Morgunblaðið - 01.06.2000, Síða 6

Morgunblaðið - 01.06.2000, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Sumarhá- tíð leik- skólanna í Garðabæ BÖRN úr fimm leikskólum Garða- bæjar héldu í gær sameiginlega sumarhátíð leikskólanna. Leik- skólabörnin hittust við hjúkrunar- heimilið og gengu þaðan fylktu liði með fána og í lögreglufylgd niður að Hofsstaðaskóla. Þar var flutt skemmtidagskrá þar sem hver leik- skóli söng sitt lag sem börnin voru búin að æfa og síðan horfðu þau á leikrit í Brúðubflnum. Þrátt fyrir kulda í lofti gekk há- tíðin ljómandi vel, að sögn Ernu Aradóttur leikskólastjóra Bæjar- bóls, og börnin kyrjuðu saman göngulög sem tengjast vorinu og sumrinu. Sumarhátíðin hefur verið haldin í nokkur ár og setur enda- punktinn aftan við vetrarstarf leik- skólanna, en nú tekur sumarið og sólin við. Morgunblaðið/Golli Kostnaður takmarkar möguleika fyrirtækja í fjarvinnslu á landsbyggðinni fyrir notkun MÖGULEIKAR fyrirtækja á lands- byggðinni í fjar- og gagnavinnslu, þar sem krafist er sérþekkingar, takmarkast mjög af háum kostnaði við gagnaflutninga eftir ljósleiðara- kerfi Landssímans og getur sá kostn- aður orðið flöskuháls fyrir þróun fjar- og gagnavinnslu á landsbyggð- inni. Þannig er munurinn á mánaðar- gjöldum fyrir notkun leigulínu rúmar 200 þúsund krónur á milli fyrirtækja í Reykjavík og á Akureyri, auk þess sem stofnkostnaður er ríflega 150 þúsund krónum hærri á Akureyri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu At- vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar varðandi möguleika Eyjafjarðar- svæðisins í fjar- og gagnavinnslu. Bjami Þór Þórólfsson, forstöðu- maður nýsköpunar- og markaðssviðs AFE og annar skýrsluhöfunda, sagði í samtali við Morgunblaðið að þó að tæknin sem slík væri fyrir hendi víða á landsbyggðinni, þá væri Ijósleið- araþjónusta Landssímans það dýr að margir h'ti svo á að hún sé einfaldlega ekki í boði vegna kostnaðar og ekki forsvaranlegt að nýta sér hana. Þetta á þó ekki við þegar notaðar eru hefð- bundnar símalínur og hægt er að nýta ISDN tæknina sem Landssím- inn vinnur að því að bjóða alls staðar á landinu, en í dag eru um 2-3.000 heimili í dreifðustu byggðum lands- ins utan svæðá þar sem hægt er að bjóða ISDN-téiigingu. Gagnaflutningur eftir símalínum er þó háður burðargetu þeirra, sem er langt frá því sem ljósleiðarinn býð- ur upp á. Fjar- og gagnavinnsla sem felst í þjónustuverkefnum sem ekki krefjast sérþekkingar getur nýtt ISDN tæknina, sérstaklega ef notuð er tvöföld ISDN tenging. A Akureyri er iyrirhugað að setja upp ADSL tækni sem auðveldar gagnaflutninga enn frekar eftir símalínum og er mjög heppileg leið að sögn Bjama Þórs. Dreifikerfi ADSL nær nú til flestra hverfa höfuðborgarinnar, en er þó ekki ennþá orðið valkostur í fjarvinnslu á landsbyggðinni. „En ef þetta er síðan orðin um- fangsmikil starfsemi sem krefst tenginga eins og Frame Relay eða leigulínu verður verðmunurinn fyrst og fremst mikill. Hann er ekki til staðar þegar verið er að nýta símalín- ur, það er ekkert dýrara að stunda grunnfjar- og gagnavinnslu á lands- byggðinni, en um leið og vinnslan er farin að krefjast mikillar flutnings- getu, þá kemur verðmunurinn í Ijós þegar fjarlægðin fer að telja. Ef flytja á verkefni út á landsbyggðina úr Reykjavík er þetta orðin stór tala þegar menn fara að reikna út hversu fýsilegur sá flutningur geti verið.“ • * í skýrslu AFE era tekin tvö dæmi sem sýna að mun dýrara er að reka gagnavinnslufyrirtæki á Akureyri heldur en í Reykjavík. Dæmin vora fengin frá Landssímanum og ná ann- ars vegar yfir Frame Relay tengingu og hins vegar tengingu með leigu- línu. Verðlagning á Frame Relay stýrist af því hversu hátt hlutfall af bandbreiddinni er tryggt og miðast verðin í dæminu við 25% tryggingu á bandbreidd. Þegar notaðar era leigu- línur er um 100% trygga bandvídd að ræða. Stofngjöld Frame Relay tengingar era þau sömu á Akureyri og Reykja- vík, eða 100.000 krónur. Mánaðar- gjald fyrirtækis á Akureyri vegna gagnaflutninga til og frá Reykjavík nemur 171.900 krónum á meðan sam- bærilegur kostnaður við gagnaflutn- inga á milli fyrirtækja í Reykjavík nemur 36.000 krónum á mánuði, og munar þarna 135.000 krónum á mán- uði. Ennþá meiri munur er á kostnaði við leigulínur. Stofngjöld á Akureyri nema 261.883 krónum á meðan stofn- gjöld eru 111.452 krónur hjá fyrir- tækjum í Reykjavík, og munar því rúmum 150 þúsund krónum á stofn- gjaldinu. Mánaðargjald leigulínu á milli tveggja staða í Reykjavík er 7.486 krónur, en mánaðargjald leigu- i veg línu á milli Reykjavíkur og Akureyr- ar er hins vegar 216.680 krónur, og munar þar 209.194 krónum á mánuði. Verðmunur ákveðin hindrun Skýrsluhöfundar segja að verði þessu ekki breytt muni verða gífur- lega erfitt fyrir fyrirtæki á lands- byggðinni að standast samkeppni við sambærileg fyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu, nema ríkið geri þeim það fjárhagslega kleift í formi peninga- legra byggðaaðgerða. Bjami Þór segir að einfaldast væri að sama gjald yrði tekið upp fyrir notkun ljós- leiðarans, sama hvar notandinn væri staddur á landinu, en að Landssím- inn líti á málið eins og menn geri t.d. í vegakerfmu í Bandaríkjunum þar sem þeir borga sem nota vegina. „Þú borgar þitt gjald þegar þú ferð í gegnum hlið þegar þú ferð um hrað- brautir erlendis, þetta er sama hugs- un.“ Hann segir að sú þróun eigi sér stað í öðram löndum að verið sé að jafna samkeppnisaðstöðu fyrirtækja í fjar- og gagnavinnslu í anda upp- lýsingatæknistefnu Evrópusam- bandsins, en að verðmunur milli fyr- irtælga sé of mikill hérlendis. „Þetta er ákveðin hindran og í rauninni leitt að ekki skuli vera betra ástand en þetta á íslandi.“ Ekki villast Fjölbreytt úrval korta í kortadeild Eymundsson Eyinundsson Kringlunni • sími: 533 1130 • fax: 533 1131 Möðruvellir bjóða upp á mörg tækifæri SÉRA Solveig Lára Guðmundsdótt- ir, sóknarprestur á Selljarnarnesi, hefur verið valin af valnefnd Möðruvallaprestakalls til að gegna embætti sóknarprests f prestakall- inu. Umsækjendur voru fimm og var niðurstaða valnefndarinnar ein- róma. Hefur valnefndin sent bisk- upi einróma niðurstöðu sína, en ráðherra skipar í stöðuna. Solveig Lára segir að hún hafi sótt um Möðruvallaprestakall því hana hafi langað að breyta til eftir að hafa verið prestur í stórum söfn- uðum á höfuðborgarsvæðinu í 17 ár. „Ég byijaði mjög ung og hef átt allan minn prestferil í borginni. Ég hef átt 14 yndisleg ár á Seltjamar- nesi en hafði alltaf ætlað mér að fara einhvemtíma út á land. Þegar svona stórkostlegur staður eins og Möðruvellir losn- aði fannst mér tilvalið að sækja þar um, enda býður staðurinn upp á mörg tæki- færi til að vinna að hugðarefnum mínum. En fyrst um sinn mun mestur tími minn fara í að kynnast nýj- um sóknarbörnum og ég mun leggja mig fram við að kynnast öllu fólkinu. Þegar maður vinnur fyrir stóra söfnuði nær maður aldrei að halda utan um alla, en þama sé ég tæki- færi til að kynnast fólkinu vel, ekki bara á hátíðarstundum og sorgar- stundum heldur líka í hversdagslíf- inu,“ segir Solveig Lára. Solveig Lára Guðmundsdóttir Launa- munur andstæð- ur lögurn HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt, að sá munur, sem var á launum og öðrum starfskjöram jafn- réttis- og fræðslufulltrúa og at- vinnumálafulltrúa Akureyrar- bæjar hafi brotið gegn lögum nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Rétturinn tekur því undir sjón- armið Ragnhildar Vigfúsdótt- ur, fyrrverandi jafnréttisfull- trúa bæjarins, sem vildi að sér yrði bættur sá munur sem var á launakjörum hennar og at- vinnumálafulltrúans. Hins veg- ar telur rétturinn ekki efni til að dæma henni miskabætur að auki. Kærunefnd jafnréttismála höfðaði málið fyrir hönd Ragn- hildar, eftir að bæjarráð Akur- eyrar hafnaði að verða við kröf- um hennar um leiðréttingu kjara. Hæstiréttur segir, að kærunefndin hafi leitt veruleg- ar líkur að því, að störf jafnrétt- is- og fræðslufulltrúa annars vegar og atvinnumálafulltrúa hins vegar hafi verið svo sam- bærileg að inntaki og ytri bún- aði, að Ragnhildi Vigfúsdóttur hafi verið mismunað í kjörum hjá áfrýjanda. Akureyrarbær hafi ekki fært sannfærandi rök að því, að eðlileg markaðssjón- armið hafi átt að leiða til svo mismunandi kjara, þegar litið væri til stöðu þessara starfa í stjórnkerfi bæjarins. „Eins og mál þetta liggur íyrir dómstólum verður ekki talið, að áfrýjanda [Akureyrar- bæ] hafi tekist að sanna, að hlutlægar og málefnalegar ástæður hafi í hvívetna ráðið kjaramuninum," segir Hæsti- réttur. V élbátaábyrgðar- félag ísfírðinffa Arsreikn- ing’ur til frekari skoðunar STJÓRN Vélbátaábyrgðarfélags ís- firðinga hefur óskað eftir að Fjár- málaeftirlitið skoði reikning félags- ins fyrir árið 1999 vegna grans um að hann sé ekki réttur. Aðalfundi fé- lagsins, sem vera átti á þriðjudag, var frestað um óákveðinn tíma með- an Fjármálaeftirlitið og endurskoð- andi félagsins eru að fara yfir málið. Einar Oddur Kristjánsson, stjórn- arformaður Vélbátaábyrgðarfélags ísfirðinga, sagði að málið varðaði ábyrgðir sem skrifað hefði verið upp á í nafni Vélbátaábyrgðarfélagsins. Hann sagði ekki ljóst um hve miklar upphæðir væri að ræða. Hann kvaðst hafa ástæðu til að óttast að ábyrgðirnar myndu falla á félagið. Einar Oddur sagði að aðalfundin- um hefði verið frestað vegna þess að upplýsingar hefðu legið fýrir um að reikningurinn, sem leggja átti fyrir fundinn, væri ekki réttur og ekki væri hægt að skrifa upp á hann. í framhaldi af því hefði Fjármálaeftir- litinu verið tilkynnt um þetta sem væri í samræmi við lög þegar mál af þessum toga kæmu upp. Hann kvaðst vona að málið yrði til lykt leitt eins fljótt og hægt væri. Gunnar Páll Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Fjármálaeftirlitsins, vildi ekkert um málið segja þegar eftir því var leitað í gær.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.