Lesbók Morgunblaðsins - 08.05.1960, Side 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
253
Jarðskjálftasvæðið.
að skógarbirnir hefði ráðist á
tjöldin, því að það var eins og þau
ætluðu að sviftast sundur og
brotna niður. Bennett-hjónin
vöknuðu við það, að bíllinn kippt-
ist hastarlega til, og voru þau að
furða sig á hvað þetta gæti verið,
en kom ekki til hugar að nein
hætta gæti verið á ferðum. Þá
heyrðu þau drynjandi þrumu og
varð ekki um sel. Þau stukku út
úr bílnum tiL þess að vitja um
börnin. í sama bili skall á loft-
þrýstingurinn frá skriðuhlaupinu.
Konan mundi það seinast að hún
sá að maður hennar tókst á loft;
hann náði taki á litlu tré og sveifl-
aðist um það, en missti svo taks-
ins. Eftir það sá hún hann ekki lif-
andi. Hún sá eitt barnið fjúka
fram hjá sér, og svo sá hún bíl
fara í loftköstum. Meira vissi hún
ekki, því að þá missti hún með-
vitund. Um morguninn, þegar
leitarmenn komu á staðinn,
heyrðu þeir hljóð í henni og 16 ára
gömlum syni hennar. Þau fundust
í jaðri skriðunnar, á árbotninum,
sem nú var þur. Pilturinn var fót-
brotinn, en konan var ekki stór-
slösuð. Litlu seinna fundust sund-
urtætt lík Bennetts og þriggja
barnanna.
Sjö fjölskyldur höfðu orðið und-
ir skriðunni. Níu lík fundust, en
nítján hafa ekki fundizt og munu
þau vera undir fargi hinnar miklu
skriðu.
Fyrir ofan skriðuna tók þegar
að myndast stöðuvatn, og fekk það
nafnið Jarðskjálftavatn. Það dýpk-
aði óðum og voru menn hræddir
um að það mundi sprengja stífl-
una og koma beljandi niður dal-
inn. Árið 1925 hafði skriða fallið
sunnar í fjöllunum, hjá Jackson
Hole, og stíflað Gros Ventre-ána.
Menn skeyttu þá ekkert um það,
og létu náttúruna fara sínu fram.
Tveimur árum seinna sprakk stífl-
an skyndilega og flóðbylgjan sóp-
aði burtu þorpinu Kelly í Wyom-
ing og drukknuðu þar sex menn.
Hér var flóðhættan miklu meiri,
því verið gat að stíflugarður Heb-
gen-vatns mundi bresta, þar sem
stórar sprungur höfðu komið í
hann í jarðskjálftanum.
Það var því fljótt byrjað á því
að brjóta skarð í stífluna hjá Rock
Creek og var unnið að því nótt og
dag í tvo mánuði með hinum stór-
virkustu vélum. Þá hafði verið
gerð 50 feta djúp rás í gegnum
skriðugarðinn, og þar fekk Jarð-
skjálftavatnið framrás.
— 'k —
Jarðskjálftinn átti upptök sín á
milli Hebgen-vatns og Yellow-
stone-þjóðgarðsins, 10—15 km
undir yfirborði jarðar. En nú eru
ekki nema um 30 km milli vatns-
ins og þjóðgarðsins, og varð jarð-
Girðingin, sem var öll í hlykkjum eftir
jarðskjálftann.
skjálftinn því einnig afar harður
þar. Þar gekk jörðin í bylgjum.
Allir heitu hverirnir þar trylltust
og gusu óskaplega, jafnvel hverir,
sem ekki hafa bært á sér árum
saman. Þar komu einnig upp nýir
goshverir. Sumir gusu látlaust, ea