Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1979, Qupperneq 15
fimm ungum og myndarlegum konum er
hafa umsjón með málafylgjunni, á hinum
alþjóðlega baráttudegi.
Krafan um frjálsar fóstureyöingar er
ekki vel við eigandi á ári barnsins og svo
er hún óþörf hér á landi, því hér eru
fóstureyðingar næstum því alfrjálsar og
hér er líka greitt fyrir því, að fólk geti
fengið getnaöarvarnir.
Krafan um rétt konunnar til aö ráða yfir
eigin líkama, er út í hött, þvt þær hafa
hann. Konur geta ráðið því, hvort eða
hvenær þær verða barnshafandi.
í greininni er sagt frá því að á ítalíu hafi
veriö sett lög um fóstureyðingar með
þeim ágalla, að stúlkur undir lögaldri
fengju ekki fóstureyðingu, en þyrftu mest
á henni aö halda. Þess er líka getlö, aö í
þessum lögum, hafi læknar heimild til aö
neita, aö framkvæma fóstureyðingar,
samvisku sinnar vegna og í sumum
héruðum hafi 90% lækna neitaö.
400 manns, sem varnað
var lífs
Þessi afstaöa lækna á ítalíu, er gleði-
legur vottur um, hvaða áhrif kristin trú
hefur haft á hugarfar þeirra. Hafa þessar
myndarlegu konur aldrei hugleitt það,
hver röskun það hefði veriö á framvindu
sköpunarverksins, ef lífi þeirra heföi verið
eytt í móðurkviöi? Heföi þaö ekki verið
skaði fyrir íslenzkar konur, ef lífi Bríetar
Bjarnhéðinsdóttur heföi verið eytt á
frumstigi.
Þessar konur ættu aö hafa skyggnigáfu
og geta séö, fjögur hunduö manns, sem
varnað var lífs á einu ári, saman safnaö á
Austurvelli eöa hafnarbakkanum, meö
eðlilega ásökun í svipmóti.
En fyrst þessun konum var leyft aö
fæöast inn í efnisheiminn og gegna þar
hlutverki, ættu þær að fara til Italíu meö
mikið magn af pillum og fá leyfi Páfa til að
útdeila þeim tii þurfandi kvenna.
íslendingar þekkja vel lögmál orsaka
og afleiöinga. I þjóösögum og æfintýrum
er það rauöur þráöur, að góöum manni
vegnar vel, en afbrotamaður verður að
þola refsingu.
í Snorra-Eddu er ritað: „Þessar heita
valkyrjur; þær sendir Óðinn til hverrar
orrostu; þær kjósa feigð á menn ok ráða
sigri. Guðr og Róta ok norn in yngsta, er
Skuld heitir, ríöa jafnan at kjósa val ok
ráða vígum.“
Valkyrjur eöa örlaganornir kjósa feigö
á menn og ráöa sigri, innheimta örlaga-
skuldir, eftir því sem efni standa til.
Hugmyndir Ásatrúarmanna og Gyöinga
um þetta efni, eru nálega þær sömu.
í 1. þók Móse stendur skrifaö; „Sólin
var numin upp yfir jörðina, er Lot kom til
Zóar. Og Jahve lét rigna yfir Sódómu og
Gómorru brennisteini og eldi frá Jahve af
himni. Og hann gjöreyddi þessar borgir
og alt sléttlendiö og alla íbúa borganna
og gróður jaröarinnar."
Um Nóaflóö stendur líka skrifað í 1.
bók Móse: „Og jöröin var spillt í augsýn
Guös og jöröin fylltist af glæpaverkum.
Og guð leit á jörðina, og sjá, hún var spillt
oröin; því aö allt hold haföi spillt vegum
sínum á jöröunni“.
Aö berjast viö
sjálfan sig
Tvíhyggja Sigurðar Nordals, baráttan
millí góös og ills, kemur heim og saman
við kenningar Ásatrúarmanna og Gyð-
inga.
„Hann fyrirgefur ekki, en sæla vor er aö
komast á það stig, aö hann þiggi liö vort.
Hann hegnir ekki, en ef vér leggjumst á
móti honum neyöist hann til að berjast
við oss. Og ef líf vort er eilíft, verður það
líka eilíf barátta meö honum eða móti“.
íslengingar hafa ekki háð blóöuga
árásarstyrjöld viö aörar þjóðir, og ef til
vill hefur það verið þessvegna, að þeir
ÁSTRÍKUR Á GOÐABAKKA
Eftir Gosclnny og Uderzo. Birt i samráði við Fjölvaútgáfuna.
EN ALLIR V/LL/-^
CjELTIR ERUAÐTLÝJA
___SKÓGINN..
'LATT EKK/ 5VONA,
5 TEINRÍKUR. SJÓO
RÍKVRVEITAUTAF,
HUfí-0 HfíNNSmc-l/Ryt,
KAOS R1N6ULREIÐIBUS ER t SJO- I
UNOA H/MNJ T/L HJEGRL HfíNN
VERÐUR HEtMSFRÆOUR FVRtREFNA',
HAOSUNDRIÐ. OU RÍKJ MEÐÖ/<EVP/S\
f rtnirj uj i tt isr\ > is• t t t is v/'t- 7
fl þR£Lfí VtNNUfíFL TAKA UPPPRÓS
* I cKiTiirppcm
ENTUKEPFT/J
' /A,AP V!SU! No|
EN HiTTÆTTtAÐ'
VERA ÞÉR NOKKUR
SARABÓT AÐ ÞÚFJERÞ
RÓMVERJA OG KRtLt/
•^LJÓSASTA URA-^K
^ E(x VONA AÐ ÞA&
RÆT/ST. ÉG VONA TtL
TÚTTA.AO ÞAF>
RÆT/ST!
PURKUS HPOTJBUS FR FKKl ALVEG EJNS ÁNÆCOUR. Ai> VtSU HFFUR
'AOÆTUR KJARADÓMUR VER10 SETTUR A FÓT, ENFUND/R STANOA ALLAR
NÆTUR, PURKUS SVEFNLAUS, 06ENNER AÐEINS R/F/ST UM HLUNN/ND/...
^ PURKUS, É6 JETLA AO SKREPPA^
TtL RÓMARAÞ SE6JA JÚLLA FRA
BLÓMLEGA BLÓMA T/MANUMSFM Á
.BLÓMófíST í GAUi VEPJfíBÆ'
S*8*ÍKa
STRAJ 06 FVRSTA FJÖLBVLIS-
HÚStÐ 5TENDUR T/LBU/O 06
ROMVFRSK/ BORGARL VDURINN
SFSTAÐ 'A 60ÐABAKKA, HðFUM
VIÐ GEPStGRAP GAUHJERJA...
r HL USTAÐU BARA
Á NVJA MATAR.KALL/Ð.
ÞAÐ E/NA SEM SAM-
KOMULAG HEFUR TEK/ST
UM í KJfíRft U/ÐRÆ-DUN'
UM. NÆST V/LJA ÞE/R
k FÁ AD SOFA ÚTÁ Á
^JJCRG uaMA..
r EN UERST ER.ftD
'AÐUR HAF/Ð Þ/t>
GERStGRAD RÓM-
^UVERSKA HER/M/V-
sluppu svo vel viö hörmungar síöustu
heimsstyrjaldar. En nú berjast íslending-
ar viö sjálfa sig. Þeir eyða lífi barna sinna
að óþörfu. Á annaö þúsund mannslífum
hefur verið fargað á þremur árum, af
félagslegum ástæðum, frjálslyndi og
handahófi.
Ég óttast, aö meö þessu myndist
örlagaskuld, sem verður að greiöa, því
hver er sinnar gæfu smiöur og réttlætis-
lögmálið lætur ekki aö sér hæða, en þá
stund veit enginn, þegar skuldin veröur
krafin.
Þaö er ekki hægt aö syndga upp á
náöina og hefur aldrei veriö. Kristin kirkja
boðar fyrirgefningu synda með ströngu
skilyröi, sem er iðrun og yfirbót. Ef til vill
gæti íslenzka þjóöin fengið einhverja
eftirgjöf á skuldinni, ef fóstureyðingar, aö
óþörfu yrðu nú bannaðar, og lögin sem
voru fyrir 1975 yrðu látin taka gildi aftur.
Þegar rætt er um fóstureyöingar, eiga
fyrirmæli sýslumanns Húnvetninga vel
við: „Enginn má undan líta“.
1. maí 1979.
Björn Egilsson
LESBÖK
kemur ekki úl næstu
Þrjár vikurnar. 28. tbl.
kemur út 11. ágúst.