BFÖ-blaðið - 01.01.1966, Blaðsíða 11

BFÖ-blaðið - 01.01.1966, Blaðsíða 11
að gera sér grein fyrir því að til þess að verða góður ökumaður við allar aðstæður, þarf fleiri ára æfingu og haga sér eftir því, halda sig ekki meiri en maður er og fyrir alla muni að halda ekki að maður sé orðinn mikill ökumaður, nýbúinn að taka próf. Á því hefur margur illa farið. Það er ekki lítill vandi að kunna að aka eftir aðstæðum, en góðir ökumenn verða þeir einhverntíma, sem reyna að gera það. Gerðu allir þetta, myndu flest umferðarslys og tjón hverfa úr sögunni. Hugsið ykk- ur þá breytingu og hugleiðið hins- vegar, að nú er svo komið í umferð- armálum þéttbýlisins hér, að ýmsir ökumenn hika við að fara út með fjölskyldu sína í bíl sínum að kvöldi í skammdeginu af ótta við það að þeirra nánustu verði drepnir eða stórslasaðir af ökuníðingum eða ökuskussum. Við, sem ökum bíl, megum alltaf búast við því að lenda í umferðar- tjóni eða slysi, sama hve varlega við reynum að fara og hve góðir öku- menn sem við þykjumst vera. Þetta er svona. Hinsvegar er það staðreynd að margir ökumenn ímynda sér alltaf að ekkert muni koma fyrir þá sjálfa og því fer oft sem fer. Þessir bjart- sýnismenn umferðarinnar eru þá líka oftast alveg óundirbúnir andlega er voðinn dynur yfir þá, og bregðast því oft við alveg öfugt við það, sem vera þyrfti. Það er vitanlega aldrei hægt að gefa neinar ákveðnar reglur um það, hvernig við eigi að bregðast, því aðstæður eru svo misjafnar. Það sem ég á við er það, að ökumaður þarf að vita dálítið um það hvað bezt myndi að gera í hverju ákveðnu tilfelli. Hér gildir sú regla að þekk- ingin er undirstaða þess að breyta rétt. Að breyta rétt í svona tilfellum þyrfti hinsvegar æfingar við, en af skiljanlegum ástæðum er slíkt lítt gerlegt. Eina ráðið er því að hafa hugsað fyrirfram um hlutina og gert sér grein fyrir hvað gera bæri ef þetta og þetta skeði. Þessi hugaræf- ing myndi oft koma að góðu gagni. Verði árekstur á milli bíla, er mjög hætt við að eldur geti komið upp í þeim. Sértu með logandi sígarettu þá dreptu strax í henni og rjúfðu strauminn, sért þú til þess fær. Það er einnig áríðandi að einhver, sem fær er um, einkum í myrkri, vari aðra bíla við hættunni, svo ekki skapist árekstrarkös. Varðandi þá slösuðu, séu þeir einhverjir, ber að fara eftir þeim reglum, sem fólki hafa verið marg byrtar. Aldrei má flýta sér að því að ná slösuðum manni út úr bíl, nema bráð eldhætta eða önnur hætta sé yfirvofandi eða þegar kviknað hefur í bílnum. Að lokum vil ég aðeins bæta því við að ég á ekki til heitari ósk en þá, að sem flestir ökumenn temdu sér að aka þannig að ekki hlytist af tjón og slys. Á. S. BFÖ-BLAÐIÐ II

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.