Lögberg-Heimskringla - 17.03.1995, Blaðsíða 27

Lögberg-Heimskringla - 17.03.1995, Blaðsíða 27
LögbergrHeimskringla • Föstudagur 17. mars 1995 • 27 Á Skíöum í hlíðum Snæfellsjökuls: kíðaíþróttin hefur notið vaxandi vinsælda á Islandi og ferðamenn sækja til íslands í skíðaferðir í auknum mæli. Einn sá staður sem heillar skíðamenn er Snæfells- jökull. Snæfellsjökull er einn formfegursti jökull landsins. Tíguleiki jökulsins er nægileg ástæða til að margir fyllast undarlegum ken- ndum gagnvart þessari náttúruperlu. Skíð- amenn hafa litið þessa hvítu perlu hýru auga. Marga hefur dreymt um að skíða niður hlíðar Qallsins. Tryggvi Konráðsson og foreldrar hans sjá um ferðaðjónustuna Snjófell á Amarstapa. Þau hafa verið með skipulagðar ferðir upp á jökulinn í tvö ár og notað til þess níu snjósleða og einn stóran snjótroðara, sem tekur ailt að 20 manns í hverri ferð, auk þess að reka veitin- gasölu og gistiaðstöðu á Amarstapa. Þau hafa fengið leyfi hjá sveitafélaginu til að setja upp skíðalyftu á jöklinum. Síðastliðið vor lagði hópur skíðaáhugaman- na úr Reykjavík og frá Isafirði í hópferð á jökulinn. Skíðakappamir ákváðu að notfæra sér nútímatækni til að flytja sig upp á hæsta tindinn og tók ferðin upp með þyrlu frá Arnarstapa aðeins um fjórar mínótur. Hópurinn fékk sannkallað draumaveður, logn og heiðrílíju. Útsýnið af jöklinum var því eins og best verður á kosið í allar áttir. Barðaströndin og Breiðafjörðurinn skörtuðu sínu fegursta í norðri og hinum megin við Faxaflóann böðuðu Akrafjall og Skarðsheiðin sig í sólsldninu. Útsynið var svo stórkostlegt að skíðakapparnir áttu erfitt með að slíta sig frá toppnum þó svo að fannhvítar brekkurnar væru freistandi fyrir neðan þar sem menn gátu rennt sér allt að 7 kílómetra langa leið í einni bunu niður suðurhlíð jökulsins að Amarstapa. Þeir sem tóku þátt í þessari ferð á jökulinn voru allir sammála um ágæti hennar. “Þetta er alveg meiriháttar. Þetta er toppurinn,” sögðu skíðakapparnir og áttu varla orð til að lýsa hrifningu sinni. Jökullinn er skíðaparadís sem er engu öðm lík og bara að koma upp á hæsta tind, sem er í 1.450 metra hæð gefur manni eit- thvað sem erfitt er að lýsa. Kannski er það krafturinn sem sagður er í jöklinum sem hefur þessi áhrif. Þrír hæstu tindar jökulsins nefnast þúfur og er sú í miðjunni hæst þeirra, Nokkrir létu sig vaða fram að þverhnýptri þúfunni með misjöfnum árangri. En allir komust klakklaust niður jökulinn. Þetta er hrein paradís sem íslendingar eiga enn eftir að uppgötva. Skiing at Snæfells-jökull Continued tempting; where a 7 km run down the south side of the mountain awaited them. A few hurled themselves off the top of the glacier over a per- pendicular mountain side with various results, but all came down the mountain safely. Words failed the champions when they tried to describe this experience. “This is maximum, this is tops”, they said. It is certain that this jewel of nature is going to continue to attract skiers. The glacier is a par- adise for skiers unlike any other. Gurtnur Isfeld Meö þaö fyrir augum aö efla gott samband og greiöa fyrir viöskiptum milli íslands og Kanada og til pess aö gæta íslenskra hagsmuna þar skipa ég hér meö HR. NEIL 0. BARDAL til þess aö vera kjörræöismaöur íslands meö aöalræðismannsstigi í Winnipeg. Eru þaö tilmæli mín, aö hlutaðeigandi stjórnvöíd veiti HR. NEIL 0. BARDAL alla þá aðstoð, sem hann kann að þurfa á aö halda í ræöisstarfi sínu, og aö þau láti hann veröa aönjótandi allra þeirra réttinda, hlunninda og ívilnana, er ofangreindri stöðu fylgja og veitt eru ræöismönnum annarra ríkja. Gjört í Reykjavík, 14 febrúar 1995. •Jjrrr^cjácfó^U' 'pn - Vigdís Finnbogadóttir Jón Baldvin Hannibalsson SKIPUNARBRÉF fyrir hr. Neil 0. Bardal til þess að vera kjörræðismaður íslands meö aðalræöismannsstigi í Winnipeg. ^Aoo/cw?ná: that with a view to strengthening the existing good relations and to facilitate commerce between Iceland and Canada and to safeguard Icelandic interests, I hereby appoint MR. NEIL 0. BARDAL as Honorary Consul of Iceland having the rank of Consul General in Winnipeg. It is my request that the competent authorities furnish MR. NEIL 0. BARDAL with all the assistance that he may require for his Consular functions and that they extend to him all the rights, privileges and concessions which are commensurate with his post and which are granted to Consuls of other States. Done in Reykjavík, 14 February 1995 •Jjrrr^ocjácfó'il^' 'í~7?c'LtUu-<~ '/ ■l’ - i >‘i Vigdís Finnbogadóttir Jón Baldvin Hannibalsson Letter of Appointment for Mr. Neil 0. Bardal to be Honorary Consul of Iceland having rank of Consul General in Winnipeg.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.