Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1988, Blaðsíða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1988, Blaðsíða 19
LESBOK MJigj [rj g u n'Íb][l][aJ[ðí S: [jj [nj LSj 11.JÚNÍ 1988 FERÐ4BIáÐ LESBÓKAR Einkunnarorð dagsins eru: Ferðist um fsland Þarna bíða þeir í röðum. Hvers vegna rútudagur? ODDNÝ BJÖRGVINSDÓTTIR skrifar um ferðamál Rútudagurinn er í dag! Til liátíðabrigða blasir táknmynd Rútudagsins „RÚTAN“ við öll- um vegfarendum — uppi á þaki Umferðamiðstöðvar. Inn- an dyra í Umferðarmiðstöð keppast 25 aðilar — er standa að ferðalögum innanlands — við að kynna þjónustu sína, frá kl. 10.00 til kl. 18.00. Boðið er upp á margskonar skemmt- an á Rútudegi: Skoðunarferð- ir með leiðsögn; — dýrasýn- ingu og barnaskemmtun; — lúðrasveit leikur; — getraunir með tilheyrandi ferðavinning- um; — bráðfjöruga rútubíla- söngva með þátttöku gesta; — jafnvel fornbílasýningu! Eng- inn, sem lætur sig skipta ferðalög um landið okkar, má láta sig vanta á Rútudaginn. Einkunnarorð á hátíðisdegi rútanna eru — FERÐUMST UM ÍSLAND. íslenska rútan 54 sinnum umhverfis j örðina Uppi á annarri hæð Umferðar- miðstöðvar situr framkvæmda- stjóri BSÍ í 12 ár, Gunnar Sveins- son, og vakir yfir þéttriðnu rútu- neti íslensku sérleyfisbílanna, sem er ekki lítið verk — til dæm- is eru yfir 18.500 brottfarir, í júní, júlí, ágúst — rúturnar aka um 2.200.000 km eða 1.300 sinn- um umhverfis ísland og 54 sinn- um umhverfis jörðina! Sérleyfis- leiðir eru um 6.540 km og tengja saman 70 bæi og þorp — eða stóran hluta af þéttbýliskjörnum Islands. En hvers vegna Rútudagur, Gunnar? Til að vekja athygli á fyrirbær- inu „rúta“, sem er orðin svo sam- gróin umhverfinu, að þú veitir henni ekki athygli fyrr en hún verður sein og lætur bíða eftir sér; — vekja athygli á þeirri þjón- ustu, sem sérleyfisbílar veita og ómissandi þætti þeirra í sam- gönguneti Islands; — vekja at- hygli á samvinnu og samteng- ingu alira aðila er selja ferðaþjón- ustu innanlands, samtengdu hlutverki og ómissandi þætti hvers og eins. Rútan á tímamótum Hver er staða rútunnar sumarið 1988? Rútan stendur á ákveðnum tímamótum. Síðastliðin 2-3 ár hefur orðið um 10% árleg fækkun farþega með áætlunarbílum. Margir áhrifavaldar koma hér til: 1) Gífurlegur innflutningur einkabíla — fleiri en þjóðin hefur efni á, sem er önnur saga — 2) bætt vegakerfi, þannig að menn komast víðar á einkabílum — kemur að sjálfsögðu rútunum líka til góða — 3) mild veðrátta, sem auðveldar akstur einkabíla — ísing á Keflavíkurvegi og snjó-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.