Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1952, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1952, Blaðsíða 8
212 LESBOK MORGUNBLAÐSINS Eiiicir B. Pálsson VETRAR-OLVI\IPÍIJLEIKARiMIR VETRAR-ÓLYMPÍULEIKARNIR 1952 íóru fram í Oslo dagana 14. til 25. febrúar. Oslo-borg stóð fyrir lcikunum og bar ábyrgð á fram- kvæmd þeirra. Alþjóða-ÓIympíunefndin ákvað árið 1947, að þessir vetrarleikar skyldu fara fram í Oslo og hófst undirbúningur þeirra þá á sama ári. Skipulagning og undirbúning- ur leikanna var í höndum níu manna nefndar. Formaður hennar var O'. Ditlev-Simonsen, en meðal nefndarmanna yar Brynjulf Bull, núverandi borgarstjóri Osloborg- ar. Innan nefndarinnar starfaði sér- stök framkvæmdanefnd og voru þar.þrír menn, O. Ditlev-Simonscn, Rolf Hofmo og Aríhur Ruud. Fram- kvæmdastjóri neíndarinnar var Rolf Petersen. Á þessum Vctrar-Ólympíulcik- um var eins og áður keppt í fjórum tegundum vetrar-íþrótta, en þær skiptust í einstakar keppnisgreinar þannig: íshockey, alls 36 leikar. Skautahlaup: hraðhlaup 500 m, 1500 m, 5000 m og 10.000 m; list- hlaup kvenna, karla og para. Sleðaferðir: tveggja og íjögurra manna sleðar. Skíðaíþróttir: Stórsvig kvenna og karla, brun kvenna og karla, svig kvenna og karla, skíðaganga 18 km og 50 km, skíðaboðganga 4x10 km, skíðastökk, norræn tví- keppni, skíðaganga kvenna 10 km. Auk þess \-ar ein sýningargrein, bandy. Breyting frá fyrri vetrar- Svigmcnnirair, frá v. íil h.: Síefán Kristjánssou, Haukur Sigurðsson, Ásgcir Eyjólfssor, Jón liarl Sigurðsson og ílokksstjórinn Gísli B. Kristjánsson. leikum var það, að alpatvíkeppni íéll nú niður, en stórsvig og skíða- ganga kvenna voru upp tekim Allir leikarnir fóru fram í umdæmi Oslo- borgar nema stórsvig og brun. pess ar greinar fóru fram á Noreíjell, um 100 km norðvestan Oslo. 30 þjóðir tóku þátt í Vetrar- Ólympíuleikunum að þessu sinni og er það meira en nokkru sinni aður. íslendingar tóku nú þatt í Vetrar- Ólympiuleikunum í annað sinn og sem fyrr eingöngu í skiðaíþróttum karla. t>að voru þessar greinar: Stórsvig, brun, svig, skíðaganga 18 km og 50 km, skíðaboðganga 4x10 km og skíðastökk. Þetta var í fyrsta sinn sem íslendingar keppa í skiða- göngu við erlenda menn. Norðmenn tóku rnjög vel á moti þeim sem sóttu Vetrarlerkana. — I OSLO

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.