Lesbók Morgunblaðsins - 29.08.1954, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 29.08.1954, Blaðsíða 2
534 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS fór því fyrir þeim eins og svo mörgum öðrum, er ofsóknum hafa sætt vegna trúarbragða sinna, að þeir flýðu. Þeir yfirgáfu hin frjó- sömu héruð hjá Miðjarðarhafi og leituðu suður á bóginn, inn í eyði- mörkina Sahara. Hvar sem þeir komu var amast við þeim og þess vegna heldu þeir lengra og lengra suður á bóginn í leit að dvalar- stað, því að þeir voru einráðnir í því að halda saman og varðveita frelsi sitt. Að lokum komu þeir í þennan mikla dal, sem nefnist M’Zab nú á dögum'. Þarna var enginn gróð- ur og ekkert vatn sjáanlegt, ekk- ert nema grýtt eyðimörkin, sviðin af brennandi sólargeislum. Margs konar landslag er að finna í hinni miklu Sahara eyði- mörk og þrátt fyrir ömurleik henn- ar er þar mikla fegurð að finna. Hin miklu Hoggar-fjöll eru ber og blásin, en tignarleg fegurð hvílir yfir þeim. En hinir grýttu staðir eyðimerkurinnar eru sviftir allri fegurð, ömurlegir og hörkulegir. Og þegar Mozabítar komu nú í þennan grýtta dal, þá voru þeir vissir um að engir menn mundu á- gimast hann. Hér gæti þeir því lifað í friði, ef þeim aðeins tækist að afla sér lífsviðurværis. — Og þeir hófust þegar handa og byrj- uðu á því að grafa brunn, því að ekki var viðlit að hafast þarna við, ef ekkert var vatnið. Verkfæri þeirra hafa sjálfsagt verið léleg, en þeir réðust á klappirnar og grófu sig niður, hundrað fet, tvö hundruð fet og jafnvel þrjú hundruð fet í gegn um hart bergið. Og að lokum tókst þeim að finna vatn, þennan lífgjafa alls, sem á jörðinni er. Og þá fóru þeir að reisa sér hús og gera áveitur til þess að knýja fram gróður úr hinni grýttu og sendnu jörð. Og eftir margra ára erfiði og harða baráttu voru komin þarna pálmatré, sítrónulundir og grænmetisgarðar. Af pálmatrjánum fá þeir mest til viðhalds lífsins og því eru pálm- arnir helgir í þeirra augum, ‘eins og sjá má á þessum málshætti þeirra: „Að fella pálmatré er sama sem að drepa sjötíu spámenn“. Og þarna í þessum dal hafast þeir við enn í dag, lítill þjóðflokkur með sitt eigið þjóðskipulag, alls um 50.000 sálir. Þeir hafa nú grafið um þrjú þúsund brunna og dag og nótt er vatni ausið úr þeim. Aðferðin sem þeir hafa til þessa er úrelt og seinlegt að afla vatnsins. Því er ausið upp í leðurbelgjum, en asn- ar eru látnir draga brunnvindurn- ar. Þessu höfðu þeir vanist fyrir þúsund árum, og þeir halda sama hætti enn. En með þessu móti hef- ir þeim tekist að gera dalinn frjó- saman. Þar eru nú um 250.000 döðlupálmar. Þeir eru af ýmsum tegundum, en bezta tegundin er kölluð „Deglet en Nour“ og af þeim pálmum fá þeir árlega um 3000 tonn af döðlum. En svo fá þeir enn meiri uppskeru af öllum hinum tegundunum . Tæpri öld eftir að þeir námu dal- inn, höfðu þeir byggt öll þessi fimm þorp, sem þar eru. Húsin eru gerð úr leiri og standa á hækkandi stöllum umhverfis hæðirnar. Helzta þorpið heitir Ghardaia. Hin heita Melika, Beni Isguen, Bou Noura og E1 Ateuf. Úr musteristurnunum, sem gnæfa yfir þorpin, er ágætt útsýni yfir dalinn og hrjóstrin þar um kring. Upphaflega voru þessir turnar jafnframt notaðir sem varð- turnar. Musterin sjálf eru skraut- laus, ber og kuldaleg. Um aldir lifðu Mozabitar þarna í friði og óáreittir og þangað voru engar mannaferðir, nema hvað einu sinni kom þangað hópur Gyð- inga, sem voru á flótta og beiddust ásjár. Ekki tóku Mozabitar þeim með neinum fögnuði, en þeir aumkuðust yfir Gyðingana vegna þess að þeir höfðu ratað í hina sömu ógæfu og þeir sjálfir, og gáfu þeim því leyfi til að setjast að utan við þorpið Ghardaia. Jafnan hafa Mozabitar tekið útlendingum með tortryggni, og Gyðingum er’bann- að að koma inn í þorp þeirra. Mozabitar unnu stöðugt að rækt- un landsins og færðu út kvíarnar. En fyrir einni öld komu Frakkar þangað. Þeir höfðu þá lagt undir sig löndin þar allt um kring. Ekki lögðu þeir þó M’Zab dalinn undir sig, heldur neyddu þeir Mozabita að gera samning við sig um yfir- ráð. Þetta varð óvinsælt og olli mikilli óánægju og deilum, svo að 1882 lögðu Frakkar dalinn undir sig, en voru þó svo hyggnir að láta Mozabita hafa sjálfstjórn. Nú er Ghardaia í þjóðbrautinni, sem kennd er við Hoggar-fjöllin og tengir saman Algier og frönsku miðjarðar-nýlendurnar. Utan við hið gamla þorp er nú Arabahverfi, herbúðir, sjúkrahús og skóli. En þorp Mozabita halda sér einangr- uðum og vilja ekki hafa neitt samneyti við aðskotadýrin. ★ Aldrei á ævi minni hefi ég verið svo rækilega hundsaður eins og þegar ég gekk hinar þröngu stræt- issmugur í þessum þorpum. Lág- vaxnir og skeggjaðir menn gengu fram hjá mér og litu ekki við mér. Á þennan hátt létu þeir mig finna að aðkomumenn eru ekki vel- komnir, enda þótt þeim sé ekki bannað að koma. Hvorki gætti fjandskapar né vingirni í augna- tilliti þeirra. Þeir létust aðeins ekki sjá mig. Konurnar gengu fram hjá mér eins og vofur ,klæddar í hvítan hjúp frá hvirfli til ilja. And- litið er algerlega hulið, en þær horfa út um eitt lítið gat á hjúpn- um, sem er aðeins fyrir annað aug- að. Og oftast sneru þær sér upp að vegg til þess að þurfa ekki að horfa á mig. Það var jafnvel eins

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.