Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1968, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1968, Blaðsíða 10
OFSAVEÐUR OG ROKKURINN BÚINN AÐ GEISPA GOLUNNI Rœtt við Gunnar Marel, skipasmið í Vestmannaeyjum Gunnar Marel Jónsson í slipp Við heimsittum fyr'r skömmu Gunnar Marel Jjnsson skipa- smið í Vesimannaeyjum. Gunn- ar he ur smíöað á annan tug nýrra skipa um ævina, sem alls eru á 5. hundrað tonn. Þá hef- ur IjU nar baeöi st inJað sj >- mennsku og útgerð og er lík- lega elzti ú.gerðar.Mnður í Ey^- um í dag. íiunnar ka‘ n frá mörgu aö se ja tg við robWð- um við' hann um svaðilfarir hans a sjo og athafnir á landi. Fer við -alið hér á eftir: — Hver er uppruni þinn, Gunnar? — Ég er fæddur 1891 í Fram nesi við Evrarbakka og var al- inn upp á B' ggðarborni í Fl j- anum fram til 17 ára aldurs. Ég vann ]>a*' við öll almenn sveitastörf eins og gengur og geris', s átt, hevskap ogskepnu liirðingu. Nú, 14 ára gamall fór ég til sjós á vet-arvertíð í Höfn um og réri á áras,ripi næstu 3 vertíðir. Árið 1908, þá 18 ára gamail, fluttist ég til Vestmanna evja og hér hef ég átt heima síðan. Ég kvæntist S'g’rlaugu Páls dóttur frá Ilvolsnesi árið 1914 og við höfum átt 12 börn, en 3 börn eignaðist ég áður en ég kvæntist. — Þú varst til sjós framan af? — Já, ég var til sjós og var sjómaður á mót"rb:>tum, ýmist vélstjóri eða formaður í 15 ár, en þá hætti ég að r ia. I»á snéri ég mér að bátaviðgerðum, en reyndar hafði ég í og með stund að bátaviðgerðír áður í Eyjum á milli vertíða. Árið 1925 var ég einn af stofnendum Dráttar- sínum og sona í Eyjum. brautar Vestmannaeyja og þar hef ég rekið skipaviðgerðir og skipasmíðar síðan. — Lentir þú ekki einhvem- tíma i svaðilförum á árum litlu skipanna? — Ja, það er nú vart hægt að segja það, o, jú, revndar tvisvar kemur mér í hug. Það var líklega árið 1923 að við vorum að fara frá Siglufirði til Eyja með viðkomu í Reykja- vík, en við vorum þá að koma af síid, á Þorgeir VE. Við lest- uðum frosna síld í Reykjavík, sem átti að fara til Eyja og frá Reykjavík héldum við, sem leið liggur í smá gutlanda. Út af Reykianesinu st >ppaði vélin og við vorum að bra>«a við r-'kki' n í tvo tima, en þá fór hann í gang. Ég var þá 2. vél- stjóri á bátnum, en Eyvindur Þórarinsson var skipstjóri. Eftir því sem við komum vest ar þyngdi veðrið og var kom- ið helvítis hífandi rok áður en langt leið. Við komumst austur fyrir Þrídranga, sem eru liðlega klukkutima stím frá Eyjum, en þá var kominn leki að bátnum svo mikill að dælurnar höfðu ekki við. Þá var tekið það ráð að létta bátinn og tókum við því hluta af síldinni úr lest- inni og hentum fyrir borð. Að þessu loknu lokuð"m við lest- ínni og snérum við undan veðr inu. Með miklum látum gátum við haldið í horfinu, og þegar við komiim út af Sandgerðl mætt um við biörgunar'kipinu Geir, sem hafði verið fengið til að leyt okkar. Geir tók. okkur i slef og dró okkur til Reykjavíkur. Þar var gert við bátinn og um síðir kom umst við til Eyja með frost- síldina óskemmda, en þá höfðum við verið 3 daga með bátinn til viðgerðar í Reykjavík. llpp úr þessu komst Þorgeir svo í eigu Gunnars Ólafssonar O Co., en Gunnar kallaði bátinn oft „Þor geir draug' vegna þess að bát- urinn var svartur að lit. I fyrra skiptið, sem ég lenti í hrakningum vorum við að fara frá Eyjum til Stokkseyrar í september. Við vorum á bátnum Rán, en skipstjóri var Þor- valdur Guðjónsson, eða Vald'i Guðjóns, eins og hann var allt- af kallaður. Eftir að vera búnir að lesta bátinn á Stokkseyri, náttuðum við þar, en lögðum síðan af stað til Eyja í bítið næsta morg un í góðu veðri. Við vorum með fullan bát af vörum og með al annars jarðávexti í lest og hey, mó og töðu á dekki. Bát- urinn var því kyrfilega lestað- ur og auk þess höfðum við II farþega, 9 ungar stúlkur og 2 karlmenn. Nú, við sigldum af stað í himinsins blíðu og gekk svo um sinn á kyrrum sæ. En innan tíðar fór hann að kræla á sér og þegar við vorum komnir aust ur fyrir Loftsstaði þyngdi vind inn og gangtruflunar fór að verða vart í rokknum. Skömmu seinna fór vélin að stoppa og gekk aðeins annað veifið. Þann ig gekk dagurinn, það var keyrt smá tíma og þá stanzaöi vélin og það varð að hreinsa síur og Sitthvað fleira áður en hægt var að gangsetja aftur. llm nóttina vorum við komnir austur fyrir Þrídrang, einmitt á svipaðar slóðir og á Þorgeir og þá var komið ofsaveður og vélin búin að geyspa golunni fyrir fullt og allt. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fékkst rokk- urinn ekki e'inu sinni til að hiksta og þá var ekkert annað að gera en grípa til seglanna. Við settum upp stórsegl, klýf ir og fokku og ætluðum að ná vestur flóann, upp undir ham- arinn við Eyjar. Það var kom- in bullandi ágjöf og við skár- um utan af nokkrum heybögg- um og settum ofan í lúkarinn. Niður í lúkarinn rákum við síð an kvenfólkið hvort sem það vildi eða ekkí og síðan hreins- uðum við allt í hafið af dekk- inu. Eftir að þessu lauk og við höfðum siglt í nokkra tíma, rifn uðu forseglin bæði og þá var ekki um annað að gera en að snúa við. Við tvírifum stórsegl- ið og sigldum á því sem t«k til lands þar til Við töldum okkur fría af Þrídröngum Þá snerum við bátnum út i til þess að reyna að komast nógu djúpt á Reykjanesið. Um nótt- ina klukkan 2 fór stórseglið líka í tætlur og þá settum við út drifanker og létum bátinn reka fyrir því. Astandið var samt prýðilegt um borð og stúlk urnar stóðu sig eins og hetj- ur í volkinu. Báturinn varði sig nokkurn veginn í áföllunum alla nótt- 'ina, en við birtu næsta morgun lygndi austanáttinni og gekk í suðvestur með hanga. Hvessti þá allmikið af hafi, en þá var ekkert eftir til að sigla með nema afturseglið og hom af fokkunni, sem við tjösluðum saman. A þessu sigldum við á land án þess að hafa skyggni, en um 4 leytið um daginn sáum við Eldey á stjórnborða og eftir því miði sigldum við áfram þar til við höfðum gott lenz gegn um „hullið, eða Reykjanesröstina. Nú, við sluppum slysalaust í gegn um „hullið, og þá hitt- um við kútter Ihoe, sem var á leið til Eyja, en hafði beðið af sér veðrið undir Kistubergi. Við fengum hjá þeim olíu á brúsa og eitt brauð, því að við vor- um algjörlega orðin kostlaus. Þegar við höfðum tengt olíu Framh. á bls. 13 Vélbáturinn Helgi, sem var 119 tonn og sigldi m.a. 120 ferðir á milli íslands og Englands í síðari heimsstyrjöldinni. 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 27. október 1968

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.