Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.1967, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.1967, Blaðsíða 15
- BÓKMENNTIR Framlhald af bls. 6 Þótt ríkið yrði grískt, voru erfðavenj- hr og pólitískar erfðir romverskar. Róm- verjar höfðu vanizt því á keisaratím- anum að hafa takmarkaðan áhuga á her- mennsku; styrjaldarátök voru einkum við landamærin og hermennirnir voru málalið frumstæðra þjóðflokka. íbúar Austur-rómverska ríkisins voru frábitn- ir ófriði og styrjöldum, en eina lífsvon ríkisins var herinn. Því var það, að Heraklíus hlaut litla aðdáun fyrir að sameina aftur herstjórn og borgaralega stjórn í umdæmum ríkisins. Þetta var gert af bráðri nauðsyn og mátti segja að skipulag hans hafi bjargað ríkinu. Höfundur skýrir ágætlega áhrif og þýð- ingu kristninnar á hugsunarhátt og póli- tík landstjórnenda. Kristnin var ríkis- trú, og æðsti maður ríkis og kirkju var keisarinn og það sem meira var, sú skoðun varð ríkjandi, að ríkið væri út- valið af guði og þessu fylgdi sú for- lagatrú, að allt sem gerðist væri að guðs vilja. Sigur og ósigur var ákveðinn af guði. Höfundur rekur sögu Býzans þessar aldir, tæp fimmhundruð ár, í tímaröð. Bókin er mjög samþjöppuð, en þrátt fyrir það hefur höfundi tekizt að greina frá því, sem flesta skiptir máli um þetta ríki á þessu tímabili. Bókin er mjög liðlega skrifuð og skemmtileg af- lestrar. Kort, bókaskrá og registur fylg- ir. T he Pelican History of Art“ tók að koma út 1953. Ætlunin er, að bindin verði alls um fimmtíu, og eru nú komin út tuttugu og sjö bindi. Þetta er ein mesta listasaga, sem nú er á markaðin- um og er að koma út. Ritverkið kemur út í sjálfstæðum bindum, og hefur mjög verið vandað til höfunda. Hvert bindi er um tvöhundruð myndasíður og um fjögur til fimmhundruð lesmálssíður. Myndir eru svart-hvítar. Ýmsir kynnu að sakna litmynda, en þótt miklar fram farir séu í litmyndagerð, vilja þær oft gefa skakka hugmynd um frummyndirn- ar; þær vilja oft verða ýktar og einn liturinn vill stundum rýma öðrum út. Prentun, pappír og band er með ágæt- um. „Early Christian and Byzantine Architecture“ er sett saman af Richard Krautheimer, sem er einn fremsti mið- aldalistfræðingur sem nú er uppi. Hann stundaði nám í föðurlandi sínu, Þýzka- landi, og starfaði þar við háskóla, þar til hann hvarf til Bandaríkjanna og starf ar þar við Háskólann í New York. Hann hefur skrifað og gefið út bækur um miðaldalist.; Mesta rit hans fram til þessa er „Corpus of Early Christian Basilicas in Rome“. í þessu riti rekur höfundur sögu býz- anskrar og fornkristinnar húsagerðar- listar, svo að ritið spannar ekki aðeins býzanska ríkið, heldur einnig önnur kristin lönd, sem liggja að Miðjarðar- hafi, og þau þar sem mjög gætti býz- anskra áhrifa. Ritið hefst á yfirliti yfir kristna byggingarlist fyrir daga Konst- antínusar. Síðan er rakin saga byggingar listar í Býzans og nærliggjandi ríkjum. F orsendur að býzanskri byggingar list eru nauðsyn kirkjunnar og glæsing hinnar nýju Rómar, þar sem Konstantín- us setti sína höfuðborg. Þar þurfti mik- ið að byggja og á þann hátt sem hæfði tign og virðingu keisara og heimsveldis og þeirrar kirkju, sem hann veitti frelsi til trúariðkana og hlóð undir meðan hans naut við. Keisarar og kirkja móta þennan nýja stíl, sem að skoðun höfundar byggði á róm- verskum erfðum, og smám saman verð- ur stíllinn fyrir austrænum áhrifum, og á fimmtu öld tekur þessara áhrifa að gæta meir, Á sjöttu öld koma fram ein- kenni hins hrein-býzanska stíls, sem eru: mýstískt samspil ljóss og skugga, mikils rúms, hvelfinga og massívra boga og súlna. Býzönsk byggingarlist er talin ná hæst með Agía Sófía — Ægisif. Samtiöarmenn töidu þá byggingu há- tind réttra hlutfalla, „flatarmálsfræði í massívum steini". Á níundu öld tekur táknfræðin að hafa meiri áhrif á byggingarlistina, skreytilistin nær hámarki og talnaspek- innar tekur að gæta. Höfundur rekur þessa sögu býzanskrar byggingarlistar frá upphafi og ailt til þess að Konstant- ínópel fellur, og sögu frumkristinnar byggingarlistar fram á sjöttu öld, þar eð höfundur telur þau einkenni, sem þá tekur að gæta í Vestur-Evrópu, af öðrum toga en hrein-býzönskum. Bókin er mjög skilmerkileg, og höf- undur tengir ágætlega þjóðfélagslegar ástæður og ástand og forn-rómverskar erfðir óg nauðsyn og smekk þeirra, sem stóðu fyrir byggingum. 192 myndasíður fylgja, athugagreinar, orðaskýringar og bókaskrá ásamt registri. - HÆTTULEGT Framhald af bls. 10 skyggni (,,markiser“) yfir gluggunum að utanverðu áreiðanlega gefa mun betri raun. Þá er og um það rætt, að þar sem lofthæð í vinnuherbergj- unum sé yfirleitt ekki yfir 2 Vb m, muni illmögulegt að sjá fyrir við- unandi loftræstingu, án þess að drag- súgur myndist. Síðan segir í skýrslunni: „Hvers er sökin? — Og: „Hvað er unnt að gera til þess að bæta hér um? í sum-um tilfellum gera arkitekt- arnir sér vafalaust grein fyrir vanda- málunum, sem skapast muni í „gler- höllum“ þeim, sem þeir teikna. En þeir telja ekki, að hér sé um þeirra mál að ræða, heldur verði verkfræð- ingarnir að leysa það. Og svo reyna þeir, sem byggja, oft að spara sem mest af þeim tæknilega búnaði, sem verkfræðingarnir ráðleggja — vilja sjá, hvort ekki geti „allt gengið“ eins fyrir því. — Ekki er ástæða til þess að ætla, að byggjendurnir séu hér vitandi vits að vinna gegn því að gera vinnuskilyrði í fyrirtækjum sín- um sem bezt — heldur hefir þetta vandamál aldrei fyrr verið rannsak- að til fullnustu eða settar neinar regl ur í þessum efnum. Þess vegna vita byggjendurnir einfaldlega ekki betur — og þess vegna er haldið áfram að reisa „glerhúsin“, bæði fólki og vél- um til tjóns“. Þetta segja hinir dönsku sérfræð- ingar. Er ekki ástæða til þess að taka þetta mál einnig til athugunar hér á landi? -— Nóg er af „glerhúsunum“ hérna líka. 19. febrúar 1967 ■LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.