Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1955, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1955, Blaðsíða 11
W EESBÖK M0RGUNBEAÐSIN3" r 393 Einar Arnason Tveir nýir flugstjórar: B* */ Olaf Olsen 16. Frú Vilborg Þorgilsdóttir, Rvík. 17. Frú Rtella Árnadóttir, Reykjavík. 19. Frú Sigurjóna Magnúsdóttir, Akranesi. 20. Sölvi Víglundsson skipstjóri, Reykjavík. 21. Óskar Gíslason skrifstofumaður, Reykjavík. 21. Jóhann G. Möller forstjóri, Reykjavík. 22. Frú Jóna Benediktsdóttir, Hafnarfirði. 24. Friðþjófur Ó. Johnson framkv.stj., Reykjavik. 28. Frú Ingibjörg Guðjónsdóttir, Reykjavík. 31. Þorgrímur Sigurðsson skipstjóri, Reykjavík. FLIJG Starfsemi íslenzkra flugvéla færist mjög í aukana, og hafa aldrei verið fluttir jafn margir farþegar í lofti eins og nú, enda hafa Loftleiðir nú þrjár stórar flugvélar í stöðugum ferðum milli Ameríku og Evrópu. Flugfélag íslands hefir eigi aðeins flugvélar sín- ar í ferðum innanlands og í ferðum til Evrópulanda, heldur hafa flugvél- ar þess farið margar ferðir til Græn- lands. Skýfaxi flaug t. d. norður að Ella-ey með leiðangursmenn dr. Lauge Kochs og var síðan vikutíma í flug- ferðum innan lands í Grænlandi. — Fluttir hafa verið farþegar frá Dan- mörku bæði til austurstrandar Græn- lands og vesturstrandar. FRAMKVÆMDIR Nýr vélbátur, Ver, 60 smálestir, smíðaður í Svíþjóð, kom til Akraness, eign Har. Böðvarssonar & Co. (4.) Annar nýr vélbátur kom til Norð- fjarðar, heitir Gullfaxi, 65 smál., smíð- aður í Danmörk. Rannsóknir fóru fram á gróðri á Gnúpverjaafrétt, undir forustu dr. Björns Jóhannessonar (5.) Ingvar Vilhjálmsson í Reykjavík hefir sótt um einkaleyfi á uppgötvun á útbúnaði til þess að setja á skip, svo að þau geti notað afl öldugangs til þess að knýa sig fram, og jafn- framt til að draga úr veltu (7.) Lokið var við vegargerð umhverfis Mývatn (11.) Kvíabryggjuhælið í Grundarfirði, sem er eign Reykjavíkurbæar, tók til starfa. Þar eiga menn að afplána ó- greidd bamsmeðlög. Margir kusu að greiða skuldir sínar heldur en fara á hæiið (12.) Nýtt félagsheimili var vígt í Örlygs- höfn í Rauðasandshreppi (17.) Háskólinn hefir ákveðið að reisa nýtt kvikmyndahús og tónleikahús i Reykjavík (18.) Ákveðið hefir verið að auka hita- veituna í Reykjavik og láta hana ná til alls Hlíðahverfis á næsta ári (19.) Leyft hefir verið að veiða 600 hreindýr á þessu hausti (21.) Bindindisfélag ökumanna efndi til keppni í varúðarakstri og tóku 20 bíl- stjórar þátt í henni. Kom í ljós margs- konar óaðgæzla af þeirra hálfu, þrátt fyrir það að þeir höfðu sett sér að hlíta öllum varúðarreglum (21.) Samband íslenzkra rafveita hélt fund á Snæfellsnesi. Kom þar til mála hvort ekki mundi hægt að notc-. sjáv- Carlsen með hunda sina. Hundarnir hafa fundið minkaból og eru að grafa þa'ð upp. r- 7 ..--7—- L* ,y ? »-■, Fsr- -'k < í f'

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.