Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1987, Page 13

Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1987, Page 13
Þorleifur Bjarnason umsjónarkennari. og Jón voru að þvælast á ganginum og svo Steindór, rak ég Stefán inn og gegndi hann því, en Steindór ekki; hann hýmdi upp við dyr alþingissalarins, en gerði ekkert fyrir sér. Gekk ég þá að Jóni, sem hýmdi í lesstofu- dyrum 5. bekkjar og rak hann inn þangað og lét aftur dyrnar. Ætlaði hann að setja stígvél eða skó í gættina, svo að ég gæti ekki lokað dyrunum, gekk ég þá inn og hratt honum úr gættinni og lokaði dyrunum. Svo gekk ég inn á kennarastofu. En þá sá ég, að Þórður var kominn. Skýrði ég honum stuttlega frá framkomu sonar hans og kvað hann hafa verið rekinn burtu þaðan í gærkvöldið, sagði að pilturinn hefði verið hvað eftir annað hortugur, óhlýð- inn og jafnvel ósvífinn og bað hann sjá um, að hann léti af komur sínar hingað, annars yrði ég að hafa önnur ráð. Hann sagðist hafa margbannað honum að vera að hanga niðrí skóla. Pór hann svo og sonur hans með honum. En hann var varla kominn ofan stigann, þegar 5. bekkingar með Ingvar í broddi fylk- ingar þustu niður stigann með miklum gassagangi, en komu því nær að vörmu spori upp aftur og voru hljóðir mjög upp frá því (má vera að þeir hafi ætlað að lögreglan hafi sótt Jón og ætlað að leysa hann, eða þeir hafi viljað sýna aðkomumanni hversu prúðmannlega þeir höguðu sér og hve næði- samt væri í skólanum). Ég gekk þá inn til Ama og sagðist nótera hann, drattaðist hann rétt á eftir burt og hafði einhver kjána ummæli, að þá gæti hann verið kyrr fyrst hann hefði fengið nót- una.“ Þorleifur Bjarnason, sem hafði starfsheitið adjunk (umsjónarkennari), bætir við: „Hef margsinnis áminnt Steindór og Stefán fyrir iðjuleysi þeirra, hávaða og smápör.“ Fæstir hinna brottreknu nema hófu nám á ný. Hinir efnameiri hefðu líklega verið betur til þess færir að mæta slíku áfalli sem brottvikning úr skóla óhjákvæmilega var. Meðal þeirra sem hættu var Jónas Guðlaugs- son sem tók að skrifa af kappi, en yfirgaf landið nokkrum árum síðar fyrir fullt og allt, áreiðanlega að einhveiju leyti vegna þeirra atburða sem nú hafa verið raktir. Bráðefni- legur maður, sem gat sér orð fyrir ritstörf erlendis, í Noregi og Danmörku, en ekki hefur verið metinn að verðleikum hérlendis til þessa dags; væntanlega vegna einhvers annars en þeirra misþyrminga sem réttlætis- vitund hans varð fyrir veturinn 1902—03. Ekki er alveg úr lausu lofti gripið að segja að rektor hafi fengið morðhótanir á þessum vetri. Einn þeirra nemenda, sem skrifaði honum í kennsluhléinu í janúar segir (þann 10.): „Þú með öllum illum löstum gæddur rektor! Ég ræð þér alvarlega til að segja af þér nú þegar, annars fer ver! Pyrir 1. febr. þ.á. skal verða mikil breyting á komin á skólanum." Bréfritari strikar tvisvar undir ófamaðaryfirlýsinguna. Og skrifar stórum stöfum undir: „Varaðu þig.“ — Annar bréfrit- ari skrifar (þann 17. jan.) eftir að hafa kallað rektor djöfuls bæst, lygara, falsara, hræsn- ara og drullusokk af djöflakyni: „ . . . þínir dagar eru nú þegar taldir." Kennsludagar? Líklega. Kennslustofa 2. bekkjar varð harðast úti og lætur það að líkum. Stofa þessi var ein höfð opin á sunnudögum „svo að piltar gætu fundist þar og átt athvarf," ritar Ásmundur biskup Guðmundsson í minningariti um menntaskólaárin; sunnudagseftirmiðdag einn varð þar heldur en ekki uppákoma. Ásmundur skrifar: „Varð nú heljarmikil púðursprenging í ofninum, svo að hann splundraðist allur og hurðin hentist yfir þver- an bekkinn, gegnum tvöfaldan gluggann, yfir götuna fyrir austan og í timburfjós og markaði þar djúpt far. Var það mesta mildi, að hvorki skyldi neinn vera staddur í bekkn- um né á götunni fyrir utan, því að þá gat þeim verið bráður bani búinn." Dagbókarritari, Björn M. Olsen, skrifar svo um 13. apríl á þessum vetri: „Ég kom upp eftir kl. c. 11, þá enginn kominn í 2. bekk, en rétt á eftir, c.11.10, kom Ólafur Þorsteinsson upp eftir og fór inn í 2. bekk, og segist hafa verið þar síðan allt af inni þangað til hringt var kl. 11 'A og hefði enginn komið inn úr öðrum bekkjum nema Magnús Guðmundsson úr 3. bekk, sem þó hefði strax farið út aftur, og ekkert gert grunsamlegt. Kl. 11.10 fór ég inn í bekkinn og byijaði kennsluna, en kl. ca. 11 V-i (ég leit ekki á klukkuna) sprakk stórt skot inni í fataskápnum, svo að hurðin á honum, sem var snerluð, hrökk upp á víða gátt, og púður- reyk mikinn lagði út í bekkinn. Þegar ég fór að gæta að inni í skápnum, lá þar patr- óna úr pappa, rifin þannig að botninn var í öðru lagi, en rifrildi af hólknum í öðru, og utanhafnarermi úr lasting, sem kviknað hafði í og leit út fyrir, að patrónan, sem sprakk, hefði verið innan í eða rétt hjá er- minni. Af því að ólykt var af erminni, tók ég hana út og slökkti í henni fyrir utan skóladyrnar, og skildi hana þar eftir, og hvarf hún þaðan í næstu 10’ (þ.e. frímínút- um). Á tímanum frá því að hringt var til morg- unverðar, kl. 10 8A þangað til ég kom upp eftir kl. 11, var Jói dyravörður alltaf á gang- inum, og segir, að á þeim tíma hafi enginn farið inn í 2. bekk.“ Þessi atburður virðist hafa ráðið úrslitum, í skólaskýrslunni fyrir þetta skólaár segir: „25. dag aprílmánaðar veitti Hans Hátign konungurinn rektor skólans Birni M. Ólsen samkvæmt beiðni hans lausn í náð frá emb- ætti sakir heilsulasleika með eftirlaunum frá 1. okt. 1904 að telja, og sæmdi hann um leið prófessorsnafnbót frá sama degi." Björn varð fyrsti rektor Háskóla íslands. Honum var sparkað upp á við. Kynleg skilaboð Imorgun (21. september árið 1987) þegar ég settist við tölvuna mína og hugðist kalla fram á skjáinn verkefnið sem ég er að vinna við birtist þar óvænt þessi texti: Stutt athugasemd frá Hrólfi Sveinssyni nöldurfræðingi. „Skáldaölmusan" heitir greinarkom eftir Helga Hálfdanarson vin minn í Lesbókinni þann 19. sept. sl. Þar vitnar Helgi í orð mín og fer ekki alskostar rétt með. Ég er nú að verða' þreyttur á því hvernig Helgi sí og æ misnotar nafn mitt á almannafæri, nánast hvenær sem hann þarf að láta til sín taka. Nú ber hann mig fyrir þeirri skoðun að skáldskapargáfan sé ekki nema bláber af- leiðing af B-íjörvaskorti (hann slettir að vísu orðskrípinu vítamín til að auglýsa latínukunnáttu sína). Kenning mín um þetta efni hefur þó aldrei verið svo almenn sem hann vill vera láta. Ég mun einhverntíma hafa orðað það við manninn að trúlega hafi ritháttur Shakespears verið mótaður af B- fjörvaskorti og meðfylgjandi taugaveiklun, enda má vel ráða þetta af hemjulausu og grófu orðafarinu. í framhaldi af þessu hef ég einmitt látið í ljós þá von að sem flestar þjóðir fari nú að ráði íslendinga og fái starf- andi lyfjafræðinga til að þýða verk þessa mikla B-fjörvaleysingja. Þannig oftúlkar Helgi sjónarmið mín að þessu leyti. Kenningarnar um ritstörf í hjáverkum kannast ég líka mætavel við því ég hefi einnig reifað þessar skoðanir mínar við Helga. Vitaskuld eiga rithöfundar og þýðendur að vinna fyrir sér, eða vera á eftirlaunum (sem auðvitað leiðir af hinu). Löngu erum við Helgi orðnir sammála um það. En honum þóknast bara að láta þar við sitja í kröfu- gerðinni. Þó veit hann vel að þessi kenning mín er víðtækari miklu. Setjarar, pappírs- innflytjendur, prentarar, umbrotsfólk, bókbindarar, verkstjórar og prentsmiðjufor- stjórar — svo ekki sé nú minst á útgefendur og fjölmarga bókmentaráðunauta sem þeir eru með á sínum snærum: Alt þetta fólk gæti líka unnið fyrir sér við einhver nytsam- leg störf og stundað bókagerðina í þeim ríkulegu frístundum sem þá gæfust. Og lyfjabúðirnar gætu síðan selt bækurn- ar í sjálfboðavinnu á nóttunni. Þ.e.a.s. gefið þær. Því vitaskuld munu þær ekki kosta neitt heldur vera falar hveijum sem nenti að vaka eitthvað frameftir. Mér er það hrein ráðgata hversvegna Helgi kýs að leyna kjamanum í þessari sam- eiginlegu kenningu okkar. En hveijar sem ástæður hans eru — gleymska, ótti við almenningsálitið, fordild eða B-fjörviskortur — þá get ég ekki látið það vera að leiðrétta þetta um leið og ég segi að lokum: Helgi vinur minn oftúlkar ekki bara sjón- armið mín, hann vantúlkar þau líka ef honum býður svo við að horfa. Reykjavík, 21. september 1987. Hrólfur Sveinsson, nöldurfræðingur. Ég ætla ekki að reyna að lýsa því hvað mér brá við þessi skilaboð því sattaðsegja hafði mér fundist nóg um þann hluta frí- stundaboðskaparins sem H.H. treysti sér tilað flytja lesendum. Ég reyndi þvi að þurka textann útaf skjánum með skipuninni góðu F7,n,n. Það var einsog ég hefði ekki komið við takkana. Ég fór þá úr WP-kerfinu, slökti á tölvunni, skifti um diskling (sem þessi undarlegi texti hlaut að vera kominn af) — en ekkert dugði. Hvað sem ég hugðist kalla framá skjáinn, þegar aftur var búið að kveikja á tölvunni, þá birtust þar einlægt þessi sömu skilaboð frá Hrólfi Sveinsyni nöidurfræðingi sem ég vitaskuld kannast ekkert við. Og það eina sem prentarinn leit við að prenta (hvaða skipanir sem honum voru gefnar) var þessi sami texti. Þegar ég var kominn með nokkurhundruð eintök af þessu á gólf- ið í Leshúsinu mínu, hugsaði ég á endanum sem svo. Þetta boðar eitthvað, en hvað? Þá birtist á skjánum gráa fyrirskipunar- letrið frá tölvunni, og skrifað stóð: Færa Gísla! Þá greip ég til þess ráðs að fara með eintak af þessum dularfullu skilaboðum niðrá skrifstofu Lesbókar Morgunblaðs- ins og biðja ritstjórann um að birta þetta, en hann varð góðfúslega við því. Og nú geta menn velt því fyrir sér hver skýringin á þvílíku MENETEKELI muni vera. ÞORGEIR ÞORGEIRSSON P.S. Þegar ég kom heim aftur var alt með feldu í tölvunni nema hvað mér reynd- ist ókleift að finna neinstaðar bréfið frá Hrólfi á nokkrum disklingi. Enda gerði það ekki til því á gólfinu lágu 365 einstök af því — snyrtilega prentuð úr Silver-Reed prentaranum mínum. SAMI þorgeir (eða næstumþví sá sami, því auðvitað breytir svona reynsla manni.) HELGA JÓHANNSDÓTTIR Regn Regnið fellur mjúkt hljóðlátt umvefur mig votum höndum sínum. Drýpur um vanga minn eins og tár. Regnið er tár skýjanna, sem gráta mynd heimsins. Eitt andartak Þegar sólin dansaði á skýjatoppunum hló sálin í mér af gleði. Stjörnurnar í augum blómanna sögðu mér sögu um ástina, sem allir leituðu að. Ungur líkami minn dansaði léttstígur milli tijánna í leit að ævintýri. Framundan biðu útréttar hendur lífsins komu minnar og eitt andartak fann ég til ótta. Aðeins eitt andartak. Höfundurinn er sjúkraliði. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3. OKTÓBER 1987 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.