Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Page 13

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Page 13
13 er breiddin 8,70 m. við gólf, en suðurstúkan er þar grafin mjög út- undir. Dyrahæð inn í stúkurnar er l3/« m. — Nyrðri stúkan er nær hálfkringlumynduð, 2,65 m. að breidd; suðurstúkan er 4,10 m., en þar eru skvompur út í. Sbr. e. fr. 7—9. Hellirinn er nú að vísu víða ósljettur innan, en þar mun hafa dottið úr honum. Yfirleitt hefur hvelfingin sína upprunalegu lögun og sér þar höggförin á. Hann er vafalaust höggvinn út af manna- höndum, en bergið hefur víða verið svo laust, að stór stykki hafa sprung- ið og fallið úr. »Húðin« á berginu er fram komin við notkunina, rakann og rykið. — í rauninni er pallurinn á norðurstúkunni ekki neitt líkur rúmi og er eins rétt að kalla hann jötu; virðast skepnur hafa verið bundnar i bríkurnar, bönd dregin gegn um götin. Þó þarf ekki að rengja þá sögn, að Eirikur rauði hafi haft þetta fyrir rúm. — í stúku- dyrnar hefur verið skotið slagbröndum og eru holurnar eftir þá. Eins eru holurnar inni í aðalhellinum, þær hafa verið fyrir slagbranda, milli- gerðir, en um bita til styrktar er hér ekki að ræða. — Þverbrandur hefur nefnilega verið færður til, er holurnar spilltust. Helluvaðs-hellar. Á Helluvaði eru 4 hellar. Nr. 1 er í útsuður frá bænum, í túninu rétt hjá. Hann er graf- inn í jörð ofan og er forskálinn í krók (horn), með 8 þrepum niður að ganga. Hann er tæpir 2 m. að hæð og 1 strompur á. Lengd er um 3 m. og breidd um 2, ferhyrndur og með allbeinum veggjum. Notaður fyrir jarðarávöxt; eru gryfjur í gólfinu fyrir kartöflur. Eldri er hann en menn muna. Nr. 2 er sauðahellir allmikill inn-með Rangá, nær inn á móts við fjárhús frá Árbæjarhelli. Hann er með gömlum, mjög mjóum og lágum forskála, beint inn í brekkuna upp frá ánni, ca. 3 m. löngum. Hellirinn er 8,40 m. að lengd og 4 m. að breidd; manngengur að kalla, en mjög er loftið ójafnt og fallið mikið úr því og veggjunum, .svo að nú sjást lítil mannaverk á honum. Garði úr tré er á miðju gólfi, endilöngu. Nr. 3. Rétt hjá neðar með ánni, er annar smáhellir, með líkum forskála, sem skríða verður inn, og er sá aðeins um 3 m. að lengd og 2 m. að breidd; ca. l'/2 m. að hæð; mun nú lítt notaður, en ætl- -aður fyrir hey. — Forskálarnir eru með hellum yfir, engum spýtum. Nr. 4 er aftur á móti við hlið nr. 2, innar með ánni; hann er með opi eða strompi ofaní og er hafður fyrir hey; er nú luktur að framan og verður ekki mældur, en er líklega álíka stór og nr. 2. — Bergið er hér laus sandlög, er sí og æ hrynja, og virðast þessir hell- ar ekki vera varanlegir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.