Helgarblaðið - 07.02.1992, Blaðsíða 27

Helgarblaðið - 07.02.1992, Blaðsíða 27
Helgar 27 blaðið Norrænn Á nýafstöðnu þingi Fimleikasambands Norð- urlanda, sem haldið var í Osló, var Fimleikasam- bandi íslands falið að taka við stjórn norræna fímleikasambandsins. Þetta þýðir í reynd að stjóm FSI fer með stjóm Fimleikasambands Norð- urlanda næstu tvö árin og jafhframt flyst skrifstofa norræna sambandsins til Islands. Formaður Fimleikasam- bands Islands, Margrét fimleikaformaður Bjamadóttir, er því orðin formaður Fimleikasam- bands Norðurlanda. Hún er íyrsta konan sem fer með stjóm norræna fim- leikasambandsins í 72 ára sögu þess. A þinginu var ákveðið að auka til muna norrænt samstarf í námskeiðum, mótum og fræðslu. Það kemur því í hlut íslands að sjá um allt skipulag og verður leitast við að fá hingað til lands fremstu kennara á sínu sviði á veg- um Alþjóða fimleikasam- bandsins. Meðal þeirra verkefna sem framundan em má nefna að i júní í sumar verður hér á landi haldin sérstök bamaráðstefna og stórmót fyrir eldri borgara frá öllum Norðurlöndum árið 1993. Ljóst er að þessi verkefni og fjölmörg önn- ur sem unnið er að, munu efla allt fimleikastarf á ís- landi og styrkja stöðu ís- lenskra íþrótta í alþjóðlegu samstarfí. Margrét Bjamadóttir. Mynd: Kristinn. Vetrar- ólympíu- leikarnir í Albertville (m Pau keppa á 3^ ólympíuleikunum Rögnvaldur Ingþársson er 23 óra Akureyringur. Hann var6 íslandsmeistari i 30 kiló- metra göngu 1991 og var einnig í sigurli&i Akureyringa i boógöngu 1991. Þó var& hann annar i 15 kilómetra göngu ó skí&alandsmótinu sem fram fór ó ísafirói 1991. Á morgun, laugardaginn 8. febrúar, verða 16. vetraról- ympíuleikamir í Albertville í Frakklandi setíir við hátíð- lega athöfn. Alls munu leik- amir standa yfir í um hálf- an mánuð en þeim lýkur sunnudaginn 23. febrúar. Sjónvarpið verður með viða- mikla dagskrá vegna Ieik- anna og verður alls sent út efni í tæpa 67 klukkutíma. Ásta Sigrídur Halldórsdóttir er 21 órs og þrefaldur Islands- meistari i alpagreinum kvenna 1991. Hún var ennfremur kjör- in skióamaóur órsins 1991 og vann bikarkeppni SKÍ sama ór. Þó hefur hún unnib til veró- launa ó alþjó&legum skí&amót- um sem haldin hafa verió hér ó landi og staóió sig vel ó al- þjóblegum mótum sem hún hefur tekió þótt í erlendis. Að þessu sinni taka fímm Is- lendingar þátt í vetrarólympíu- leikunum en þátttaka í leikum sem þessum er einatt hápunktur- inn á ferli hvers skíðamanns. Svona fyrirfram er ekki við því að búast að íslenska skíðafólkið verði fyrirferðarmikið á verð- launapallinum, en á skíðum sem og í öðrum íþróttum getur auðvit- að allt gerst og ekkert hægt að útiloka í þeim efnum. Islensku keppendumir eru Ásta Sigríður Kristinn Bjömsson er aóeins 19 óra gamall. Hann hefur undanfarin ór verið vi& nóm í skíbamenntaskóla i Nor- egi þar sem hann hefur jafn- framt veríb viö æfingar. Krist- inn var& Islandsmeistari i stór- svigi 1991, hefur unni& tvö al- þjó&leg FlS-mót, i Noregi og Austurríki. Hann er númer 225 ó heimslistanum af um fjögur þúsund ski&amönnum. Halldórsdóttir, sem á lögheimili í Bolungarvík en keppir fyrir Isa- fjörð, Kristinn Bjömsson Olafs- fírði og Ömólfur Valdimarsson Reykjavík. Þau þrjú keppa í aljja- greinum og jafnframt verður Asta Sigríður fánaberi liðsins við setn- ingu leikanna. 1 skíðagöngu em skráðir tveir keppendur, þeir Haukur Eiríksson og Rögnvaldur Ingþórsson, báðir frá Akureyri. Þjálfarar em þeir Sigurður Örnólfur Valdimarsson er 27 óra Reykvikingur. Hann er númer 290 ó heimslistanum og var& íslandsmeistari i sam- hli&a svigi 1991. Þó hefur hann einnig sta&i& sig vel ó al- þjó&legum skí&amótum erlend- is og me&al annars unni& þar til ver&launa. Jónsson í aplagreinum og Bo Er- icsson í skíðagöngu. Flokksstjór- ar em þau Helgi Geirharðsson og Inga Hildur Traustadóttir. Aðal- fararstjóri og fulltrúi ólympíu- nefndar á leikunum er Ágúst Ás- geirsson blaðamaður. Þá verður formaður íslensku ólympíunefnd- arinnar, Gísli Halldórsson, við- staddur Ieikana að hluta til. Aðal ólympíuþorpið verður í Brides les Bains, en alpagreina- menn munu búa í Val d’Isére og Haukur Eiríksson er 27 óra Akureyringur og er vi& nóm í Sviþjó& þar sem hann stundar jafnframt æfing- ar. Hann var& Islandsmeistari i 15 kilómetra göngu 1991, no- rænni tvikeppni auk þess sem hann var i sigurli&i Akureyr- inga í bo&göngu 1991. göngumennimir þar sem norrænu greinamar fara fram, í Les Saisi- es. Eins og sjá má af þessu fara ólympíuleikamir fram á mörgum stöðum í frönsku ölpunum og em tugir kílómetra á milli keppnis- staða. Sem dæmi má nefna að ef göngumennimir ætla sér að heim- sækja alpagreinamenn eða öfugt, þurfa þeir að aka 236 kílómetra fram og til baka, mestmegnis á þröngum og krókóttum fjallveg- um. Lagtá fótbolta- ráðin íslenska landsliðið í fótbolta hélt áleiðis til Möltu í vikubyijun og mun liðið leika þrjá leiki þar ytra. Mót- herjar liðsins eru ól- ympíulið Norðmanna, svissneska liðið Luz- em og landslið heima- manna. Myndin var tekin á síðustu æfmgu lands- liðsins fyrir Möltufór- ina á sandgervigras- vellinum í Kópavogi. Myna: Kristinn. I beinni útsendingu Eins og áður segir verður Sjónvarpið með viðamikla dag- skrá frá vetrarólympíuleikunum og meðal annars verður sýnt beint frá öllum keppnisgrcinum sem Islendingar taka þátt í og ijölmörgum öðrum. Á fyrsta degi verður sýnt beint frá opn- unarhátíð leikanna frá klukkan 15.50 til 17.45, laugardaginn 8. febrúar. (Sjá nánar sjónvarps- dagskrá næstu viku.) Það er svo ekki fyrr en á mánu- dagsmorguninn, 10. febrúar, frá klukkan 08.55 til 11.10, sem sýnt verður frá fyrstu keppnisgrein Is- lendinganna, 15 kílómetra göngu karla. Þar verða meðal keppenda þeir Haukur Eiriksson og Rögn- valdur Ingþórsson. Þeir hinir sömu verða svo aftur í eldlínunni fimmtudaginn 13. febrúarþegar sýnt verður beint frá keppni í 10 kílómetra göngu karla frá klukkan 08.50 til 10.30 og á sama tíma laugardaginn 15. febrúarþegar þeir keppa í 15 kílómetra göngu. Keppni í alpagreinum hefst ekki íyrren sunnudaginn 16. febrúar þegar keppt verður í risasvigi karla og daginn eftir í risasvigi kvenna. Góða skemmtun. Föstudagurinn 7. febrúar

x

Helgarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.