Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1987, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1987, Blaðsíða 10
Óþerrísholan, smækkuð mynd af Geysi og gýs, ef í hana er látin sápa, þó miklu Hrossagirðing utanum Geysi. Gersamlega óþarft mannvirki og lýsir einstæðu fremur í óþurrkatið. smekkleysi. Sumir taka dýpra íárínni og tefja, að hér séu beinlínis náttúruspjöll. Bærinn á Laug stendur við þjóðveginn, skammt frá hverasvæðinu og er innan þess reits, sem lagt hefur veríð til að verði fríðlýstur. Laug er í eyði, enginn býr i bænum og hann er að grotna niður. Sjálfsagt er að endurbyggja bæinn í burstastílnum og mætti þá nota hann til margra hluta, annaðhvort sem annexíu frá hótelinu, fyrir svefnpokafólk til dæmis eða hestamenn, eða fyrir gestabústað á vegum ríkisins. Steinninn Sigurjónstak er hjá Óþerrís- holunni, nefndur eftir Sigutjóni á Álafossi, landskunnum kraftamanni á sínum tíma, og tók hann steininn upp að þvi að sagt er. Það gerði einnig Bjarni Ágústsson frá Hróarshoiti, bróðir Guðmundar glímu- kóngs, en ekki er vitað til þess að fleirum hafi tekizt að lyfta Siguzjónstaki. Áður en miklir jarðskjálftar urðu hér á Suðurlandi 1896 höfðu gos úr sjálfum Geysi næstum fallið niður um all langt skeið, en þá hófust þau á ný. Árið 1915 var Geysir aftur sofnaður værum blundi þar til 1935 að rauf var höggvin í skálina til að lækka vatnsborðið. Raufin fylltist hins vegar smátt og smátt af steinefnum en árið 1981 var hún hreinsuð á ný og nú er hægt að fram- kalla gos með því að lækka vatnsborðið og gefa honum vænan skammt af sápu. í fyrmefndum bæklingi segir líka frá skrítinni sögu um eignaréttinn á þessu sér- stæða svæði — en sagan lýsir vel tíðarandan- um og metnaðarleysi íslendinga gagnvart íslensku náttúrufari og fyrirbærum. Geysir var nefnilega seldur árið 1899 breskum viskí- framleiðanda, James Craig að nafni, sem síðar varð forsætisráðherra Norður-íríands. í eitt eða tvö ár eftir þessa sölu urðu menn að borga fyrir að fá að skoða hverina. Síðan var sá háttur lagður af og hefur ekki tíðkast síðan. Breski eigandinn gaf vini sínum þessa eign, en þeim manni var lítt um gjöfma gefið og gaf hana aftur frænda sínum í arf. Árið 1935 Keypti Sigurður Jónasson forstjóri í Reykjavík svo Geysissvæðið og gaf það íslensku þjóðinni. Skipulag Geysissvæðisins Nú er farið að huga að framtíð Geysis- svæðisins til lengri tíma. Vorið 1986 var Einari E. Sæmundsen landslagsarkitekt fal- ið að vinna tillögur um skipulag á svæðinu og er það verkefni unnið fyrir Skipulag ríkis- ins og Biskupstungnahrepp. Tillögur hans hafa verið kynntar þeim aðilum ásamt Geys- isnefnd. Hann var spurður hver væru helstu áhersluatriði í tillögunni. „Þegar gert er aðalskipulag fyrir Geysis- svæðið verður umfram allt að hafa í huga að umhverfi Geysis verði ekki raskað með mannvirkjum frekar en orðið er. Einnig verður að hafa það hugfast að okkur ber skyida til að vemda þetta svæði með þeim aðferðum sem við teljum heppilegastar á hveijum tíma. Lagt er til að allt svæðið milli Laugaár og Beinár inn að skógræktinni í Haukadal verði friðað á einn eða annan hátt — hér hugsað að Geysir verði náttúrvætti með rúmu svæði umhverfis. Geysir og Gullfoss eru meðal fjölsóttustu ferðamannastaða landsins og gefur því augaleið að nokkum viðbúnað þarf að hafa tii að geta tekið á móti öllum þessum ferða- mönnum. Settar hafa verið fram hugmyndir um að á Geysissvæðinu verði aðalmiðstöð og þjónusta við ferðamenn í byggð áður en lagt er á hálendið Kjöl. Forsenda þess er að á Geysi er vísir að slíkri þjónustu, góðar samgöngur, heitt og kalt vatn og rafmagn. Nálægðin við Suðvestur-landið og þétt- býlið þar, og batnandi vegakerfí, auka líkur á því að ferðamannatíminn geti lengst er fram líða stundir þótt auðvitað verði álagið mest §óra sumarmánuðina. Þessi atriði öll auka afkomumöguleika þeirra sem stunda þjónustu við ferðamenn. Þeir þættir ferðamannaþjónustu, sem hér er gert ráð fyrir, em: 1. Veitingar, greiðasala og gistiþjónusta í einhverri mynd. 2. Tjaldsvæði með snyrtingu og eldunarað- stöðu. 3. Þjónusta við akandi umferð, bensín og þvottur. 4. Á sjálfu hverasvæðinu þarf að gera átak í gangstígagerð og merkingum. í tengslum við uppbyggingu á aðstöðu verður að gera ráð fyrir góðu rými fyrir fræðslustofu. í þessuni tillögum er gengið út frá þeim kjama byggðar sem risin er við Geysi og gerð tilraun til að afmarka byggðina. Þeim atriðum sem mikilvæg em til að geta leyst af hendi nauðsynlega þjónustu við ferða- menn, er komið fyrir í núverandi byggð. Umferð um svæðið, eins og henni er hátt- að í dag, er óviðunandi. Þjóðvegurinn sker byggð og þjónustu frá hverasvæðinu, sem allir em komnir til að skoða, og þetta skap- ar stöðuga og vaxandi slysahættu. í tillögunni er einnig lögð áhersla á að akandi umferð verði fjær svæðinu og skipu- leggja betur umferð hinna gangandi. Þá er nauðsynlegt að setja fastar reglur um umferð fólks innan girðingarinnar um sjálft hverasvæðið. Það er dýrt að búa vel úr garði heims- frægan ferðamannastað eins og hér við Geysi, en hafin er nú þegar myndarleg upp- bygging á staðnum. M.a. hefur gamla íþróttahúsinu verið breytt í vistlega veitinga- sali. Síðan er hugmyndin að byggja gistiað- stöðu. Geysir er í raun þjóðareign. Við höfum löngum notað alþjóðlega frægð hans til að laða ferðamenn til landsins. Vegna þessarar frægðar staðarins er viðfangsefnið ábyrgð- armeira. Við verðum að búa staðinn svo sómi sé að. En stórátak, sem uppbygging ferðamannaaðstöðu við Geysi er, verður að kosta að vemlegu leyti úr sameiginlegum sjóðum okkar í samstarfí við heimamenn," sagði Einar E. Sæmundssen. I 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.