Fjölnir - 01.01.1847, Side 5

Fjölnir - 01.01.1847, Side 5
af J)ví er, má {)ó fullyrða, að flest af J)ví komist í engari sanijöfnuð við það, seni í honum bjó, og að það geti ekki sýnt til hlítar, hvílikur hann var sjálfur í raun og veru. J)að sannaðist á honum, eins og mörguni öörum Islendingi, að annað er gæfa, en annað gjörfugleiki. Samt her þess hins vegar að geta, að slíkir menn lifa margar sælu- stundir, sem mikill þorri manna þekkir ekki, og getur ekki heldur þekkt, sökum eðlis, eða uppeldis, eða hvorstveggja. Jónas var gildur meðalmaður á hæð, þrekvaxinn og limaður vel, en heldur feiflaginn á hinum seinni árum sakir vanheilsu, vel rjettur í göngu, herðamikill, haraxlaður, og nokkuð hálsstuttur, höfuðið heldur í stærra lagi, jarpur á hár, mjúkhærður, lítt skeggjaður og dökkbrýnn. Andlifið var þekkilegt, karlmannlegt og auðkennilegt, ennið allmikið, og líkt því, sem fleiri enni eru í hans ætt. Hann var rjettnefjaður og heldur digurnefjaður, granstæðið vítt, eins og opt er á Islendingum, og vangarnir breiðir, kinnbeinin ekki eins há, og tíðast er á Islandi, munnurinn fallegur, varirnar mátulega þykkvar; hann var stóreygður og móeygð- ur, og verður því ekki lýst, hversu mikið fjör og hýra var í augum hans, þegar hann var í góðu skapi, einkum ef hann ræddi um eitthvaö, sem honum þótti unaðsamt um að tala. Jað, scm liggur eptir Jónas heitinn ■ sunduriausu máli, er: I Fjölni — 1835: Fáein orð um hreppana á Islandi. Um eðli og uppruna jarðarinnar. — 1836: Af eðlisháttum fiskanna (eptir Cuvier). — 1837: Um rímur af Tistrani og Indíönu. — 1838: Frá Skírnarfonti Thorvaldsens. — 1843: Tómas Sæmundsson. Um flóð og fjöru. Almyrkvi á sólu í Vínarborg 1842. Góður snjór. — I 1845 snjeri hann úr dönsku Athugasemdum hra. Fiedlers um fiskverkun á Islandi.

x

Fjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/61

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.