BFÖ-blaðið - 01.01.1966, Qupperneq 6

BFÖ-blaðið - 01.01.1966, Qupperneq 6
var það þó einkum eitt atriði, sem við vildum minnast á, sem sé glit- merkin. Ýmislegt gott mætti gera til að fá fólk til að taka upp notkun glitmerkja (spjöld, bönd), og heiður sé öllum þeim sem vilja vinna þar að eða leggja því starfi fé. En þetta er ekki nóg. Það er ekki nóg að hrópa upp um glitmerki, þegar hver sem vill getur eftir sem áður, án hættu á viðurlögum, ganað út í niðamyrkur á blautt malbik, klæddur dökkum regnverjum frá hvirfli til ilja. Aug- ljóst er, hversu heimskulegt þetta er og andstætt allri skynsemi. Meðfram stafar þetta máske af því, að endurskinsbúnaður er nýleg uppfinning, aðeins nokkurra ára gömul, og hafa menn því almennt ekki gert sér grein fyrir gagnsemi hennar enn. Að auki veldur þessu sennilega sú grundvallarskoðun al- mennings, að fótgangandi vegfar- endur eigi allan „rétt“ og að þeir þurfi aldrei að óttast hegningu, nema þá í hreinum undantekningartilfell- um. En nú hlýtur að vera kominn tími til að breyta þessu, gera fót- gangandi fólki það skiljanlegt, að það verði að hlýða umferðarreglun- um sem aðrir vegfarendur. Að nauð- synlegt sé, að það geri sig sýnilegt í myrkri alveg eins og bílarnir. Undarlegt að ekki skuli þegar hafa verið tekið ákveðnum tökum á þessu máli. ÖKUÞREYTA I Svíþjóð kom nýlega út bók með þesu nafni: Trafik och trötthet - Umferð og þreyta. Höfundar bókar- innar eru tveir, þýzkur prófessor að nafni Albert Ponsold og sænski um- ferðarsérfræðingurinn Rune And- réasson. Blaðið Motorföraren birti fyrir skömmu samtal höfundanna um efni bókarinnar. Allir ökumenn, segir blaðið, þyrftu að þekkja vel munin á því að vera óþreyttur eða þreyttur. Rannsóknir hafa farið fram varðandi þetta, t. d. var rannsakað ástand 175.000 öku- manna, sem þurftu að fara alllanga leið um nokkuð misjafnlega gerða þjóðbraut í Bandaríkjunum. Talið var víst, að 15% slysanna á veginum orsakaðist af þreytu. 34% orsakað- ist af aðgæzluleysi og 45% af þreytu og aðgæzluleysi í senn. Því nánar sem þetta var athugað, virtist aug- ljóst að aðgæzluleysið var að miklu leyti afleiðing þreytunnar. Það er þreytandi verk að aka bíl. Önnur rannsókn, einnig í Banda- ríkjunum, leiddi í ljós, að 147 bílstjór- ar í 454 umferðarslysum og 24 í 56 dauðaslysum höfðu sofnað við stýr- ið, og í skýrslu um umferðarslys á þjóðbrautum landsins yfirleitt árið 1964, segir, að ástand ökumannanna hafi verið sljóleiki, aðgæzluleysi, 6 BFÖ-BLAÐIÐ

x

BFÖ-blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.