Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1979, Side 5
— Maður kemur heim og er góöur,
sagði hann. Er þér Ijóst að ég hefði
getað verið miklu lengur í bænum? Ég
gæti verið í helvíti fínu stuði núna. í
staðinn kemur maður heim og er góður
við svona þræsulega kellingu. Fjandinn
hafi það, hvaö ég er vitlaus og heimsk-
ur!
Hún eigraöi aftur og fram í eldhúsinu
og vissi ekki hvað hún ætti af sér aö
gera.
— Svona vertu nú kyrr, sagði Rick-
ard við mig. Þú getur alltaf komið þér
heim. Nei, sagöi ég, blessuð konan mín
bíður eftir mér. Ég vil fara heim til elsku
konunnar minnar. Ertu undir hælnum?
spurði Rickard. 0, faröu til helvítis
sagði ég. Mér þykir gott aö vera heima.
Mér þykir vænt um elsku konuna mína
af því að hún er svo andskoti ágæt. Þú
getur að minnsta kosti komiö meö í
Gambrinuskjallarann, sagði hann. Nei,
stopp nú, sagði ég. Ég ætla heim til
elsku konunnar minnar. Þaö er ekkert
gaman að þér lengur, sagði hann. Viö
skulum skemmta okkur helvíti vel
núna, ég finn lykt af hvar við getum
náð okkur í flösku. Ég get næstum
bölvað mér upp á að ég get náö í
flösku fyrir kvöldið, sagði hann. Þú
ættir aö koma heim meö mér, Sören.
Við skulum skemmta okkur heilt helvíti
heima hjá mér, sagði hann. Nei, sagöi
ég. Nú fer ég heim. Ég rek við hjá Berg
og kaupi dálítiö af ávöxtum handa
konunni minni, sagöi ég. Hún er alveg
vitlaus í vítamín, sagði ég, ég sagði
ekkert annað en gott um þig, andskot-
ans eitursúra kelling.
Hún stóð við eldavélina og sneri baki
í hann.
— Maöur kemur heim og er góður,
sagði hann aftur og var hæst ánægöur
að hafa hitt á þessi orð. Þau héngu
eins og loftfimleikaslá yfir höfði hans,
og hann stökk til og greip um slána og
sló margar flugur í einu höggi. Hann
henti á lofti allskonar atburöi og
loftfimleikasláin greip þá ágætlega,
alveg sama hvað hann hengdi á hana.
Við og viö hékk hann aðeins öörum
megin en hún hélt jafn vel fyrir því.
— Maöur kemur heim, sagöi hann
bara.
Hann var fullur undrunar yfir því aö
hann væri heima. Þaö var alveg furðu-
legt aö hann stóð þar sem hann stóð.
— Guð minn góður! hrópaði hann.
Ég gæti hafa fariö meö Rickard. Hann
er sko fínn náungi. Nú hefði maður
getað haft þaö fínt. Maður hefði getaö
tekið þátt í að tæma eina brennivín og
Rickard heföi getaö útvegaö mellur. Nú
hefði maður getað legið meö helvíti
fínni mellu. Og í staðinn fer maöur
heim.
— Sören, sagði hún og gekk til han£
og lagði hendurnar á axlirnar á honum.
Þú veist að ég vil þér allt hið besta.
Farðu nú úr. Þú sérð bara eftir því ef
þú ferð aftur í bæinn. Hugsir þú ekki
um mig þá hugsaöu um peningana.
Hann hrinti henni og hélt henni
armslengd frá sér.
— Þegar ég horfi á þig, sagði hann,
er ég alltaf meira og meira hissa á, að
ég skuli koma heim. Andskoti hlýt ég
að vera góöur. Þegar ég horfi á þig,
rennur þaö upp fyrir mér, aö ég hlýt aö
vera besti maður í heimi.
Hún gekk frá honum og vissi ekki
hvaö hún ætti af sér að gera.
— Andskoti hvaö ég er góöur!
öskraði hann.
Hún vildi aö hún gæti hlegiö. Hún
vildi að hún gæti gert að gamni sínu
meö honum. Anna gat gert að gamni
sínu með sínum manni þegar hann
kom fullur heim. Jafnvel þótt það skæri
hana í hjartað gat hún brosað og
Framhald á bls. 12
X2
Á blíðum sunnudagsmorgni
á sjálfri jónsmessunni sit ég
með Þjódviljann minn og renni
yfir hann augum. í næsta
herbergi er séra Árelíus að
flytja sína þrumuræðu og talar
um Snorra Sturluson, sjálf-
stæðisbaráttu okkar og þjóð-
anna í austurlöndum. Hann
breiðir loks sína guðsblessun
yfir allt. Fyrirsögnin á þessum
pistli er svo sótt í þessa ágætu
ræðu, þótt ég vilji nú ekki gera
orð hans að mínum.
En í þjóðviljanum er sagt frá
hátíðaræðunni hans Halldórs
okkar Laxness og á annarri
síðu messar ungur og róttæk-
ur rithöfundur og tekur sér í
munn orðið fasismi, sem var
ekkert smáorð á mínum ungu
dögum. Hér er Vésteinn Lúð-
víksson að sauma að Alþýðu-
bandalaginu og Sigurði Líndal
prófessor, sem nýlega flutti í
útvarpið tæpitungulaus al-
vöruorð á örlagastund.
Ég sótti ekki afmælisveislu
Snorra gamla Sturlusonar, og í
sjónvarpshópnum sá ég
hvergi forseta bandalags ísl.
listamanna, okkar hressilega
fulltrúa Thór Vilhjálmsson,
kannski hefur hann haft öðr-
um hnöppum að hneppa í
útlandinu. Einhver rithöfundur
hefur vonandi verið þarna,
aðrir en þeir skyldugu Halldór
Laxness og Kristján Eldjárn.
Ég hlustaöi á þau orð, sem
sjónvarpið miðlaði okkur af
dýrðartali nóbelskáldsins.
Vonandi hefur honum sagst
enn betur en þar kom fram.
Enn er hann við það heygarðs-
hornið, að vera fyrst og síðast
skemmtilegur.
Það hefur lengi þótt góð
danska á íslandi að gáfaðir
alþýðumenn í sveitum og
kauptúnum, sem margir geta
hreykt sér af þriggja vikna
farskólagöngu, taki að iðka
þrætubókarlist, hið marg-
fræga orö nóbelskáldsins. Þeir
færa að því góö rök, að þessi
og þessi sögupersóna í íslend-
ingasögum hafi samið þessa
og þessa fornaldarbók, og
standa þarna hvergi að baki
sprenglærðum útlenskum og
innlendum spekingum með
gráður og fagra titla í bak og
„Þrýstihópur
drap Snorra"
fyrir. Ein kenningin er sú, man
ekki í svipinn hver þaö var
sem niður á hana datt, að
orðsnjallasti maðurinn á hverri
öld hlyti að vera höfundur
snjöllustu bókarinnar. Þegar
búið er að slá þessu föstu er
hægurinn hjá að athuga, hve-
nær þessi og þessi fornmaður
er veginn.
Hann getur þá ekki hafa
samið aðrar bækur en þær,
sem örugglega hafa saman
settar verið á hans dögum.
Elstu handrit okkar eru einmitt
veðbókarvottorð um jarðasölu
og sifjamál, svo þau geta
þarna komið að gagni. Og
hvað Snorra Sturluson áhrærir
er hægt að fara nærri um
fæðingar og dánarár — og svo
er um fleiri kempur.
En nú skýtur upp hjá mér
óþægilegri hugsun: Góður
handritaskrifari er drepinn,
banamaður hans fer heim með
skræður hans og lætur ein-
hvern munkræfil eða annan
liðlétting á heimilinu afrita, og
skjóta inn níði um þann sem
áður hafði samið, en lofi um
þann, sem áður hafði verið
borinn þungum sökum ifhand-
ritinu.
En látum enga ótímabæra
þanka slá okkur út af laginu.
Ef við höldum okkur við þess-
ar snjöllu sagnfræðikenningar
— eða öllu heldur bókmennta-
fræði — og setjum okkur í
spor fornaldarritara, getur ým-
islegt óvænt skotið upp kolli. í
fyrsta lagi gæti ritaskrá Snorra
Sturlusonar orðið nokkuð
löng, þó ekki myndi hún slaga
hátt upp í samsvarandi lista á
síðunum framan við titilblöðin
á nýjustu ævisögubókum
Laxness og Hagalíns. En sam-
kvæmt pessari reglu mætti
eigna þeim fóstbræðrum allt
það skásta, sem ritað hefði
verið á íslandi á þessari öld.
Hugsum okkur svo í fram-
haldi af þessum möguleikum,
að það gerðist nú á okkar
dögum eða nokkru síöar aö
sprengjugreyi væri varpað á
Íslandskrílið í Natóhafinu og
að þar týndust, ásamt mann-
fólkinu, allar bækur og skjöl.
En við skulum líka gera ráð
fyrir því, að í erlendum söfnum
fyndust rifrildi úr íslenskum
bókum, sem t.d. íslendingar í
Svíþjóð og Vesturheimi hefðu
lánað börnum sínum til að rífa
af fremstu síðurnar. Gæti þá
ekki svo farið að einhver fengi
út á það góða doktorsnafnbót
að sanna, aö Bjartur í Sumar-
húsum hefði samið hina
ágætu skáldsögu Sturlu í Vog-
um, eða að Sturla hefði ritað
sögukorniö um Bjart? Ég
varpa fram þessum spurning-
um í góðu jónsmessuskapi.
En ræðukornið nóbels-
skáldsins í Þjóðviljanum og
raunar líka pistill Vésteins
Lúðvíkssonar, að ég nú ekki
tali um stólræðu séra Árelíus-
ar, bjóöa upp á frekari útlegg-
ingu á helgum degi. En ég hika
við. Það er nú af flestum talið
hróplegt guðlast, öðruvísi mér
áður brá, að segja annað en
amen og haltu til góða, þegar
skáldið talar.
Snorri var Það skálda sem
kostaði sínu höfði. Laxness
segir: var svo skálda að ekki
varð við minna unaö en taka af
honum höfuðið.
En í upphafi ræðu spyr
Laxness svo: Var Snorri
Sturluson höfundur sagn-
fræðirita eftir þeim kröfum,
sem gerðar eru í gildri sagn-
fræði?
Hverju skyldu menn svara,
ef einhverntíma væri svo
spurt: Var Halldór Laxness
skáldsagnahöfundur eftir
þeim kröfum sem gerðar eru í
gildri bókmenntafræði?
Ef gögnum verður til skila
haldið mun það sannast, að
H.L. hefur ritað hjálparlaust
þær bækur sem við hann eru
kenndar. En gild bókmennta-
fræði fer eftir viðurkenningu
síns tíma, hvers tíma. Snorri
var stórbóndi í Reykholti, átti
nóg skinn og hafði margt hjúa,
sumt voru skriftlærðir menn,
hann var og fyrirferðarmikil
persóna í íslendingasögum,
frekur til fjárins. Hann lét
höfuð sitt vegna mannlegs
breyskleika, en ekki vegna
þess sem hann skrifaði, enda
fæstir þekkt til þess, á hans
dögum. Ef hann hefur þá
nokkuð skrifað.
Jón úr Vör.