Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1952, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1952, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 211 óLóarœnt^ armanna Á AHsturvelli undrafögur grein úr íslands högum glæst og tigin stendur. Og þótt hún gisti þarna aðeins ein liún er sem tákn um breiðar skógalendur. Ilún skreytir jólakvöldin helgihá. | Á hljóðu torgi vakna ómar sælir, og er sem vorið vermi ungra brá þótt vetur næði, er heyrist það hún mælir: — Ég var lágvaxin hrísla að Hallormsstað í heimareit stórtrjánna, lundinum i'ríða. En aldrei mig dreymdi um annað en það, að átthaga mína ég fengi að prýða, með öðrum, sem voru þó ennþá stærri og eldri og þroskaðri, fegurri og hærri. Og ég, eins og gerist á æskunnar braut, batt ástir við jafnaldra, reyninn svo glæstan. Mig dreymdi aðeins sumar. og sá enga þraut, í sál minni vorið lék tóninn hæstan. En örlögum ráða ég eigi kunni, — í útlegð var hrakin frá þeim sem ég unni. Ég varð háreistur meiður í .höfuðborg, og hallir í kr.ingum mig svinmiklar standa. En ekki ég skil þessi auðu torg og ekkert sé hér, sem hressir minn anda. Allt er hér steingert og autt og í tómi, ekkert, sem helgað er lífsins rómi. En minningar kærar frá m i n n i grund hvern morgun sem geislar í hugar.um vaka. Sú gæfa, að hafa átt þann ljúfa lund, þar sem lækirnir niða og þrestirnir kvaka! Þar helgaðist eilifur ástafundur. Þar var eilíUvaka — rétt vorfuglsblundur. í skóginum blessaður blævindur þaut svo brosandi laufin á greinunum sungu. Og þar átti lifið sjálft blikandi braut, og bragirnir fæddust á tungunum ungu. Og aldrei ég gleymi þeim heimahögum, því heimkynni dýrðar á æskunnar dögum! H'H Ég brátt hneigi greinar, en bið yður búar vors blessaða lands, efst til dala sem átranda, að safnast í fylking og sverjast til trúar á sigurmátt gróðursins, neyta þar handa, holtin og melana skóglundum skrýða. Svo skilið þér arfi til komandi tiða. Sá arfur mun dýrstur, sem ísland fékk hlotið af aldanna þegnum, næst sögu og tungu. Af hámenning slíkri ei lieill getur þrotið til heiðurs þeim öidnu, til framtaks þeim ungu. í trjáiundum framtíðarársöngvar ómi mcð alþjóðar raddbrigðum sígildum rómi! — SIG. ARNGRÍMSSON sóknastöð hjá svokölluðum Jodrell Bank og þar hefur dr. Lovell komið upp rannsóknastöð fyrir þessi und- arlegu skeyti utan úr geimnum. Hafa þar verið reistar ýmsar bygg- ingar í þessu skyni og þar komið fyrir margs konar áhöldum til rannsókna. Ber þar mest á mót- tökustöðinni sjálfri, því að hún er reist á grænni grund ein sér og blasir við hverjum manni, sem þangað kemur. Er það gríðarmikið vírnet, eins og skál að lögun og stendur á háum járngrindum, og í sambandi við það er annað vír- ■ net, rúmlega 65 metra á hvern veg, sem þanið er út líkt og björg- unarnet í hringleikahúsi. Þetta er alveg nýtt í útvarpstækni og hefur verið fundið upp af starfsmönnum rannsóknarstöðvarinnar. — Þessi merkilega stöð tekur nú við hljóð- bylgjum frá jarðstjörnunum, al- veg eins og hin mikla víðsjá á Palomar-fjalli tekur við Ijósbylgj- um frá sólunum. Fjarlægðir virðast ekki hafa nein áhrif á þessar útvarpsbylgjur, sem koma frá stjörnunum, því að ný- lega hefur stöðinni tekizt að greina slíkar bylgjur, sem komnar eru frá heimshverfi, er liggur óralangt fyrir utan Andromeda-þokuna. —< Þetta heimshverfi, eða stjarnþoka, hefur á vísindamáli fengið nafnið M 31. Þannig er það sannað að rafmagnsbylgjurnar fara sólhverf- anna milli. Og nú hefur það verið sannað, sem menn grunaði aðeins áður, að hinar dökku stjörnur í himingeimnum, sem ekki er hægt að sjá í beztu sjónaukum, eru að minnsta kosti ekki færri en hinar lýsandi sólir. En í voru heimshverfi, eða vetrarbraut, eru um 200.000 milljóna sólna. I « # « «

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.