Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1942, Síða 31
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
415
Ferðasaga skólapilfa.
FRAMEALD AF BLS. 409.
allir í einu. Varð sumum tíðför-
ult inn að eldavjelinni, sem var
í kompu skamt frá stofunni, því
að margir þurftu að biðja um að
þurka vetlinga sína. Auk þess tel
jeg víst að þar hafi verið hitað
kaffi handa okkur og hafi sumir
drukkið það þar vegna plássleys-
ís í stofunni. I einu stofuhorn-
inu var rúm. Þar vorum við 4
hinir yngstu og ljelegustu látnir
hátta, en lítið eða ekkert varð um
Svefn fyrir okkur eins og hinum,
því að alltaf voru þeir að syngja
og kveða og skrafa, sem hvergi
höfðu höfði sínu að að halla.
Sumir reyndu að vísu að leggja
kollinn í lúkur sínar eða halla
honum upp að þili, en gátu þó
engrar værðar notið. Um auðan
blett á gólfi var ekki að ræða,
þó var sagt að einn hefði verið
dreginn sofandi undan eldavjel-
inni um morguninn.
Niðurlag greinarinn birtist i nýára
lesbók.
Pjetur: Á morgun byTjum viC að
reikna meS almennum brotum.
Móðirin: Það skaltu ekki gera,
drengur minn, við höfum efni á að
láta þig reikna með þeim bestu brot-
um, scm til eru.
*
HANN KOM AFTUR.
Hann lenti í þrœtu við kaupmann-
inn, sem hann hafði annars altaf versl-
að við, og að lokum hótaði hann, aö
hann skyldi aldréi koma framar í þ&
búð. Nokkrum vikum síðar kemur hann
samt inn í verslunina. Kaupmaðurinn
var mjög undrandi og segir við hann:
„Mig minnir að þú segðir, að þú
kæmir aldrei hingað aftur
„Já, jeg sagði það líka“, svaraði
maðurinn með þjósti, „en vinur minn
sendi mjer græðling, sém jeg þarf að
setja í jurtapott og jeg sá, að óþarfi
var að fara lengra en hingað til þess
að ná mjer í sand“.
★
„Hvað gengur að þjer, BillT Þú ert
náfölur“.
„Ó, minstu ekki á það. Það varð
ógurleg gassprenging í húsinu okkar“.
„Skemdist mikið?“
„Skemdist. Pabbi og mamma þeytt-
ust út um gluggann, út í garð. Ná-
grannamir segja, að það sje í fyrsta
skifti, sem þau hafi sjest fara saman
út úr húsinu síðastliðin 15 ár“.
*
Verðlaujnakrossgátja
SKÝRINGAR:
LÁRJETT.
1. skrá, 5. stillir, 10. væla, 12.
kvenm.n., 13. brytjaði, 14. ráðdeildar-
söm, 16. nokkur, 18. svala, 20. lúta,
22. óskaði, 24. fugl, 25. farartæki þolf.,
26. títt, 28. kvenm.n., 29. læti, 30. bogra,
31. þyngsli, 33. hreyfing, 34. klæða,
36. kvenm.n., 38. áburður, 39. logi, 40.
klaka, 42. suð, 45. ótemja, 48. keyr,
50. sefar, 52. missa, 53. ofn þolf., 54.
tindi, 56. fletta, 67. borðaði, 58. anda-
kvak, 59. hól, 61. blóm þolf., 63. stórar,
64. tónverk, 66. þrír eins, 67. hreyfing,
68. hljóti, 70. hress, 71. brjef, 72. vind-
ur.
LÓÐRJETT.
1. hleður, 2. taka af, 3. barði, 4.
tónn, 6. á fæti, 7. stafur, 8. kássu 9.
talaði, 11. vökva, 13. kalla, 14. gat,
15. sver, 17. togari, 19. angi, 20. maga,
21. sóðar, 23. karlm.n., 25. sölustaður,
27. ábyggileg, 30. horn, 32. hæð, 34.
karlm.n., sk.st., 35. dropi, 37. læti, 41.
sjerst. gangur, 43. ílát, 44. iþrótt, 45.
vegur, 46. skógardýr, 47. snapar, 49.
ílát, 51. vitt, 62. hreint, 53. gruna, 55.
hnött, 58. stía, 60. lögmr, 62. síldarmat-
ur, 63. karlm.n., 65. lýti, 67. fljót, 69.
á fæti, 70. fæði.
Þrenn verðlaun verða
veitt fyrir rjettar ráðn-
ingar á krossgátunni. Ein
verðlaun á kr. 25,00, önn-
ur á kr. 15,00 og þriðju á
kr. 10,00.
Berist margar rjettar
lausnir, verður dregið um
verðlauin. — Ráðningar
sendist. afgreiðslu Morg-
unblaðsins fyrir hádegi á
gamlársdag.
Jeg hitti Bjama um daginn og hann
var með fallegustu regnhlíf, sem jeg
hefi nokkum tíma sjeð. Jeg spurði
hann þessvegna, hvar hann hefði feng-
ið hana.
„Já, það er nú saga að segja frá
því“, sagði Bjami brosandi, „um dag-
inn þegar jeg var úti, fór að rigna
afskaplega. Jeg forðaði mjer inn 1
dyragætt, en þá sá jeg hvar ungur
maðnr kom gangandi og hafði stóra
regnhlíf. — Mjer datt í hug, að við
gætum átt samleið og jeg fengið afnot
af regnhlífinni. Jeg stökk því út á göt-
una og sagði:
„Hvert erað þjer að fara með þessa
regnhlíf, ungi maður?“
Mjer til mikillar undranar, kastaði
maðurinn frá sjer regnhlífinni og var
horfinn áður en jeg gat áttað mig á
því, sem var að geraat“.
*