Lesbók Morgunblaðsins - 23.07.1939, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 23.07.1939, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS i 225 Hann virðist eiga heima á sjón- um. Jeg get hugsað mjer hann sem víkingv Og mjer finst það varpa mildandi ljósi yfir víkingana, að hngsa mjer að þeir hafi verið ein- mitt svona. Þetta var ekki grimd. Það var hreysti og manndómur, þó að okkur þyki nú ógurlegt að hugsa til þeirra, sem fyrir þeim urðu. Skipstórinn er sá af skipsmönn- unum, sem mjer finst eiga mest heima á sjónum. Hann mun líka vera ókvæntur, og á því alt heim- ili sitt á skipinu. En einkennilegt má þetta líf vera. Hann les vafa- laust mikið og er ótn'dega vel heima í öllu. Akveðnar skoðanir hefir hann bæði á því sem er heima fyrir og annarsstaðar. Það er fengur í því að hafa kynst honum. Fyrsti stýrimaður, Sauness, er fremur lítill maður vexti, en greindarlegur og glaðlyndur í við móti, en alvörumaður. Hverjum manni hlýtur að líða vel með hon- um. Annar stýrimaður heitir Smaaland. Hann er meðalmaður á vöxt og rösklegur. Hann horfir vel á hlutina og er ekki sammála til- verunni um alt, heldur er hann til í að sundurlima hvert mál og skoða það að innan. Og mikla hlýju á hann. Jæja, — nú eiga þessir menn allir saman að hverfa út úr okkar tilveru aftur. — Skip sem mætast á nóttu! En Fulton með öllu sem honum fylgir, verður þó að varan- legum lið í þessu undarlega mál- verki, sem heitir meðvitund, ijós og þægilegur blettur, hlýr og nota- legur. Til æviloka verður hægt að koma þangað við og við og kanna ylinn frá þessari liðnu stund. Kvöldið er unaðslega fagurt, blaktir ekki hár á höfði og hvorki heitt nje kalt. Fulton hefir nú að mestu stöðvað ferðina, því að hann kemst hvort sem er ekki að landi fyr en í fyrramálið. Hann lónar í logninu inn spegilsljettan Genúaflóann. A bakborða sjást nú Alparnir, en fyrir stafni blikar innsiglingarviti. Yfir borginni slær bjarma upp um skýhuluna. Nú á að vakna snemma á morg- Un. Nú á eitthvað að fara að ger- ast. í dag eigum við að fá póst að heiman! Og í dag fáum við að vita eitthvað um framhald ferð- arinnar, sem nú fer eiginlega að byrja. Og þá hætti jeg líklega að mestu leyti að skrifa ferðasögu. Þá byrjar ferðin sjálf. Og þegar ferðin byrjar, hættir líklega ferða- sagan. Sauðaþjófarnir í Dýakoti. Framhald af bls. 221. aðrir bjargast en rummungs sauða þjófar. Loks var gerð þjófaleit hjá Jakobi og hann settur í varð- hald um lengri eða skemri tíma; svo datt þó málið niður og menn sleptu Jakobi, með skömmustusvip miklum, því að ekkert fanst er gefið gæti ástæðu til ákæru. Út úr þessum leiðindum tapaði yngsti .sonur þeirra Dýakotshjóna vitinu, og drekti sjer í lestaferð til Akur- evrar. Forni Hólmgeirsson. — Lofaðu þeim hara að halda áfram. Þetta er í fyrsta skifti sem þau sýna áhuga t’yrir píanóinu. — Já, jeg er viss um að við ókum á kú, en hvar er hún? — Hvernig stendur á því að þú þolir konunni þiuni að hún segi hvhrjum sem heyra vill að hún hafi gert þig að manni. Slíkt mundi jeg aldrei þola minni konu. — Þú þarft ekki ekki að gapa hátt. Þín kona segist hafa gert það sem hún get til að gera þig að manni. — Af hverju ertu með svona skrítinn hatt — Það er til þess að fólk horfi ekki eins mikið á ístruna á mjer. Hún (eftir rifrildið). — Þegar þú kemur heim af skrifstofunni, verð jeg farin heim til mömmu. Og enn eitt: Jeg bíð ekki með kvöldmatinn nema til klukkan hálf átta.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.