Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1988, Page 19
M O R G U N B L A Ð S 1 N S
14. MAI 1988
FFMMBIáÐ
Hvað er
ferðamálastefna?
erðamálastefnu" ber öðru hvoru á góma hér á
landi og er þá oftast átt við hina opinberu ferða-
málastefnu stjórnvalda. í umræðum er gjarnan
auglýst eftir henni; rætt um að hana skorti. ís-
lensk ferðamálastefna hefur áður verið umtals-
efni á þessum vettvangi bæði af hálfu umsjónar-
manns Ferðablaðs en einnig af erlendum ferða-
þjónustuaðilum, sem hefur þótt ýmislegt skorta á
stefnumótum í íslenskum
ferðamálum. En hvað er ferða-
málastefna í raun og í hverju
er framkvæmd hennar fólgin?
Auðvitað er ekkert einhlitt svar
til við þessari spurningu, en
velta má fyrir sér ýmsum þátt-
um í framkvæmd hennar og
taka mið af ferðamálastefnu
nágrannaþj óða.
„Vöruúrval“ íslenskrar
ferðaþjónustu
ODDNÝ B.IÖRGVINSDÓTTIR
skrifar um ferðamál
„Ferðamálastefna" hlýtur að
vera fólgin í því að skilgreina
hvaða „vörur“ eða þjónustu
íslensk ferðaþjónusta býður til
sölu á erlendum og innlendum
markaði. „Söluvöruna" þarf að
skilgreina nákvæmlega, með for-
gangsröðun, með tilliti til mikil-
vægra þátta eins og umhverfis-
verndar og þess árstíma, sem
„varan“ er á boðstólum — kostn-
aði við söluna — með tilliti til
þess hvar viðskiptin fara fram og
fjölmörg önnur tengd atriði.
Sérþarfir hvers viðskipta-
lands
Skilgreina þarf megintilgang
viðskiptanna og aðalmarkmiðið á
hveijum árstíma fyrir sig. Hver
er áherslan, annars vegar gagn-
vart erlendum kaupendum og
hinsvegar gagnvart innlendum,
íslendingum í eigin landi. í fyrra
tilvikinu verðum við að gera okk-
ur grein fyrir — á hvaða lönd við
viljum leggja áherslu — hver eru
séreinkenni viðskiptalandanna,
eftir hvetju ferðaþjónustuheildsal-
ar eru að sækjast, þegar þeir leita
eftir viðskiptum við Islendinga.
Útflutningur ferðaþjón-
ustu
Skilgreina þarf, að sala á ferða-
þjónustu er í eðli sínu útflutning-
ur, þar sem sömu lögmál gilda og
í öðrum útflutningsgreinum.
Kanna þarf sérþarfir og aðstæður
á hveijum markaði, samkeppnis-
möguleika íslands, í samanburði
við annað sem er í boði og marka
stefnu eftir því. Eins og í annarri
markaðsstarfsemi, hlýtur að
þurfa að vinna og skipuleggja
nokkur ár fram í tímann, með
markvissum vinnubrögðum til að
ná sem bestum árangri til hags-
bóta fyrir ferðaþjónustuna og
þjóðarbúið í heild.
Núverandi stefnumótun
Er sú stefnumótun við lýði af
hálfu íslenskra ferðamálayfir-
valda að freista þess, markvisst
og skipulega, að skilgreina mark-
aðsstöðu okkar í hinum ýmsu við-
skiptalöndum íslenskrar ferða-
þjónustu; annarsvegar með hlið-
sjón af því sem við höfum fram
að bjóða; en hinsvegar að fengnu
rökstuddu mati á markaðsaðstæð-
um viðkomandi landa? Mjög mik-
ill vafi virðist leika á, að slfk
stefnumörkun sé við lýði, stefnu-
mótun, sem öll umrædd ferða-
málastefna hlýtur að hvíla á.
Dönsk ferðamálastefna
tUl990
Fróðlegt er að líta til frænda
okkar Dana, sem búa við háþró-
aða ferðaþjónustu. Fyrir skömmu
birti danska Ferðamálaráðið eins-
konar hvíta bók um stefnumið
ráðsins næstu þijú ár eða yfir
tímabilið 1988-90. Niðurstöður
ráðsins eru byggðar á ítarlegum
rannsóknum sérfræðinga og
starfsmanna ráðsins, sem miða
að því hvemig megi ná settum
markmiðum. Gerð er grein fyrir
frummarkmiðum ráðsins og skýr
markaðsúttekt kynnt. Markaðs-
aðstæðum er iýst í öllum helstu
viðskiptalöndum danskrar ferða-
þjónustu, allt frá nálægum Norð-
urlöndum tii fjarlægra markaða
eins og Norður-Ameríku og Jap-
an.
Kostur þessarar úttektar er, að
hún er skilmerkileg og auðskiljan-
leg. Hvíta bókin er aðeins 35 síður
með skýringarkortum. Ekki eru
tök á því hér að gera nákvæma
grein fyrir dönsku stefnumörkun-
inni, en með nokkrum dæmum
má skýra fyrir lesendum Ferða-
blaðsins, hvemig „ferðamála-
stefna" er framkvæmd í landi, þar
sem ferðaþjónusta er orðin „ai-
vöm“ atvinnugrein og starfað að