Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1979, Side 4
'T :rn
/ yLsií jLúfy J j
— Hvers vegna stendur þú ekki viö
þaö sem þú segir?
— Ætlar þú ekki aö líta í pokann?
— Þú getur látiö hann þarna, sagöi
hún. Þú sérö líklega aö ég er að þurrka
af.
— Ég þoli ekki þennan tón, sagði
hann.
— Hvers vegna feröu ekki úr frakk-
anum? spuröi hún.
— Hvers vegna lítur þú ekki í
pokann?
— Faröu nú úr, sagði hún og leit í
pokann.
í honum voru nokkur epli, tvær
appelsínur og lítill klasi af bláum
vínberjum.
— Þú getur sagt þaö sem þú villt, en
góöan mann áttu, sagöi hann og tók
undir höku hennar.
Hún hörfaði aftur á bak.
— Ojæja, það er nú eftir því hvernig
á þaö er litið, finnst mér. Farðu úr,
Sören.
Hann lét sem hann heyrði ekki og
gekk umhverfis borðið og blístraþi.
— Engin bréf?
— Nei, svaraði hún.
Hann stillti sér upp viö skrifborðið og
fór aö róta í blöðum. Hann hélt áfram
aö blístra. Svo fór hann aftur að ganga
umhverfis boröið. Hann gekk upp-
skafningslega á hælunum og smellti
niður tánum. Hún hélt áfram aö þurrka
af án þess aö líta á hann. Þegar hann
var kominn aö baki hennar byrjaði
hann aö steppa. Hann snarsnerist og
steppaöi. Þaö var hvatning.
— Heyrir þú ekki? spurði hann og
endurtók sporið þrisvar.
En hún hélt áfram að þurrka af og
sneri baki í hann. Þá greip hann um
mjaðmir hennar og reyndi aö kyssa
KEM HEIM
OGER
GOÐUR
Smásaga efftir Lars Ahlin
Halldór Stefánsson Þýddi
©
Þegar Sören Hellgren kom heim
dálítið hífaöur sparkaöi hann skóhlíf-
unum af sér í forstofunni. Hann skaut
hattinum aftur á hnakka, hneppti frá
sér frakkanum, strikaði inn og reyndi
aö sýnast glaður og frjálsmannlegur.
— Þá kem ég. Er mín vænst? sagöi
hann dáiítiö háðslega.
Hann rétti poka aö konu sinni.
Hún var aö þurrka ryk af. Hún var aö
enda viö aö taka heilan helling af dóti
niöur af kommóöunni og láta þaö á
boröiö. Hún var rétt byrjuð aö þurrka
af en hún lét sem hún hefði veriö lengi
aö. En hún var rétt nýgengin frá
glugganum. Tímunum saman hafði hún
staöiö þar og gáö aö honum.
— Þú ætlaöir bara aö skreppa
þangað og svo heim aftur, sagöi hún.
— Ég er líka rétt farinn þangaö og
heim aftur, sagöi hann og flissaði.
— Þú ætlaðir aö vera kominn heim í
síöasta lagi kl. eitt, sagöi hún.
— Og nú er hún sex, sagöi hann.
hana á hálsinn. En hún hrinti honum frá
sér og æpti:
— Hættu þessu!
— Nú, sagöi hann, þaö lítur út eins
og maður sé ekki velkominn. Já já,
maður veröur þá aö fara aftur.
Hann gretti sig yfirlætislega og
beygöi sig aftur á bak,
— Maöur verður þá aö fara aftur...
— Vertu kyrrl hrópaöi hún os sneri
sér viö. Þú verður hérna!
Hún horföi á hann dimmum örvænt-
ingarfullum augum.
Hún var Ijóshærö og stórgerö. Þaö
var þokki yfir henni í bláa kjólnum meö
hvítu svuntuna. Hún hafði þétta, sterk-
lega handleggi, breiöa höku og
þrjóskulegan munnsvip. Vinkonur
hennar sögöu aö hún skyldi taka Sören
„klókt“. Hún skildi hvaö þær áttu viö,
en hún fékk sig aldrei til aö leika
svoleiöis „klóka" leiki. Hún gat ekki
fariö aö honum meö lagni. Hún gat
ekki látið eins og hún væri ánægö. Hún
gat ekki gleymt, aö hann var fullur og
hafði misstigið sig.
— Kysstu mig, sagöi hann.
— Já en, Sören, þú veist aö ég vil
þér vel. Faröu nú úr!
— Kysstu mig, sagöi hann.
Hún yfirvann sig, gekk til hans og tók
af honum hattinn og strauk honum yfir
háriö. Hann lyfti undir höku hennar og
kyssti hana. Hún gat ekki komið í veg
fyrir aö nokkur tár hryndu niöur vanga
hennar.
— Af hverju grætur þú? spuröi
hann. Ég kem þó heim og er góður.
— Þú áttir aö vera kominn heim
eins og þú sagðir, sagöi hún og strauk
honum um brjóstiö. Ég hef staðið hér
og beöiö ...
— Treystir þú mér ekki? spurði
hann.
— Má ég færa þig úr frakkanum?
— Þaö hastar ekki.
— Þaö er engin meining í aö vera í
frakkanum, sagöi hún. Faröu úr honum
og leggðu þig og hvíldu þig. Ég skal
búa til eitthvað virkilega gott handa
þér.
— Ég er ekki svangur, sagöi hann.
— Nei, auövitaö ekki, sagöi hún og
varö aftur önug. Þú hefur auðvitað
verið á veitingahúsi og etiö og drukkið.
— En nú er ég kominn heim og er
góöur, sagöi hann.
— Hvaö hefurðu sóaö miklum pen-
ingum?
Hann steig skref aftur á bak og var í
hæsta máta misboðiö. Hann sló hnef-
anum í boröiö og æpti:
— Þegar ég kem heim og er góöur
vil ég sjá glöö andlit annars fer ég
aftur. Skiluröu þaö?
— Faröu nú úr frakkanum, baö hún
og gekk alveg til hans og reyndi aö
færa hann úr, en hann sló á hendur
hennar.
— Hér kemur maöur heim og er
góöur og þá er manni mætt með
súrum svip! æpti hann. Þaö er ekki aö
furða þótt maður haldi sig burtu, þegar
maöur hefur lent í því að giftast svona
rófu eins og þér. Ef ég væri verri en ég
er, þá sæir þú mig aldrei heima. En ég
kem heim og er góöur og hef keypt
handa þér ávexti og þú villt ekki einu
sinni líta í pokann.
— Ég hef skoöaö í hann, sagöi hún.
— En þú hefur, fjandinn hafi þaö,
ekki einu sinni þakkaö fyrir, æpti hann.
— Þakka þér fyrir, sagöi hún og
rétti honum hendina en hann sló hana
burt.
— Ég get ekki séð aö þú sért neitt
þakklát, bölvuö bykkjan þín, æpti
hann.
— Haföu þaö eins og þú villt, sagöi
hún og fann aö hún gat ekki meira.
Æ, hugsaði hún, bara að ég væri
ööruvísi gerð! Ég ætti aö vera eins og
Anna. Hún hlær og er glöö hvenær
sem maður hennar kemur heim. Hún
fer að honum meö lagni og kemur
honum úr fötunum og háttar hjá
honum. Stundum lemur hann hana, en
samt brosir hún viö honum. Maöur
skyldi halda að hún finndi ekki til, en
þaö gerir hún. Hún þjáist. Ég þekki
hana. Æ, ég ætti að vera eins og hún!
Hún fór fram í eldhúsið. Hann setti
aftur á sig hattinn. Hann lét harin
hallast yfirlætislega aftur á hnakkann.
Ljóst háriö féll fram á enni hans. Henni
þótti mjög vænt um hann. Hana
langaði til aö þrýsta honum aö sér.
Hana langaði mikiö til aö segja honum
hvað hún hataði sjálfa sig fyrir þaö aö
hún var ekki léttlynd og eins og hann
vildi aö hún væri.
— Maður kemur heim og er góöur,
sagöi hann.
Hann staðnæmdist á þröskuldinum
milli stofunnar og eldhússins.
— Maöur kemur heim og er góöur,
sagöi hann aftur.
Hann var mjög hrifinn af þessum
orðum. Þótt hann heföi endurtekiö þau
mörgum sinnum var eins og hann heföi
aldrei heyrt þau áöur, fannst honum.
Sannari orð voru ekki til! Þau hittu vel í
mark! fannst honum og hann festi þau í
loftiö og þau uröu aö loftfimleikaslá,
sem hann gat hengt allt sitt líf á og
samt hélt hún.