Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.1967, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.1967, Blaðsíða 6
nema hvað formáli J. B. Burys er gefinn hér út óbreyttur. mt etta bindi kemur út í tveim hlutum, og er fyrri hlutinn kominn út og sá síðari væntanlegur. Útgefendur eru bundnir niðurskipan heildarverks- ins, en í því er sögu Býzans ætlaður nokkur þáttur í fyrsta og öðru bindi heildarverksins, en þau bindi eru ekki væntanleg að sinni; þeir urðu því að gefa út fjórða bindi án beinna tengsla við endurskoðaða útgáfu fyrsta og ann- ars bindis. Fyrri útgáfa fjórða bindis náði yfir tímabilið 717 til 1453, og hafa útgefendur orðið að halda sér við það tímabil. Reynt er að tengja þetta tíma- bil fyrri sögu Býzans með tveimur köflum, sem spanna tímann frá Konst- antínusi til Leós' III. Tímamarkið 717 er sett við þá atburði, þegar Leó kemur til ríkis í Býzans með styrk Araba, en það hafði gerzt áður, að Arabar styrktu valdaræningja til keis- aratignar í Býzans, en í þetta skipti mis- heppnaðist áform þeirra gjörsamlega. Leó III og eftirmenn hans stöðvuðu frek ari sókn Araba inn í lönd keisaradæm- isins næstu áttatíu-níutíu árin. Strax og Leó hafði náð völdum, sveik hann styrktarmenn sina, eins og ætlan hans hafði alltaf verið, og hóf viðreisn ríkis- ins með ágætum árangri. í þessari útgáfu er megináherzlan lögð á sögu Býzans, meiri en í fyrri útgáfu verksins. Það er varið meira rúmi til þess að rekja pólitíska sögu ríkisins, og einnig er nýjum köflum bætt við um stjórngæzlu, kirkjuna, listir, bókmennt- ir og vísindi. Nokkru rúmi er varið til frásagnar um nágrannaríkin og þá einkum um ríki Araba. Minni áherzla er lögð á samskipti Býzans og Vestur- landa; þeim þætti er ætlaður staður í miðaldasögu þeirra landa. A uk merkilegra rannsókna á býzanskri hljómlist og endurskoðun á býzankri stjórngæzlu hefur skoðun manna mjög breytzt varðandi áhrif fjórðu krossferðarinnar á sundurlimun og fall ríkisins. Hér hafa komið til ný- legar rannsóknir á eignarhaldi jarða og efnahagslífi ríkisins. Eignarhald jarða fram að iðnbyltingu er lykillinn að sög- unni. Meginatvinnuvegurinn var land- búnaður, og í býzanska ríkinu og áður í Rómaríki mótaði eignarhald jarða alla söguna. Löngu fyrir 1204 var sjálfræði stórjarðeigenda orðið hættulegt einingu ríkisins. Stórjarðeigendur létu ekki RABB Framhald af bls. 5 Reykjavíkurborg efnir til alþjóð- legrar samkeppni um skipulag til- tekins svœðis í Fossvogi. Norræn 1 dómnefnd veitir fyrstu verðlaun tillögu tveggja Finna og Norð- manns, sem þykir svo snjöll að hún vekur athygli arkítekta um öll Norðurlönd. En hvað gerist síðan? Islenzkum arkítektum er falið að vinna verkið, að sjálfsögðu án heimildar til að hagnýta tillöguna sem hlaut fyrstu verðlaun, og ár- angurinn verður eitt allsherjar- klúður. Nú spyr leikmaðurinn: Hvers vegna var verið að efna til samkeppninnar, úr því þeir sem skiluðu langbeztu úrlausn áttu ekki að vinna verkið? Þó við höfum kannski efni á að kasta fjármunum í súginn, efa ég stórlega að við höfum efni á að gera okkur að al- þjóðlegu athlœgi umfram það sem orðið er. Sigurður A. Magnússon. j, ... - ■7/-/ /'/:/.•;//' /,7 Agía Sófia að innanverðu. J.Wi* alltaf segja sér fyrir verkum, og þeir höfðu mjög sterka aðstöðu, ef skarst í odda með þeim og miðstjórninni í Konst- antínópel. Þeir drógu úr áhrifamætti keisarans og þar með veldi ríkisins og veiktu það út á við. Þessi einkenni voru orðin augljós fyrir 1204, svo að atburð- irnir þá voru fremur afleiðing af veikl- uðu ríkisvaldi en upphaf þeirrar veikl- unar, eins og lengi var álitið. Þessu efni eru gerð ágæt skil. í inngangi segir útgefandi, að ætlað hafi verið, þegar unnið var að niður- skipan verksins, að „Cambridge Econo- mic History“ myndi helga efnahagslífi býzanska ríkisins nokkurt svið. Sú hefur ekki orðið raun, og því eru þessi efni rædd í tengslum við önnur í þessu verki; engir sérþættir eru helgaðir þess- um efnum, og er það skaði. í þessum fyrrihluta er rakin pólitísk og hernaðar- leg saga ríkisins og barátta þess við þær þjóðir, sem að lokum stóðu yfir höfuð- svörðum þess. Jafnframt er rakin saga þessara þjóða og þeirra ríkja, sem þær stofnuðu. Meðal höfunda eru: J. M. Hussey, sem er ritstjóri verksins, D. M. Nicol, G. Ostrogorsky, B. Lewis, M. Dinic, M. Conrad og fleiri. Allir þessir menn eru sérfræðingar um miðaldir, Býzans og skyld efni. Ritið er alls tæpar tólfhundruð blaðsíður auk korta og ætt- artaflna. Heimildaskráin tekur yfir rúmar tvöhundruð síður. Þetta rit er það nýjasta um þessi fræði og meginheimildarritið og jafn- xramt það öruggasta. R-omilly Jenkins er nú sem stend- ur prófessor við Harvard. f þessari bók segir hann sögu býzanska ríkisins það tímabil, sem hann telur býzanska menn- ingu ná hæst, frá sjöundu og fram undir lok elleftu aldar. Á þessu skeiði tókst keisurunum að stemma stigu við fram- sókn Araba og annarra þjóða, sem sóttu inn fyrir landamæri ríkisins. Fyrir þann tíma mátti kalla ríkið síðrómverskt, og á tólftu öld hefst afturför ríkisins. Ostrogorsky, einn merkasti Býzansfræð- ingur, sem nú er uppi, telur að með Heraklíusi megi telja, að ríkið verði grískt og tilraunir til að vinna aftur vestursvæðin og endurreisa hið forna Rómaveldi eru afiagðar. Sú pólitík var aftur á móti hafin af þýzk-rómversku keisurunum. Framhald á bls. 15 Konstantínópel um miðja siðustu öld. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19. febrúar 1967 /

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.