oft er verið að eltast við sólina, sem er annaðhvort á undan eða eftir á veginum! Ferðin er því stundum farin í töluverðri streitu — keppst við að ná áfangastöðum — lítið stoppað á milli og ferðalangar koma þreyttir heim. Gaman er að velta hér upp tiltölulega nýjum ferðavalkostum, sem Flugleiðir bjóða upp á, til dæmis að kaupa hringmiða til fjögurra helstu landshorna- bæjanna — Akureyrar — ísa- fjarðar — Egilsstaða og Hafn- ar. Hringflug innan mánaðar Hægt er að byija á hringnum hvar sem er og fljúga í hvaða átt sem er — byija í Reykjavík eða hinum stöðunum og taka hringinn eftir vild. Hringmiðinn gildir í einn mánuð, þannig að hægt er velja staðina eftir því hvar sólin skín eða dvelja mis- jafnlega lengi á stöðunum innan upp á fjóra valkosti — ferð til Grímseyjar — til Hríseyjar — að Mývatni og út á Ólafsijarðarm- úla. Á Isafirði er leiðsögn um bæinn, síðan farið um Hnífsdal — Bolungarvík — Seljalandsdal og Súðavík. Á Egilsstöðum er skógræktarstöðin á Hallorms- stað heimsótt, ekið meðfram fossaföllum Lagarfljóts og Seyð- isfjarðarbær skoðaður. I Vest- mannaeyjum er ekið um Heima- ey og síðan farið í bátsferð um Smáeyja-klasann. Flug — rúta Eins og kemur fram á grein- inni„Hvers vegna Rútudagur", þá er samtenging ferðaþjónustu- aðila alltaf að gefa betri og fjöl- breyttari ferðamöguleika. Rútu- ferðir og áætlanir minni flugfé- laga tengjast oft skemmtilega við áætlun Flugleiða. Með því að undirbúa vel hveija ferð í samvinnu við þjónustuskrifstofur Flugleiða og ferðaskrifstofur getur komið út hið skemmtileg- asta ferðalag á stuttum tíma. Ferðatíminn er vissulega dýr- mætur innanlands á okkar stutta, bjarta sumri. Gaman væri að heyra frá ykkur hvemig þið tengið saman flug, rútu, hjól og einkabíl eða um sumarfríið — skrifíð endilega í póstkassa Ferðablaðsins. Góða ferð! „Hringflugs-mánaðarmiðinn" kostar 10.500 krónur. Wsm:'' -.-Æst I' ' j I.. ■ ..’ ■ ... ." ■ - I:' .... A^jUÍjS C ... llívV' Húð sem hefur verið hlíft við sólböðum — á móti húð sem hefur skemmst af miklum sólböðum. Eru sólböð hættuleg? íslenskir ferðamenn sækjast mikið eftir sólböðum í sumar- leyfum. En við ættum að fara varlega. Samkvæmt nýjustu rannsóknum á ósónlagi jarðar er fólk eindregið varað við of miklum sólböðum. Yfir Suður- pólnum hefur myndast gat á ósónlaginu sem stækkar ár frá ári og getur haft mjög alvar- legar afleiðingar fyrir lífríki jarðar. Fyrir utan gatið hefur ósónlagið rýrnað um 6% árlega frá 1969-86. Rýrnunin er mest á norðlægum breiddargráðum yfir vetrartímann, allt upp í 9% á mánuði. Ósónlagið hlífir okkur við út- fjólubláum geislum sólar. Við rýmun ósónlagsins verður lífríki jarðar fyrir sterkri geislun, er veikir eðlilega mótstöðu gegn sjúkdómum, eykur líkur á húð- krabbameini og augnsjúkdómum. Útfjólubláir geislar skaða jurta- gróður og draga úr vexti. Sjávar- þörungar — undirstaða lífríkis sjávar — bíða einnig tjón. Yfir 100.000 manns deyja ár hvert úr húðkrabbameini og rýrnunin getur haft í för með sér 4% aukn- ingu á húðkrabbameini, sem þýð- ir að um næstu aldamót getur orðið hættulegt að vera mikið úti í sól — sérstaklega fyrir hvítan hörundslit. Ósónlaginu má jafna við „sólgleraugu“ jarðar. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11. JÚNÍ 1988 21

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.