Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1986, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1986, Blaðsíða 5
meðal annars þeirra Jakobínu og Svövu, „kerlingabækur". Þessi brandari, sem Sig- urður A. Magnússon mun hafa sagt fyrstur manna, þótti mjög fyndinn og öpuðu margir hann eftir“. Hér eru engin dæmi nefnd, svo ekki er auðgert að fletta ofanaf þeim álygum sem undir dylgjunum búa. Mér vitanlega voru bækur þeirra Jakobínu Sigurðardóttur og Svövu Jakobsdóttur aldrei orðaðar við „kerl- ingabækur". Ég hafði þetta gamalgróna orð, sem á hefðbundinni íslensku merkir kredda eða hjátrú, um þá tegund bóka sem síðarmeir var nefnd afþreyingarbókmenntir og samdar voru eftir föstum formúlum sem sjaldan var brugðið útaf. Tók ég skilmerki- lega fram að nafngiftin ætti jafnt við afþrey- ingarbækur karla sem kvenna. Þessi spaug- semi kann að hafa orkað tvímælis, en fyrir því er engin flugufótur, þó hver éti firruna upp eftir öðrum, að ég hafi með nafngiftinni verið að gera lítið úr bókmenntum kvenna yfirleitt, enda tel ég mig fortakslaust hafa verið meðal þeirra sem fyrstir fögnuðu skáldverkum Jakobínu og Svövu — sem og annarra góðra kvenrithöfunda sem gert hafa garðinn frægan á liðnum aldarfjórð- ungi; má þar nefna konur á borð við Vil- borgu Dagbjartsdóttur, Þóru Jónsdóttur, Þuríði Guðmundsdóttur, Guðrúnu Helga- dóttur, Ásu Sólveigu, Fríðu Á. Sigurðardótt- ur, Olgu Guðrúnu Árnadóttur, Nínu Björk Ámadóttur, Steinunni Sigurðardóttur, Ingi- björgu Haraldsdóttur og nú síðast þær Álf- rúnu Gunnlaugsdóttur, Vigdísi Grímsdóttur, Stefaníu Þorgrímsdóttur og Elísabet Þor- grímsdóttur. Ástu Sigurðardóttur dáði ég fráþví fyrsta saga hennar birtist á prenti. Eg var hættur að skrifa ritdóma í hérlend blöð þegar þær Jakobína, Svava og yngri stöllur þeirra komu framá ritvöllinn, þannig að ég fjallaði ekki um verk þeirra hér heima. Gabriela Mistral En ég skrifaði um þær í mörg erlend tíma- rit, jafnt austanhafs sem vestan, og taldi þær jafnan vera í forustusveit íslenskra samtíðarbókmennta. Má sem dæmi taka eftirtalin rit: Ny litteratur i Norden 1962—64 (Svíþjóð 1966), Ny litteratur i Norden 1965-67 (Svíþjóð 1969), Vinduet (Noregi 1969), Horisont (Finnlandi 1970), Mosaic (Kanada 1970), Scandinavian Studies (USA 1977), Land aus dem Meer (Berlín 1980), World Literature Today (USA 1982), The Postwar Poetry of Iceland (USA 1982, Icelandic Writing Today (Reykjavík 1982), Los Universitar- ios (Mexíkó 1983), Rallarros (Svíþjóð 1985), Iceland Crucible (Reykjavík 1985) og die horen (Vestur-Þýskaland 1986). Er mér tii efs að nokkur einstaklingur, innlend- ur eða erlendur, hafi borið hróður hérlendra kvennabókmennta víðar en undirritaður. Það er því ómaklegt og reyndar fullkom- lega fjarstætt að gera því skóna, að ég hafi með beinum eða óbeinum hætti átt hlut á vanmati á skáldverkum Jakobínu Sigurðardóttur og Svövu Jakobsdóttur, enda hygg ég að Svava geti sjálf borið um það, að ég hvatti hana með ráðum og dáð þegar hún hóf að birta smásögur í Lesbók Morg- unblaðsins 1964. Hafði hún raunar þegar vakið athygli mína með verðlaunasögunni „Konan í kjallaranum", sem birtist í júlí- hefti Lífs og listar 1950. í seinniparti greinar sinnar fjallar Ólína Þorvarðardóttir nokkuð um afþreyingar- bókmenntir og nefnir einkum til sögu þær Guðrúnu frá Lundi og Ingibjörgu Sigurðar- dóttur, sem afkastamestar hafa verið í þeirri bókmenntagrein, þó með ólíku móti sé. Guðrúnu er réttilega hrósað fyrir jarð- bundnar og raunsannar lýsingar á verkum og starfsháttum kvenna við ríkjandi tíðar- anda og veruleik. Hitt er fásinna, að með verkum hennar hafí fyrst komið til sögunnar skipting íslenskra skáldverka í æðri og óæðri flokka. Eg man ekki til, að verk þeirra Jóns Mýrdals (1825—99) eða Torf- hildar Hólm (1845—1918) hafi nokkumtíma verið talin til æðri bókmennta eða sett í sama gæðaflokk og verk Jóns Thoroddsens, Þorgils gj allanda og Jóns Trausta. V 1 s 1 Ingibjörg Sigurðardóttir fær þá einkunn, að hún semji ástarsögur að erlendri fyrir- mynd og felli þær inní klisjukennda formúlu aíþreyingarsagna um átök góðs og ills. Eiaðsíður býsnast greinarhöfundur yfir því að Ingibjörg skuli ekki hafa verið tekin uppí Skáldatal og hefur til marks um af- leitt gildismat bókmenntastofnunarinnar sem hún nefnir svo og tyggur upp eftir öðrum. Nú er ekki í mínum verkahring að bera blak af ritstjórum Skáldatals, enda hafa þeir gert skýra grein fyrir vali manna í ritið, en hitt þætti trúlega fleirum en mér fróðlegt að vita, hvort höfundur telji að magnið eitt eigi að skera úr um hlutgengi höfunda í það virðulega rit. Sé það rétt sem Ólína Þorvarðardóttir heldur fram, að Ingi- björg Sigurðardóttir sé ekki sjálfri sér trú í verkum sínum, skapi ótrúverðugan heim með flötum og einhæfum mannlýsingum og ófullnægjandi veruleikalýsingum, hveijir eru þá verðleikar hennar aðrir en þeir að hún er kvenkyns? Á það eitt að nægja til að tryggja henni sess á skáldabekk? Spyr sá sem ekki veit. Svo skrýtilega vill nefnilega til, að ýmsir höfundar af karlkyni hafa ekki fundið náð fyrir augum ritstjóranna, þótt samið hefðu tilskilin tvö bókmentaverk þegar Skáldatal kom út. Þeirra á meðal nefni ég af handa- hófi Kristján Albertsson, Aðalstein Sig- mundsson, Áma Óla, Bjöm Daníelsson, Eirík Sigurðsson, Guðjón Sveinsson, Hall- grím Jónsson, Hannes J. Magnússon, Vigfús Björnsson, Indriða Úlfsson, Ingólf Jónsson frá Prestbakka, Jón Kr. ísfeld, Ragnar Jó- hannesson, Steingrím Sigurðsson og Jó- hannes Birkiland. Kannski það sé misskiln- ingur að Ingibjörg Sigurðardóttir hafi verið látin gjalda kynferðis síns þegar henni var úthýst úr Skáldatali? PS: Grein Ólínu Þorvarðardóttur birtist í mars-hefti Þjóðlífs. Ég hafði samband við annan ritstjórann 25. mars og bað um rúm fyrir svargrein, en var tjáð að búið væri að loka maí-heftinu, og yrði ég því að bíða júlí-heftis. Verður einkar fróðlegt að fylgjast með hvernig tímaritið hyggst halda uppi umæðu um brýn málefni með þvílíkri ritstjórnarstefnu. Hitt er líka verðugt íhug- unarefni, á hvaða forsendum tímarit, sem vísast vill láta taka sig alvarlega, birtir samsetning á borð við þann sem hér hefur verið gerður að umtalsefni. Hafa bók- menntaráðunautar tímaritsins, þeir Árni Sigurjónsson og Þorvaldur Kristinsson, virkilega ekki til að bera meiri metnað fyrir hönd skjólstæðings síns? Gervilíffæri Vélsmíðaðir hlutir, sem leysa af hólmi hold og bein, gjör- breyta horfum fórnarlamba sjúkdóma og slysa. Miklar framfarir hafa orðið á sviði gervilíffæra á undan- fömum ámm, og þau eru aðallega úr plasti. Læknar geta nú sett tilbúin líffæri í stað hjartna, nýma, eyrna, útlima, æða og mjaðmar- liða meðal annars. „Á vissum sviðum mun bezta læknismeðferðin vera fólgin í því að setja gervilíffæri í sjúklingana. Við erum ekki komnir svo langt ennþá, en þetta er allt hægt að gera," segir dr. Fred Shapiro, formaður bandaríska gervilíffæra-félagsins. Bris Vísindamenn við Massachusetts- háskóla vonast til þess að geta gefið sykursýkissjúklingum kost á að fá grætt í sig gervibris innan fimm ára. Verið er að gera tilraunir með „blend- ings“-líffæri, sem samsett er af lifandi fmmurn úr brisi dýra og himnum utan um þær úr fjölliða plasti. Himnurnar hleypa inn þrúgusykri, en út insúlíni sem hið ígrædda líf- færi framleiðir, og veija það gegn mótefnum og hvítum blóðkornum ónæmiskerfisins. Þannig þyrfti sjúklingurinn ekki að taka inn lyf til að halda ónæmsikerfinu í skefjum. blóðið streymir gegnum þær, og þær kunna að koma að notum fyrir fólk, sem á við blóðrásarvanda að stríða í útlimum. Fólk, sem á aflimun yfir höfði sér, ætti með þessu að eiga annarra kosta völ. Gerviheyrn Varanlegu heyrnartæki hefur verið komið fyrir eða „grætt" í meira en 700 sjúklinga, síðan það hlaut viðurkenningu heilbrigðisyfirvalda í Bandaríkjunum fyrir ári. Hönnuður þess er dr. William House í Los Angeles, en framleiðandinn 3M Company. Tækið breytir hljóðum í rafboð, sem eru send til kuðungsins í innra eyranu. Notendur tækisins segja, að það hafi auðveldað þeim að lesa af vörum. Háþróaðri tæki eru á tilraunastigi. Flytjanlegt Nýra Japanskt fyrirtæki mun sennilega framleiða gervinýra, sem hægt er að bera. Tækið er hannað af vísindamönnum við Utah-háskóla, það er tæp- lega 4 kíló á þyngd, knúið með rafhlöðum og hægt er að festa það við líkamann með ólum. Meðan á síuninni stendur, streymir blóð út og inn um nál í handlegg sjúklingsins, sem tengdur er við 20 lítra geymi. En hægt er að taka sjúklinginn úr sambandi við kerfið í allt að 15 mínútur í einu á þeim 4—5 tímum, sem fullkomin síun tekur. Óhugsandi er talið, að hægt sé að koma fyrir gervinýra í mönnum, en vís- indamenn segja, að þróunin muni beinast að minni og auðflytjanlegri tækjum til síunar. Gervihandleggur Og Hönd Fjögur ár eru liðin síðan samstæða sú, gervihandleggur og hendi, sem þróuð var í Utah-háskóla, var fyrst tekin í notkun, og á þeim tíma hefur hún verið fest við 250 manns víðsvegar um heim. Verð samstæðunnar er rúml. 1 millj. ísl. kr. Gervihandleggnum og höndinni stjórna rafskaut og örtölvuverk, sem svarar boðum, sem send eru frá heilanum gegnum eftirstöðvar af vöðvum í öxl og á handlegg. Vísindamenn eru nú að gera tilraunir með hönd, sem hefur þijá fingur og þumal, til að auka fingrafimina og „handlagnina". Æðar Á sjúkrahúsum er verið að reyna örlitl- ar leiðslur úr fjölúretani, sem flytja blóð til vefja og vöðva. Þær jofnvel slá, þegar Skurðlæknir býst til að koma fyrir gerviliða- mótum ífingri á liðagigtarsjúklingi. Gervihjarta Hingað til hefur langmest verið fjallað opinberlega um gervihjörtu af öllum varahlutum í mannslíkamann. Á þremur árum hafa fimm slík hjörtu verið sett í menn til varanlegrar notkunar, en þijú til bráðabirgða, meðan beðið var eftir hjartaflutningi. En hin háa tíðni fylgikvilla hefur vakið efasemdir manna um slík hjörtu, eins og þau hafa verið úr garði gerð. Það er augljóst, að árangurinn hefur fram að þessu verið óviðunandi, að því er hátt- settir sérfræðingar viðurkenna. En þess verður þó að gæta, að hér er nánast um tilraunir að ræða og ekki hægt að búast við bata í venjulegri merkingu af þessum læknisaðgerðum. En á mörgum stofnunum vinna vís- indamenn að nýjum gerðum af gervi- hjörtum. Ein þeirra, Utah 100, er spor- öskjulaga og kemst betur fyrir í bijóst- holinu en Jarvik-7 gerðin, sem nú er notuð. Þá er einnig völ á gervihjarta, sem vísindamenn við Pennsylvaníu-háskóla hafa þróað, en það hefur samskeytalausa plastfóðrun og plastloka, sem menn vona að dragi úr hættu á blóðtappa. Lokatakmarkið er: Gervihjarta, sem hægt er að koma tryggilga fyrir í sjúkl- ingunum og gerir þeim kleift að lifa eðlilegu lífi. LESBOK MORGUNBLAÐSINS 19. APRIL 1986 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.