Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1942, Blaðsíða 2
386
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
♦X~H~X~X~X~X~:~X~:~H~X~X~H~:~H~H~H~H~H~:~H~H~H~H~H~H**H~X~H~X~X~:~>*X~H~X~X~M"X~:~X~:~:~X~X~X~X
CiUÐ ER KÆRLEIKUR
(1. Jóh. 4,16)
JÓLIN eru aO koma — hátíO kœrleikans i/fir hrjáOa
jörö haturs og morðs. tílik friOarstjörnunnar
berst af hæöum bjart og milt gegn vígroöanum.
Hvernig megum vjer fagna henni?
Jól án Krists eru engin jól. Þaö er víst.
Kœrleikurinn sjálfur lá í jötu, holdi klœddur —
Guðs föður veru fegurst mynd. Þaðan veröur aö
leggja geislastaf í hjarta vort.
Ilann sagöi, aö þaö, sem gjört væri einum hinna
minnstu brœöra sinna, vœri sjer gjört.
Dómsorö og fagnaðarboöskapur í senn.
BrϚravig veraldarinnar, heift og harmar leggjast
á hann. Öll sú kvöl, sem sundurlyndi mannanna og
hjartakuldi veldur, er einnig hans kvöl. Enn er hann
krossfestur meö þessum hœtti. Ef vjer stöndum
þeim megin, þá hylur myrkur hann augum vorum.
En alt, sem gjört er til líknar og bóta af kær-
leikshug, vekur Kristi fögnuö. Þeir, sem njóta, eru
fulltrúar hans, sendir af honum. Hann er sjálfur
meö þeim. Hann býst tötrum hins fátæka manns,
hann liggur á sjúkrabeöi, er fangi i dýflissu, heimils-
laus vegfarandi, hungraöur, þyrstur. Hvert kœrleiks-
handtak til huggunar eöa hjálpar öörum mönnum
nœr til hans.
Þessi er leiöin til samfundar viö Krist [ anda — til
aö brúa biliö milli hans og vor. Ef til vill þykir ein-
hverjum þaö ótrúlegt og dularfult. En Kristur bentl
sjálfur á hana og sagöi jafnframt, aö meira væri um
þaö vert aö gjöra vilja fööurins á himnum en aö
hrópa: Herra, herra. Ilann skírskotar einnig til reynsl-
unnar: „Ef sá er nokkur, sem vill gjöra vilja Guös,
hann mun, hvaö kenninguna snertir, komast aö raun
um, hvort hún er frá Guöi, eöa eg tala af sjálfum
mér“. Efist þú um, aö þetta sje rjett, getur þú próf-
aö sanngildi oröanna meö þvi aö lifa eftir þeim. Og
þú munt komast aö raun um, aö þvi meiri ástúö, sem
þú sýnir öörum og einlægari löngun til þess aö veröa
þeim aö liöi i verki og sannleika, því nœr kemst þú
Kristi og þeim, sem sendi hann, Guöi Kærleikans.
Eigum vjer nú ekki aö halda jól meö þeim hœtti,
fagna Kristi meö því aö sýna brœörum hans og systr-
um góðvild, líkt og þaö væri hann sjálfur? Og það
er 8vo, að djúpt í sál hvers manns býr þrá eftir
Kristi, hvort sem maöurinn veit þaö sjálfur eöa ekki,
hvort sem hún grær eins og blómjurtin, er breiöir
bikar og blöö móti sól eöa hún hnípir undir fargi
vetrarins. En þráin sú ber vitni skyldleikanum við
Krist, og þvl er þaö Kristi gjört, sem þeim manni
er gjört.
Hvert fátœkt hreysi höll nú er,
því Guö er sjálfur gestur hjer.
Þannig syngjum vjer á jólunum. En hvernig gistir
sonur Guös hús vor?
Sjáarinn rússneski, Leo Tolsto), hefir skrifaö sögu
um fátœkan og guðrækinn skósmiö, sem dreymdi þaö
eina nótt, aö Kristur myndi heimsœkja sig nœsta
dag. Hann lagöi trúnaö á drauminn og tók þegar
i morgunsárinu aö viröa fyrir sjer fæturna, er gengu
fyrir kjallaragluggann hans. En þetta voru alt kunn-
ir fœtur, Hann haföi sjálfur fengist viö skóna á þeim.
Þegar hann litaðist um, sá hann gamlan mann þar úr
bænum aö snjómokstri. Hann sá, aö honum var kalt,
og flýtti sjer aö bjóöa honum inn i hlýjuna til sín, gaf
honum te og hughreysti hann meö vinsamlegum orö-
um, svo aO hann fór aftur hress og glaöur. Skósmiön-
um varö enn tíölitiö út um gluggann. Loks sá hann
skó, sem hann kannaðist ekki viö. Þar stóð aökomu-
kona meö lítiö barn í fangi, klæölítil, og reyndi, sem
hún gat, aö halda á því hita. En það kom fyrir ekki,
og barniö grjel. Skósmiöurinn bauð þeim inn. Þau
voru batfii svöng, og hann gaf þeim matinn sinn. Síðan
fjekk hann konunni hlýja úlpu, sem hann átti, og
hún lagöi örugg til áfangastaðar. Skósmiöiitn tók
nú aö furöa á því, hve lengi drœgist heimsókn Krists,
og enn horföi hann fast út á götuna. Að áliönum
degi sá hann konu meö eplapoka. Hjelt hún i dreng
og ætlaöi aö berja hann fyrir þaö, aö hann haföi
hnuplað epli úr pokanum. Skósmiðurinn hraöaöi sjer
iít, og tókst 8vo vel aö sœtta þau, aö þau urðu sam-
feröa, og drengurinn hjelt á pokanum fyrir konuna.
Loks var dagur aö kveldi kominn, og skósmiöurinn
hugöist aö taka á sig náöir. Hann var angurvær yfir
þvi, aö honum virtist draumurinn hafa brugöist. Hann
tók Biblíuna sína, eins og hann var vanur. En viö
hugljómun yfir lestrinum skildi hann þaö, aö Krist-
ur haföi verið hjá honum, hann, sem sagði: Þaö,
sem þjer hafiö gjört einum minna minnstu bræöra,
þaö hafiö þjer einnig mjer gjört.
Jeg hygg, aö enginn hafi túlkaö þessi orö sannar
nje betur. Aö sama skapi sem andi kœrleikans snertir
hjörtu vor og heimili, gistir Kristur oss. Aö sama
skapi lifum vjer jól.
Et til vill finst ýmsum, aö vjer Islendingar eigum
allir svo nægta nóg, aö nú sje lítil þörf á að liðsinna
öörum. En jeg efast um, að á nokkurri öld kristn-
innar hafi oss verið meiri þörf kærleikans til að
brœöa hjartans ís. Og ógurlegur ábyrgðarliluti er
það fyrir þjóð vora, ef peningagróðanum af hörmung-
um stríösins veröur varið til ills en ekki góös. Þessi
jól skyldu veröa jafnt einstaklingum sem þjóðinni
i heild áminning um þaö aö gefast Guði en ekki
mammoni. Kærleikanum er 'farið eins og jólaljósinu.
Hann eyöist ekki, hversu mörg ijós, sem veröa tendr-
uö af honum.
Guö er kærleikur. 1 þeim oröum felst allur fagn-
aöarboðskapur jólanna.
Heimsböliö, sárt og þungt, meira en tárum taki,
mun batna. Vjer megum ala þá von í brjósti, aö lífs-
striö hverrar kynslóðar veröi meö nokkurum hætti
fæöingarhriöir þess, sem betra er. Hann, sem í
fyrstu gisti jötu, mun um síðir gista veröld alla. Hann
kemur, hann er altaf aö koma, jólahátíðin altaf að
renna upp. Hann kemur eins og sólin, er hún endur-
speglast i snjókristöllunum, eöa lifið, þegar náttúran
brosir. Hann kemur i hverri góöri og fagurri hugsun,
i hverri kærleikstilfinningu og hverju bróöurhandtaki
öörum til hjálpar. Hann kemur i allri viðleitni mann-
anna til þess aö bera hver annars byrðar og láta
kærleikann skipta gjöfum Guðs til þeirra. Hann kem-
ur innan frá meö áhrifum anda síns til þess aö um-
mynda mannlifiö, svo að allir finni, að þeir sjeu
börn sama fööur, Guös kœrleikans, og lifi eftir þvi.
Hvenær þvi marki veröur náð, vitum vjer ekki, en
hitt vitum vjer, aö Kristur á aö koma þannig til jarö-
trinnar [ voru eigin UfL
ÖUum heimi, öldum og óbornum, er frelsari fœdd-
ur.
GLEÐILEG JÖLl
Ásmundur Guðraundsson.
x~x~x~:~:~x~:~:~:~:~:**:~>*:~>.>.:~><.<..;->*>*x~x~:~:"X~>*x~>:~m^<~><~x~x**m~>*>*x**>*x~m~x~>*X">*x~X"M":~x**x~x**:~m~X'