Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1988, Page 15

Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1988, Page 15
Eiríksjökull, ÓUa á striga, 1987. Ljósm/.i^sMk/Bja™ Margir hafa freistast til að láta fegurð landsins hjálpa sér í málverki Iþessari viku, nánar tiltekið 12.mai, hófst í Gallerí Borg sýning Sigurðar Kr. Ámasonar á olíu- og pastelmyndum. Hann á feril að baki sem spannar meira en 40 ár og hefur áður haldið 8 einkasýning- ar í Reykjavík og víðar. í vinnustofu hans á Seltjam- Rætt við SIGURÐ KR. ÁRNASON í tilefni sýningar, sem hann opnaði þann 12. þ.m. í Galleríi Borg. amesi, þar sem hann býr, má sjá að lands- lag er honum hugleikið myndefni. Auk þess hefur hann málað mannamyndir og komið við í abstraktlist, þótt ekki verði myndir af því tagi með á sýningunnmi. í símaskránni er Sigurður titlaður tré- smiður og á sínum tíma lærði hann hús- asmíðar og hefur sjálfur byggt sitt hús og raunar yfír marga fleiri. Ferill hans sem verktaki í byggingariðnaðinum hófst 1963, eftir að lauk byggingu Bændahallarinnar, sem almennt er nú kölluð Hótel Saga; þar var Sigurður yfírsmiður hjá Guðbirni Guð- mundsyni. Eftir það varð hann sjálfstæður verktaki og byggði mest fyrir Hitaveitu Reykjavíkur og Landsvirkjun. Ifyrir 6 árum þótti honum tími til kominn að breyta til; hann var með það í huga að fá meiri tíma til að sinna málverkinu, sem verið hafði aukabúgrein. Engu að síður hafði hann ræktað þann garð án þess að þráðurinn slitn- aði. Breytingin fólst í því að hann réðist til Landsbankans og varð eftirlitsmaður í skipulagsdeild bankans. Einnig er hann Sigurður Kr. Áruason. ásamt Jóhanni Ágústssyni, sem nýverið hefur verið ráðinn aðstoðarbankastjóri, ráð- gjafí um myndverkakaup bankans og hann sér um skráningu á listaveraeign bankans. Þetta er sagan af brauðstritinu. En hven- ær hefst málarasagan og hvaðan er maður- inn? Um það var Sigurður spurður í upp- hafí spjalls okkar. „Ég er fæddur í Vestmannaeyjum 1925 og átti þar heima fyrstu 7 árin. Þá flutti ég með foreldrum mínum til Reykjavíkur. Að alast upp í Eyjum var meiriháttar ævin- týri; leið okkar hinna ungu Eyjapeyja lá oft um björg og brimurðir, þar sem skimast var eftir fugli og fiski. Málarasagan hefst aftur á móti fyrir al- vöru 1945, þegar ég var í trésmíðanámi og fór þá jaftiframt í skóla frístundamálara, sem síðar varð Myndlistarskólinn í Reykjavík. Þá kenndi þar skozkur listamað- ur. Og um tíma var ég í Handíða-og mynd- listarskóla íslands, sem þá var við Grund- arstíg. Frá því ég man eftir mér hef ég haft áhuga á myndlist, en ég held að umhverfíð í Eyjum hafi ekki haft afgerandi áhrif á mig; annars hafa Eyjarnar fóstrað nokkra kunna myndlistarmenn. Úr bamæsku minni þar man ég eftir Sveini Bjömssyni jafnaldra mínum; einnig Engilbert Gíslasyni sem var staðarmálari á sama hátt og Guðni Her- mannsen hefur orðið síðar. Og á sama tíma var Sverrir Haraldsson að alast upp í Eyj- um, nokkmm árum yngri en við Sveinn. Þótt Vestmannaeyjar séu fagrar og myndrænar, held ég að það sem ég sá af myndlist hafí fremur orðið til örvunar en umhverfíð. Framar flestu man ég eftir þeirri frægu sýningu Kjarvals í Listamannaská- lanum 1945, þó ekki væri ég viðstaddur hamaganginn við opnunina, þegar öll verkin seldust á fáeinum mínútum. Kjarval hefur alltaf haft mikil áhrif á mig; einnig Ásgrímur Jónsson, Jón Stefáns- son og Scheving. Mér fínnst þessir braut- ryðjendur alltaf hafa staðið uppúr og það er örvandi að sjá verk eftir þá, en landið hefur líka haft sín áhrif. Þar að auki kemst málari ekki hjá því að verða fyrir einhveijum áhrifum af því sem er að gerast í myndlist á hveijum tíma - án þess þó að maður þurfi að tapa sér í eltingaleik við tízkubundnar sveiflur." „Margir myndlistarmenn nútímans líta á landslagsmálverk sem úrelt þing og gamal- dags, nema sem bakgrunn fyrir eitthvað annað og margir sneiða hjá því að mála landslag vegna þess að þeir koma ekki auga á leiðir til þess að módemisera það og vilja heldur sleppa því en fara í fótspor þeirra sem búnir eru að vinna stórvirki ilandslags- Frá Flúðum í Hrunamannahreppi. Við Skorradalsvatn. LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 14. MAl 1988 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.