Sunnanfari - 01.12.1891, Blaðsíða 16

Sunnanfari - 01.12.1891, Blaðsíða 16
62 í fjarveru Borgens sýslumanns. 9. Mai 1844 var Jóni veitt Strandasýsla og var hann þá fyrsta veturinn (1844—45) vistum meðjóni kammeráði Jónssyni á Melum, en síðan tvö ár með Búa prófasti Jónssyni á Prestbakka. 10. Mai 1847 fékk hann veitingu fyrir Borgarfjarðarsýslu, en tók ekki við henni þá þegar, heldur var hann settur til að þjóna Vesturamtinu þegar Bjarni amt- þ>orsteinsson sigldi til lækninga við augnveiki sinni. í borgarfjarðarsýslu var Jón stúdent Árnason á Leirá settur á meðan. Veturinn 1847—48 var nú Jón sýslumaður vestur á Stapa þar til amtmaður kom út sumarið 1848; þá fór }ón vestur að Staðarfelli og kvæntist þar 11. Júlí Jóhönnu Sofíu yngstu dóttir Boga stúdents Benediktssonar. þ>á um vorið 1. Júní fékk hann veitingu fyrir Mýra- og Hnappadalssýslu, en þjónaði þó jafnframt Borgarfjarðarsýslu til 20. Júlí 1849. |>enna vetur (1848—49) var Jón og kona hans vistutn með Birni Guðmundssyni í Hjarðarholti í Stafholtstungum, bróður Haldórs skólakennara, en fóru um vorið að búa í Norð- tungu, og næsta vor fluttu þau að Hamri, en þar bjuggu þau ekki leingi, því að 16. Mai um vorið (1850) fékk Jón veitingu fyrir embættinu sem annar dómari og dómsmálaritari í landsyfir- réttinum og fluttist suður í August um sumarið; árið eptir keypti hann hús það er hann hefir nú búið í full 40 ár. í>egar Kristján Kristjánsson var settur af bæjar og landfógetaembættinu 1851 eptir þjóðfundinn var Jón skipaður til þess að þjóna því þangað til að Vilhjálmur Finsen tók við um sumarið 1852. 31. Marts 1856 varð Jón 1. meðdómari og 7. Nóv. 1877 varð hann háyfirdómari, en fékk lausn frá því embætti 16. Apríl 1889 eptir 46 ára embættisþjónustu og hafa varla aðrir lögfræðingar á íslandi en ísleifur Einarsson og Páll amtmaður Melsteð þjónað svo leingi. Jóhönnu konu sína misti Jón háyfirdóm- ari 21. Mai 1855. þ>eirra börn séra Pétur á Hálsi, séra Brynjólfur á Olafsvöllum, Jarþrúður kona Hannesar kandidats hins fróða í Reykjavík þ>orsteinssonar ogjóhanna kona séra Zophoniass prófasts Haldórssonar. Vorið 1856 kvæntist Jón aptur og gekk að eiga Sigþrúði dóttur Friðriks prests Jónssonar í Akureyjum og eiga þau sex börn, sem öll eru á lífi: Friðrik kand. theol. og Sturla, báðir kaupmenn í Reykjavík, Arndís kona Guðmundar læknis á Laugardælum, jþóra, Elínborg og Sigríður. Jón Pétursson var sæmdur riddarakrossi dannebrogsorðunnar 1874 og dannebrogsmaður varð hann 1889. Hann var kosinn alþingismaður fyrir Reykjavík 1855 í stað Jóns landlæknis J>orsteinssonar, en mætti þó á þinginu það ár fyrir Strandasýslu sem varaþingmaður þeirrar sýslu. Frá því 1859 og þangað til á aukaþinginu 1886 sat Jón Péturs- son á alþingi sem konungkjörinn þingmaður og var þá öldungur þingsins í síðasta skiptið. Ekki mátti hann mælskan kalla á þingi nema í meðal- lagi, en tillögugóður var hann og studdi jafnan mál sitt með rökum gætiliga og stilt. En frjáls- lyndur þótti hann í ýmsu framar en menn köll- uðu að sumir aðrir konungkjörnir menn væri, svo sem í stjórnarskrármálinu, og íslenzkur var hann ætíð í hugsunarhætti. Nokkur ritstörf liggja eptir Jón Pétursson og sum alleinkennileg. En þar fréttum vér fyrst til rita hans sem hann gefur út boðsbréf í Kaup- mannahöfn 1840 upp á reikningsbók, sem þó fórst fyrir vegna bókar Jóns Guðmundssonar. En reikningi hafði Jón Péturssonar snemma yndi af { skóla og svo hefir verið æ síðan. Af lagarit- um hans er að geta kirkjuréttarins, sem komið hefir út í tveim útgáfum og frumvarps hans til landbúnaðarlaga, sem er svo íslenzkt, að það þótti ekki henta að það yrði lög. »íslending« hinn fyrra var Jón með að gefa út. Einn hélt hann út »Tímiriti« á árunum 1869 — 73, mjög fróðlegu, en þó svo löguðu að naumlega var von að það mundi borga sig; lét hann prenta þar i ættartölur og ógrynni máldaga og fornra skjala og sýnir ritið vel hinn forníslenzka hugs- unarhátt útgefandans. 1848—49,þegarjón háyfir- dómari var í Hjarðarholti, fór hann fyrst að leggja stund á ættvísi; keypti hann þá frumritið af ættartölubók Espólíns í átta bindum af séra Hákoni Espólín, en ættartölubók Olafs Snóks- dalíns keypti hann í Reykjavík að þ>órði há- yfirdómara Sveinbjörnssyni og hefir hann eink- um aukið þær og haldið þeim fram. En ætt- vísi Jóns háyfirdómara hefir einna mest komið fram á prenti í athugasemdum hans við Sýslu- mannaæfir Boga teingdaföður hans. Jón Pétursson háyfirdómari er áttræður 16. þ. m.

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.