Kvásir - 07.04.1908, Blaðsíða 2

Kvásir - 07.04.1908, Blaðsíða 2
2 K VÁSIR „Þeir eru í vörzlum bankastjórans og enginn kemst þangað niður án þeirra“. „Fylgið með oss!“ sagði nú sá erstúlk- unnar gætti. Hann tók fast um hönd henn- ar og fór á stað, hinn maðurinn kom á eftir. Þegar þau komu út úr herberginu, brá -Margrétu í brún, er hún sá þar standa kvenmann, með þykka slæðu fyrir andliti, og i síðri kapu, með skriðljós í hendi. „Skyldi ekki eitthvað af þeim lyklum sem við þörfnumst, liggja inni á skrifstof- unni?“ spurði sá er gætti Margrétar. „Fað er hugsanlegt, en eg held þó ekki“, svaraði Margrét rólega. Eftir skipun foringjans, vísaði Margrét þeim á lykflinn að skrifstofunni. í’jófarn- ir leituðu þar inni, en fundu þó ekkert. f’eir skipuðu nú Margrétu að sýna sér lyk ilinn að kjallaratröppunum; því þeir kváðúut mundu geta lokið öðrum dyrum upp án . lykla. f’egar Margrét hafði sýnt þeim lyk- ilinn, sagði annar þjófurinn: „Eg get sannarlega hrósað þér fyrir hvað þú ert skynsöm, en þú verður að fyrirgefa þó eg neyðist til að binda þig. Hvar er bandið? “ f’essati spurningu var beint til kvenmanns- ins, sem hingaðtil hafði verið þögull áhorf- andi, en nú tók hún til starfa; hún hratt Margréti upp að digurri járnsúlu, tók upp band og reyi'ði hana fasta við súluna, síð- ast batt hún hendur hennar. „Eins og þú sérð, viJjum við ekki gjöra þer mein, verði hjá því komist", sagði hann kurteysi ræningi. „En nú verður þú að heita okkur þvi, að kalla ekki né hrópa á hjálp, annars neyðumst við til að láta kefli í munninn á þér“. Eftir augnabliks umhugsun svaraði Margrét: „Eg get gjarnan lofað því að kalla ekki á hjálp, þvi það mundi vera til einskis". Henni létti um andardráttinn, þegar ræningjarnir voru farnir. Nú hafði hún ekki annan félagsskap en daufan gasloga, sem bar svo litla birtu, að hún aðeins gat eygt það sem næst var. Með afli öi-væntingar gerði hún tvær til- raunir að slíta sig lausa, en áraugurslaust. Hún gat því ekki annað en brotið heilann um hvei't hún mætti nokkuð aðhafast. Hún vissi, að þjófarnir urðu að brjóta upp tvennar sterkar járndyr, áður en þeir næðu nokki-um peningum, og þar sem hún þekti ekkert til hinna snildarlegu verkfæra inn- brotsþjófa, efaðist hún ekki um að ‘dymar mundu standast áhlanp þeirra. Það sem hún óttaðist mest, var, að þjófarnir rnyndu yfirgefa bankann, og láta hana standa bundna þangað til næsta morgun kl. 10, er kjallarinn yrði opnaður, henni fanst óhærilegt að hugsa til þess að standa þarna bundin, meir en 10 tíma. ^praumur. f’að dreymdi mig, að eg þótt.umst ganga um stræti borgar nokkurrar, Sá eg á ein- um stað, er eg kom fyrst að, hús nokkur saman í röð, þótti mér sem þau rnyndu ei bygð vera, og voru þó hin veglegustu að sjá, undraðist eg yflr að enginn maður skyldi þar bústað eiga. í sama bili kom að mér maður nokkur, beilsaði eg honum og spyr, hveisvegna hús þessi séu öll í eyði látin. Þótt.i mér hann þá svara, að eg væri furðu fáfróður, að þekkja eigi sögu þeirra, bauð hann að segja mér hana, og þá eg það með þökkum ; hóf hann mál sitt á þessa leið: „Endur fyrir löngu, þegar vér íslendirig- ar vorurn sjálfstæð þjóð, var því spáð, að hór mundi reistur verða skáli mikill, er mundi standa um þjóðbraut þvera og veita gesturn og gangandi góðan beina. En er vér komumst undir erienda áþján, rættist spásaga sú, þótt á nokkuð annan veg væri, þá voru reist hús þau hin miklu, er hér rná líta, og stóðu þau að vísu ekki um þjóðbraut þvera, en eigi að síður komu hér margir gestir og gangandi, og það kunnum vér að segja, að margir baggar hafa hér bundnir verið, og Qeldí þéfrfa''

x

Kvásir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvásir
https://timarit.is/publication/192

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.