Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1979, Page 10
Mynd af
skdldi
HVER
VAR
THOMAS
CHATT-
ERTON?
Eftir
Guðnínu
Þórarinsdóttur
Margir munu kannast viö Tate Gallery í
London. Þetta víötræga listasafn stendur
á bökkum Thamesár, nokkru neöar en
þinghúsiö. Þar eru geymd málverk
þekktra breskra málara t.d. Hogarts,
Gainsboroughs, Stubbs, Blakes og Turn-
ers, en einnig fjölmörg listaverk önnur
bæöi gömul og ný, víðsvegar aö úr
heiminum.
Má þar nefna Picasso, Cézanne, Mat-
isse, Giacometti, Henry Moore, o.fl. Þaö
er samankomiö á einum staö bezta safn
Turnermálverka sem til er í þrem stórum
sölum.
Rétt innan viö anddyriö blasir viö hin
víöfræga höggmynd Rodins „Kossinn."
Þegar áfram er haldiö um hina stóru sali
veröur förin tafsöm því oft þarf aö staldra
viö, sérstaklega þegar fyrir augu ber
frummyndir af gömlum kunningjum úr
listaverkabókum. Einn slíkur kunningi er
„Stóllinn og pípan“ eftir Van Gogh.
En líklega eru þaö fleiri málverkin sem
gestirnir sjá þar í fyrsta sinn. Sumir
staldra lengi viö málverk af ungum
fallegum pilti meö eldrautt hár, sem
liggur á legubekk í fátæklegu súöarher-
bergi. Ofan viö bekkinn er opinn kvist;
gluggi og í honum stendur rós í potti. A
gólfinu er hrúga af pappírssneplum og
meöalaglas. Fölvinn á andlitinu bendir til
aö ungi maöurinn só dáinn. Hver er
hann? Misheppnaö skáld? Viö myndina
stendur aöeins „Chatterton" og aö hún
sé máluð af Henry Wallis (1830—1916).
Þaö er eitthvað viö myndina, sem
veldur því aö ég fer aö leita upplýsinga
um Chatterton. Mikiö rótt — hann var
skáld og saga hans er sérstæö og
dapurleg.
Thomas Chatterton var fæddur í Bristol
áriö 1752. Hann var sonur fátæks kenn-
ara, sem dó áöur en Chatterton fæddist.
Á unga aldri las hann allt sem hann náöi í
m.a. hundruö einskisveröra erföaskráa
og lögfræöilegra skjala frá miööldum
sem hann tók úr geymslu kirkju Heilagrar
Maríu Redcliff sem stóö skammt frá
heimili hans.
Átta ára var hann sendur í skóla og
tæpra 15 ára byrjaöi hann sem lærlingur
hjá lögfræöingi í Bristol.
Um þaö leyti er Chatterton varö 12 ára
fór hann aö tala um munk nokkurn
Thomas Rowley aö nafni, sem talinn var
vinur og skriftafaöir kaupmannsins Willi-
am Canynge frá Bristol, en hann var uppi
á 15. öld. Tók Chatterton nú aö sýna
mönnum handrit meö kvæöum eftir
Rowley, sem hann sagöist hafa fundiö í
rykföllnum hirzlum kirkjunnar. Þegar ný
brú var vígö í Bristol áriö 1768 sendi
Chatterton blaöinu „Felix Farby Bristol
Journal“ frásögn af „fyrstu ferö borgar-
stjórans yfir Gömlu brúna" (árið 1248)
sem átti aö vera skrifaö af „Dunelmus
Bristoliensis". Sagöist Chatterton hafa
fundiö þessa frásögn í gömlu handriti.
Þetta var fyrsta bókmenntalega fölsunin
sem birtist eftir hann á prenti.
Hann reyndi án árangurs aö fá útgef-
andann James Dodsley í London til aö
gefa út „Rowley Ijóöin."
Snemma á næsta ári sendi Chatterton
nokkur „forn ensk kvæöi“ til Horace
Walpole, þar á meöal verk eftir „Rowley“
t.d. „The Ryse of Peyncteyne yn Eng-
lande, wroten bie T. Rowleie, 1469, for
Mastre Canynge.“ Walpole þakkaö kurt-
eislega fyrir sendinguna og Chatterton
sendi þá fleiri handrit og skýrði jafnframt
frá erfiöum aöstæöum sínum og baö
Walpole ásjár. Walpole sendi handritin til
Thomas Grey og William Mason en þeir
kváöu skjótt upp þann dóm aö handritin
væru fölsuö. Walpole ráölagði Chatterton
þá aö halda sig viö laganámið.
Chatterton tókst þó aö fá sig lausan úr
náminu meö því aö hóta aö fremja
sjálfsmorö. Hélt hann síðan til Lundúna
árið 1770. Vonaöist hann til aö geta oröiö
blaðamaður. Hann var reynslulaus dreng-
ur gæddur snilidargáfum, bjartsýnn en
þó kaldhæðinn. Hann var of stoltur til aö
láta aöra vita um erfiöar kringumstæður
sínar. Hann sendi móöur sinni og systur
fallegar gjafir meöan hann sjálfur svalt til
þess aö leyna þær hinu sanna.
Eftir fjóra mánuöi haföi honum aðeins
tekist aö vinna sór inn 5 pund meö
ritstörfum.
Hann haföi lært nokkuö í læknisfræöi í
Bristol og reyndi árangruslaust aö fá
stööu sem aöstoðarmaöur læknis á
seglskipi. Úrkula vonar um nokkurn
frama eyöilagöi hann handritin sín, tók
inn arsenik og lóst næsta dag.
Þaö kom brátt í Ijós aö öll „Rowley
ljóöin“ og önnur handrit sem Chatterton
þóttist hafa fundiö voru fölsuö. Hins
vegar stóöu dellur í 80 ár um þaö hvort
Chatterton væri raunverulegur höfundur
þeirra, en þaö tókst þó aö lokum aö
sanna aö svo væri.
Seinni tíma gagnrýnendur hafa mjög
lofaö Ijóösnilld og stíl Chattertons, sem
dó áöur en hann varö 18 ára.
Hann hefur einnig orðið þekktur sem
táknmynd skáldsins — líf hans hefur
orðiö kveikjan aö verkum margra lista-
manna, t.d. Alfred De Vigny, Samuel
Taylor Coleridge, Dante Gabriel Rossetti,
William Wordsworth o. fl. „Rowley Ijóöin"
voru gefin út 1911.
Ekki er mér kunnugt um aö nokkuö af
verkum Chattertons hafi veriö þýdd á
íslensku en ég læt fylgja meö eitt af
Ijóöum hans.
Guðrún Þórarinsdóttir.
Ministrel's Song
Ohl sing unto my roundelay:
Ohl drop the brlny tear wlth me;
Dance no more at hollday;
Like a runnlng rlver be.
My love Is dead,
Gone to his death-bed,
All under the wlllow-tree.
Black his hair as the winter nlght,
White hls rode as the summer snow,
Red his face as the mornlng llght;
Cold he lies in the grave below.
My love Is dead,
Gone to hls death-bed,
All under the willow-tree.
Sweet his tongue as the throstle’s note,
Quick in dance as thought can be,
Deft hls tabour, cudgel stout;
Ohl he lies by the willow-tree.
My love is dead,
Gone to his death-bed,
All under the willow-tree.
Harkl the raven flaps his wlng,
In the briared dell below;
Harkl the death-owl loud doth sing
To the night-mares as they go.
My love is dead,
Gone to hls death-bed,
All under the willow-tree.
Come, with acorn-cup and thom,
Drain my hartys blood away;
Life and all its good I scorn,
Dance by night, or feast by day.
My love Is dead,
Gone to his death-bed,
All under the wlllow-tree.
Water-witches, crowned wlth reytes,
Bear me to your lethal tlde.
I dlel I comel my true love walts; —
Thus the damsel spake, and dled.
Thomas Chatterton.