Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1955, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1955, Blaðsíða 8
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS f 492 Þetfa gerðist í ágústmánuði FORSETAHJÓNIN fóru í opin- bera heimsókn um Borgar- fjarðar og Mýra sýslur. VEÐRÁTTA Á suðvesturlandi voru stöðugir ó- þurrkar allan þennan mánuð og hvassviðri oft. En á norður og aust- urlandi helzt hin sama blíðskapartíð, sólskin og þurrkur. Þó var þar stund- um allhvasst, svo að ekki gaf á sjó. LANDBtJNAÐUR Samkvæmt veðurskýrslum var úr- koma alla daga júlímánaðar í Reykja- vík, en að meðaltali rignir þar 13 daga í þessum mánuði. Úrkoman mældist 91,8 mm. og hefir ekki orðið jafn mikil síðan 1926. Hiti var og undir meðallagi. En á Akureyri var meðal- hiti mánaðarins 2,2 stig yfir meðallag, og úrkoma 13,9 mm. undir meðallagi, sem er 21,4 mm. — Þessar tölur sýna nokkurn veginn þann mismun, er var á tíðarfari norðaustanlands og suðvest- anlands í þessum mánuði. Og svipað hlutfall mun hafa orðið í ágústmán- uði. Þá voru stöðugir óþurrkar fyrir vestan línu, er draga mætti milli Mýr- dalsjökuls og Holtavörðuheiðar, en þar fyrir austan stöðugir þurrkar. Hagnýting austan lands og norðan var því in bezta, og segjast bændur þar ekki muna jafn gott sumar. En sunn- an lands og vestan höfðu sumir bændur ekki náð nokkurri tuggu af þurru heyi í hús í lok ágúst. Sú taða, sem ekki var sett í súrhey, var að velkjast úti og orðin lítils virði. Tún voru víða orðin svo vatnsósa, að ekki var hægt að fara með véltæki um þau. Hey- turnarnir brugðust, því að heyið var alltaf svo sligblautt, að ekki var hægt að blása því upp í turnana. Hér á ofan bættist það að miklir heyskaðar urðu í Borgarfirði og austur á Rangár- völlum, fauk í stórviðri, sem gerði inn 18. Þykja nú allar horfur á að bænd- ur á óþurrkasvæðinu muni þurfa að fækka sauðfé og gripum stórkostlega í haust. Ýmsar ráðstafanir eru hafn- ar af hálfu Búnaðarfélagsins til þess að reyna að greiða eitthvað úr þess- um vandræðum, og hefir það skorað á yfirvöldin að láta ekki flytja neitt út af síldarmjöli á þessu ári, heldur nota það eingöngu sem fóðurbæti á óþurrkasvæðinu. Þá hefir og Spari- sjóður Akraness boðið bændum utan Skarðsheiðar 300.000 kr. til þess að kaupa heyforða úr öðrum landshlut- um meðan tími er til. — Allar horfur eru á því, að kartöfluuppskera muni verða mjög rýr á óþurrkasvæðinu og hefir mygla víða skemmt garða. — Sumarslátrun dilka hófst í Reykjavík í seinustu viku mánaðarins og hafði 800 verið slátrað um mánaðamót. Reyndust þeir í meðallagi, þrátt fyrir ótíðina. ÚTGERÐIN Kalla má að síldaraflinn fyrir Norð- urlandi hafi brugðizt enn, tíunda árið í röð. Nokkur skip hættu veiðum þeg- ar er rúm vika var af mánuðinum, en eftir það kom þó síldarhlaup við Aust- urland. Fann varðskipið Ægir síld- argöngu og veiddust þá 17.000 tunnur. Alls varð síldaraflinn í salt 173.000 tunnur, en mjög lítið fór í. bræðslu. Er þetta heldur meira síldarmagn en í fyrra, en miklu verðmætara, vegna þess að nú var miklu meira saltað en þá. Öll skip voru hætt herpinótaveið- um fyrir mánaðamót, en nokkur héldu áfram reknetjaveiðum. Síldar varð vart í Faxaflóa í önd- verðum mánuðinum, en útgerðarmenn treystust ekki til að stunda reknetja- veiðar, nema því aðeins að þeir hefði einhverja tryggingu, ef illa færi. Leit- uðu þeir til ríkisstjórnarinnar og varð Forsetar Norður- landaráðs: Nils Herlitz próf., Sig. Bjarnason alþm., Nils Ilönsvald og Erik Eriksen

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.