Lesbók Morgunblaðsins - 27.06.1987, Qupperneq 16
Úr sagna-
banka Leifs
Sveinssonar
Bróðurlýsing
Priðjón Jensson, tannlæknir á Akureyri, lýsti þannig Bjama
bróður sínum, hinum kunna rausnarbónda í Ásgarði í Dala-
sýslu: „Bjami bróðir minn er mér miklu fremri, bæði að
drengskap og dónaskap."
Pylsuvagninn og styttan
Þegar leiðtogafundurinn var haldinn hér í Reykjavík í októ-
ber 1986, hitti fréttamaður NBC-sjónvarpsfréttastöðvarinnar
Ásgeir Hannes Eiríksson, pylsuvagnsforstjóra, að _máli við Út-
vegsbankahomið og spurði almæltra tíðinda. Lét Ásgeir vel af
pylsusölunni og ræddu þeir síðan um aðra heima og geima all-
góða stund. Fréttamaðurinn vildi fræðast og spurði af hveijum
styttan væri sú þama austan við Lækjartorgið. Ásgeir segir að
hún sé af langafa sínum, Hannesi Hafstein ráðherra. „Stofnaði
hann þá pylsuvagninn?" spurði þá Kaninn.
'16