Lesbók Morgunblaðsins - 23.03.1985, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 23.03.1985, Blaðsíða 11
— Síðari hluti Úr prentaðri bók (erlendrí) frá 1628. Sýnir hún prentþröngina fá öðru sjónarhorni en fyrri myndin (frá 1559). Þar eð þessi prentþröng sýnist öllu minni umfangs beidur en sú á fyrri myndinni, er líklegra að þessi mynd (þótt yngri sé) gefi betri hugmynd af því hvernig prentverk Jóns Arasonar muni hafa litið úk einmitt um það leyti, sem Jón biskup var tekinn og líflátinn, en aldrei virki- lega komið út, og svo hafi siðabótar- menn getað eyðilagt upplagið, nema eitt eða fáein eintök, sem hefðu haldist í ætt biskups. Það er mögulegt, en varla sennilegt, einkum vegna þess, að þessu er hvergi vikið neinsstaðar.“ (H.H.: Prentsmiðja ... bls. 8—10). Nú fer Halldór að velta fyrir sér hvaða bók önnur gæti hafa verið lögð í kistuna með Brynjólfi biskupi, hafi það ekki verið þessi útgáfa Jóns Arasonar. Segir hann, að ekki sé gott að vita hvaða bók það hefur verið, en bendir þó á, að til sé prentuð bók frá 16. öldinni, þar sem orðin „fjórir guð- spjallamenn" komi fyrir í titlinum. Þetta er „Historía pínunnar og uppri.su Drottins vors Jesú Christi útaf fjórum guöspjalla- mönnum ... til samans lesin“ af Jóhanni Bugenhagen. Oddur Gottskálksson mun hafa þýtt hana, en Gísli biskup Jónsson látið prenta hana í Kaupmannahöfn 1558. Síðan segir Halldór: „Upplagið hefur sjálfsagt verið lítið, því fyrir lok aldarinnar hefur hún verið orðin sjaldgæf; Guðbrandur lét sem sé „Þaö er hugsanlegt aö bókin hafi verið prentuð einmitt um þaö leyti sem Jón biskup var tekinn og líflátinn, en aldrei virkilega komiö út, og svo hafi siðbótar- menn getaö eyöilagt upplagið, nema eitt eöa fáein eintök, sem höfðu haldizt í ætt biskups.“ Halldór Hermannsson oarctbí mcfacðpuMtónw Ktxnoþtediið mcnttð m comfcðtioíð et toftitruttur tmioccrcr viucrc: vt ab úmbario Pfaiuíe bcm mercftttmr g4«biá pev tropic;»tticqj pcncr«0it«i ccuíre.pcrö. Bcnc&tcriisnc<gfrcitrca í'gniw bnm.cc.vtq. m eo aixmr.cjctra íoc» lio\ JÍTH'Sxn janct* iec.j. quo fePcrant peOejmooere •V^geneOtct^ foto:^ cí* potutffent,^. Hon eriot« fcotrjltM öb mc|U5 fcOcvct; tcr i>gtcð,Þí>.q. jg.cc,tq< «t ítcr facra doquta tarln ýf Xmqj Otc altcro vitie* fiifcfy<>utptmaþwctu:0c Ji& raQiUe feriitnc fcofa^í fcrimonwítð fcmío rogo^ ca^cetUmptopiwjrecepi W!t eííötcene. (D»efo ut tfto fjffét;Pir bet $eit<&tcrii60& riOcte me no Oeferoo:«t pf* monofiermj rebtjr. (£e ecce cg titAíc oftqutöbc cekp.to poft trrbtmm «t celia cott* ottegmbtjo Íoqnn)r.-(£t3t ti hftcne efawttð tn aetd ocn lercfpoibtt. ffiutiOcq$ío# iW.Ptbttctufqc fozoriðfttc quette^íot itteaátHancre <trttwj«Pe cotpoteet^mref# etra c|l(*mtUafM.p<?ffti5 fan, r> ííifcfpcctc ceft (e* Cartm -ero critt feremtao; crctapcneftare, <Dot totite vtmilWacrc nw0eð>ppa<* |rie etus ýgaubcnsotpo# CbO.q.cf.q. 8uegr«rio6rcC>öt0t'tetuflö 2*1 p?ro fcolafúcavcú tnr oSúqjfrAtrig? bcnöctautr* fetfrrtrriluegÖrið IJr.^fognu möt>t.^b.q. t ifcrt4ð Otgttiv ituituo fup Zt> fatuí>cs.«n. itc|am pofík: ct capttt in ^“Vjlcctc mt nolt' me b€ riioííttðoíporércsOöntro* i/fcrerequoáíwfqjma 'rijjtf fexftimirit, naoqmurl»« cdefié?. C& Fyrír allmörgum árum fundust tvö blöð (sem talin voru úr fornri norrænni bæna- bók) í spjöldum á bandríti einu íslensku, komnu til Svíþjóðar frá íslandi árið 1681. Myndin sýnir bluta þessara tveggja blaða. Hafa margir fyrir satt að þau séu úr Breviarium Holense, kaþólskri bænabók sem er sögð bafa verið prentuð á Hólum árið 1534. Sé þetta reyndin, er hér um að ræða leifar ar fyrstu prentuðu bók á fslandi. að frásögn hans sé áreiðanleg. Þá snýr Halldór sér að handritinu. Telur hann „víst efalaust", að ævisagan sé eftir séra Torfa, en öðru máli gegni um áreið- anleik afskriftarinnar. Ekki bæti það úr skák, að sá, er skrifað hafi handritið, segi þar aftast, að hann hafi það „eptir rangt skrifuðu exemplari uppskrifað, og svo víða sem orðið gat lagfært", en það þurfi „þó í sumum stöðum að réttast eptir betri for- skript.“ Lætur Halldór þau orð falla, að nú sé eftir að vita, hvort orðin „og þrykkja“ hafi í raun og veru staðið í frumritinu, eða séu tilgáta eða mislesning einhvers afrit- ara. Auðsjáanlega sé ýmislegt í handritinu sem bendi til að vikið sé frá frumritinu, svo sem það, að stundum tali höfundurinn í fyrstu persónu, en stundum í þriðju. Þá sé næsta tortryggilegt, að séra Torfi geti ekki um prentunarstað, ártal eða nafn þýðanda. Slíkt sé all merkilegt, þegar um jafn sjaldgæfan grip hafi verið að ræða. Síðar segir Halldór orðrétt: „Það sætir mikilli furðu, ef Jón biskup hefur látið þessa þýðingu „á þrykk út- ganga,“ að hennar skuli hvergi ann- arsstaðar vera getið, og nafn þýðand- ans hafi gleymst með öllu, þótt það hefði mátt telja með stærri afreksverk- um að gera slíka þýðingu á þeim tím- um. Ef þessi guðspjallaþýðing hefur komið út, hlýtur það að hafa verið ætl- un Jóns biskups, að hún skyldi keppa við eða jafnvel útrýma þýðingu Odds lögmanns, sem prentuð var 1540. En sú útgáfa var með konungsbréfi 1539 lög- gilt handa íslendingum, var mönnum boðið að lesa hana ogjafnframt bannað að hindra sölu hennar og útbreiðslu. Ef nú Jón biskup hefur komið annarri líkri bók á markaðinn, mundu siðabót- armenn hafa látið það viðgangast hljóðalaust? Það er harla ólíklegt, enda mundu þeir hafa bent á, að slík bók væri af kaþólskum rótum runnin og varað menn við henni, og það er hér um bil óhjákvæmilegt, að þessa mundi ein- hversstaðar getið í ritum eða skjölum frá þeim tímum. Þar að auki hefði það verið æði nýstárlegt, að kaþólskur bisk- up hefði farið að gefa út þýðingu af bókum biblíunnar án þess að fá til þess i leyfi yfirboðara sinna, páfa eða erki- biskups; en hvergi er þessa heldur getið ... Þar við bætist og, að í skrá þeirri (Sigurðarregistri), sem samin var um eignir Hólastóls að Jóni biskupi látn- um, eru talin mörgeintök af messubók- inni, sem hann lét prenta, en ekkert er þar að finna af Nýja testamentinu eða Fjórum guðspjallamönnum á prenti, og þó hefði helst mátt búast við þvi, að sú bók hefði verið þar til, ef hún annars hefur verið prentuð þar nyrðra. Það er altaf varhugavert að draga ályktanir eða sannanir af þögninni, en hér er þó þögnin svo athugaverð, að ómögulegt er annað en taka tillit til hennar. Það er ekki hægt að ósanna frásögn séra Torfa, en það er öll ástæða til að taka hana með varhuga. Þangað til ein- hverjar frekari upplýsingar koma fram, verður að telja þessa „fjóra guð- spjallamenn“ meðal hinna „apókrýf- isku“ bóka íslenzkrar prentsögu. Það er hugsanlegt, að bókin hafi verið prentuð prenta upp aptur píningar- og upprisu söguna 1596; þó er sú útgáfa allbreytt frá hinni fyrri, skýringargreinum slept, formála o.fl. Efalaust hefur útgáfan frá 1558 verið mjög fágæt á dögum Brynjólfs biskups, en ætla mætti þó að eintak hafi verið til í Skálholti eða að biskup, að minsta kosti, hafi séð það einhversstaðar á vísitatíuferðum sín- um. En skyldi það nú vera með öllu ómögulegt, að hjá séra Torfa sé hér eitthvað blandað málum, og þessir „Fjórir guðspjallamenn“ séu einmitt þessi bók eða brot úr henni? Það hefir ekki verið dæmalaust, að brot eða kafl- ar úr henni hafi gengið manna á milli sem sérstök bók; að minsta kosti á Fiskesafnið upprisusöguna sérstaka og vel innbundna, og hjá eldri höfundum er 53. kapítuli Esaja talinn sérstök bók, þótt hann sé einungis hluti af útgáf- unni frá 1558. Um slik bókabrot, sem hvorki höfðu titilblað, prentstað, né ártal, gátu myndast alskonar sagnir, og voru menn ekki ætíð gætnir eða gagn- rýnir gagnvart þeim. Líka eignuðu menn þá stundum höfundum rit, sem þeir als ekki höfðu samið; þarf eigi annað en minna á, að Brynjólfur bisk- up eignaði Sæmundi fróða Eddukvæð- in, þótt enginn fótur væri fyrir því, að minsta kosti af því sem kunnugt er. Og eitthvað líkt kann að hafa átt sér stað með þessa „Fjóra guðspjallamenn“ Jóns Arasonar, þótt erfitt sé að ráða þá gátu nú.“ (H.H.: Prentsmiðja ... bls. 10—11). Nú hefur verið minnst á rök þeirra manna, sem ýmist telja handrit ævisög- unnar óhrekjandi eða hrekjandi. En til eru þeir menn, sem vilja fara bil þessara hópa beggja. Hallast þeir að því, að bókin hafi verið til, en aðeins tekið til sunnudaga- guðspjallanna, „ekki verið prentuð fyrr en á Breiða- bólstað, líklega milli 1540 og 1550 og því yngri en Nýja testamenti Odds — og einmitt gerð því til mótvægis, svo að prestar hefðu hér guðspjallatexta sína í samhljóðan við hina viðurkenndu Vulgata-þýðingu kaþólskra.“ (S.J.Þ.: tsl. bibl, bls. 6). Fæst líklega seint úr þessu máli skorið. >> (J.H.: Biskupasögur II, bls. 38). 2> (A.J.: Crymogæa, bls. 209). 3> (Annálar 1400-1800, bls. 104). 4> (Biskupasögur Bókmenntafélagsins II, bls. 693). 5> (sjá G.J.: Síra Jón ... bls. 182). 6> (H.Þ.: Formáli ... bls. 330). Heimiidir: Annálar Bókmenntafélagsins 1400—1800, 1. bindi. Reykjavfk 1922. Arngrlmur Jónsson: Crymogæa sive rerum Islandicar- um libri III. Havniæ 1951. Biskupasögur, gefnar út af Hinu Islenska bókmenntafé- lagi. II. bindi. Kh. 1878. Collijn, Isak: Tvá blad af det förlorade Breviarium Nidr- osiense, Hólar 1534. i: Sártryk ur Nordisk Tidskrift för Bok- ock Bibliothecsvásen. Arg. I (1914). Diplomatarium Islandicum. íslenskt fornbréfasafn. Kaupmannahöfn og Reykjavlk 1857—1972. Guöbrandur Jónsson: Herra Jón Arason, 1550—1950. Reykjavík 1950. Guðbrandur Jónsson: Slra Jón Matthlasson sænski. i: Arbók Landsbókasafns íslands, 1950—1951, Reykjavlk. Gunnar Pálsson: Typographiæ Islandicæ. (Lbs. 75, folio). Hálfdán Einarsson: Sciagraphia historiæ literariæ Is- landicæ, Havniæ 1777. Hallbjörn Halldórsson: letraval I prentsmiöjum á fyrstu öld prentlistarinnar á islandi. i: Arbók Landsbókasafns islands, 1946—1947. Reykjavlk. Halldór Hermannsson: lcelandic Books of the Sixteenth Century (1534—1600). Islandica. An Annual relating to lceland and the Fiske lcelandic Collection in Cornell Uni- versity. IX. N.Y. 1916. Halldór Hermannsson: Prentsmiöja Jóns Matthlassonar. i: Sérprentun úr Almanaki O.S.T.; Winnipeg 1930. Halldór Hermannsson: Formáli aö Monumenta Typo- graphica Islandica, Vol. II (Guöspjallabók 1562). Kaupmannahöfn 1933. Hannes Þorsteinsson: Formáli aö Ævisögu Brynjólfs biskups Sveinssonar. i: Jón Halldórsson, Biskupasögur II. Reykjavlk 1911 — 1915. Haraldur Nlelsson: De islandske bibeloversættelser. í: Særtryk af studier tilegnede professor, dr. phil & theol. Frants Buhl. (Kh. 1925). Haraldur Sigurösson: Fjögurra alda afmæli bókageröar Guöbrands Þorlákssonar biskups, 1575—1975. í: Arbók Landsbókasafns (slands, 1975. Nýr flokkur. Reykjavlk. Harboe, Ludvig: Kurze Nachricht von der islándischen Bibel-Historie. i: Dánische Bibliothec, VIII. Kh. 1746. Jón Espólln: islands Arbækur I sðgu-formi, af Jóni Espolin. IV. deild. Kh. 1825. Jón Halldórsson: Biskupasögur II. Hólabiskupar 1551—1798. Reykjavlk 1911—1915. Klemens Jónsson: Fjögur hundruö ára saga prentlistar- innar á islandi. Reykjavlk 1930. Magnús Már Lárusson: Formáli aö endurútgáfu Guö- brandsbibllu. Reykjavlk 1956— 1957. Magnús Már Lárusson: Guöspjallabók Ölafs Hjaltasonar. i: Arbók Landsbókasafns Islands, 1966. Reykjavlk. Páll Eggert Ólason: Menn og menntir siðskiptaaldarinn- ar á Islandi. Reykjavlk 1919—1926. Páll Eggert Ölason: Saga Islendinga, iV. bindi. Reykja- vlk 1944. Páll Eggert ðlason: Islenzkar æviskrár !—V. Reykjavlk 1948—1952. Steingrlmur J. Þorsteinsson: islenzkar bibliuþýðingar. I: Sérprentun úr IV. árgangi Vlöförla. Reykjavlk 1950. Þorkell Jóhannesson: Prentlistin kemur til íslands. i: Prentlistin 500 ára. Reykjavlk (1941). LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23. MARZ 1985

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.