Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 52
52 E SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Kjarvalsstaðir Bækur, kort, plaggöt, gjafavörur. Opiö daglega frá kl. 10-18. ARVISS viðburður hjá Bjarna Elvari Pjeturs- syni, tengdasyni Önn- ulóar, er að fara á hreindýraveiðar. Að sjálfsögðu er það svo hans verk að matreiða bráðina og það finnst Bjarna Elvari ekki síðri skemmtun. „Matreiðslan hjá mér er eiginlega eins og punkturinn yfir i-ið, segir hann. „Ég elda yfir- leitt alla mína bráð og býð síðan til veislu." Kristín Heimisdóttir, eiginkona Bjarna Elvars, segir hann vera af- bragðskokk, það verði ekki af hon- um skafið, en sér finnist óréttlátt að hann eldi yfirleitt sparimat á meðan hún sé í hversdagsmatn- um, t.d. fiskibollum, og fái ekkert hrós fyrir. „Ég elda eiginlega bara það sem mér finnst gott" viður- kennir Bjarni Elvar. „Til dæmis er ég með forréttadellu, kannski gæti ég þó soðið ýsu en varla meira en það.“ Bragðast betur en besta nautasteik „Hreindýrakjöt bragðast betur en mýksta og besta nautasteik og er með sterku villibráðarbragðið enda lifir dýrið aðallega á lyngi og grasi,“ segir Bjarni Elvar um leið og hann skellir steik á pönnuna. „Kjötið er yfirleitt mjög meyrt og galdurinn er fólginn í að steikja það ekki of lengi," upplýsir hann. Hreindýrasteikur eru yfirleitt borðaðar til hátíðabrigða en Bjarni Elvar segir marga góða rétti vera til úr hreindýrahakki sem borða má hversdags. Bjarni Elvar hefur einnig veitt hreindýr á Graenlandi og segir kjöt þaðan vera heldur grófara en það íslenska. í ár voru felld um 270 dýr hérlendis og fara þau að mestu til veitingahúsa að sögn Bjarna Elvars, en veiðitíma- bilið er frá 1. ágúst til 15. septem- ber. Með hreindýrauppskriftinni fylg- ir uppskrift að einum fiskrétti Bjarna Elvars sem hann eldar gjarnan á jólum. KitchenAid DÁLÍTIÐ sænskt, sýprus-tré f potti með rauðri slaufu, rauður daiahestur eða annað lítið jóla- skraut á munnþurrkuna og ofin diskamotta. GLANSANDI fóður er glæsilegur dúkur, jóla- slaufur í hlutverki servíettuhringja og einir og jólaengill setja hátíðlegan blæ á borðið. Morgunblaðið/Árni Sæberg VIÐ ELDHÚSBORÐIÐ föndra f.v. Sigríður og Annaló, húsbóndinn Heimir Sindrason, Heimir Bjarnason, Lárus Gísli Halldórsson og Gréta Rut Bjarnadóttir. er rnié Serviettuhringir aó hœtti Önnulóar HÚSMÓÐIRIN á Vesturströnd 20, Anna Lovísa Tryggvadóttir, er orð- lögð fyrir myndarskap en hún hefur það m.a. fyrir sið að föndra og búa til skreytingar fyrir jólin. „Kjallarinn hjá mér er yfirfullur af alls kyns jóla- skrauti, sem ég tek upp smátt og smátt alla jólaföstuna. Ég hef óskaplega gaman af því að föndra og á hverju ári prófa ég eitthvað nýtt, í ár eru það servíettuhringir, ódýrir og einfaldir, en ákaflega skemmtilegir." Líf og fjör var á heimilinu daginn sem blaðamann og Ijósmyndara Morgunblaðsins bar að garði, mæðgurnar Annaló, eins og hún er kölluð og dóttir hennar, Sigríður sátu við eldhúsborðið og veltu fyrir sér útfærslum á servíettuhringjum og nutu liðstyrks annarra úr fjöl- skyldunni, Bjarni Elvar Pjetursson tengdasonur var í eldhúsinu að matreiða hreindýrasteik en hundur- inn hans, Perla, var önnum kafinn í borðstofunni við að gæða sér á gómsætum rétti húsbóndans sem Ijósmyndari Morgunblaðsins var að undirbúa tökur á. Perla virtist vera sæmilega sátt við matinn því hún sleikti rækilega út um að málsverði loknum en kokkurinn var hins vegar ekki ýkja hrifinn af góðri matarlyst hundsins. Sigríður er iðnhönnuður og hægri hönd móður sinnar í skreyt- ingum og föndri. „Mamma er mesta jólabarnið í fjölskyldunni en henni tekst alltaf að smita okkur hin með gleði sinni,“ segir Sigríð- ur. Annaló segist ekki getað lifað án jólanna. „Þau kalla á líflega liti og fallega hluti. Á tímabili málaði ég mikið á postulín, þá helst jóla- munstur ýmiss konar, m.a. krúsir og kakókönnu, og í desembermán- uði borðum við alltaf af diskum með jólamunstri sem ég málaði sjálf. Fyrir fimmtán árum byrjaði ég að föndra með trölladeig en er nú að mestu hætt því. Auk þess hef ég gaman af alls kyns saumaskap og bý til jólasveina af öllum stærðum og gerðum, diskamottur, og ýmis- legt fleira nytsamlegt.'1 Gerð servíettuhringja Að mati Önnulóar fer of mikill tími hjá fólki í verslunarferðir fyrir jólin í stað þess að undirbúa hátíðina í rólegheitum með t.d föndri. „Slíkt er skapandi, sam- einar fjölskylduna og skilur eft- ir skemmtilegar minningar. í raun geta allir föndrað og það þarf alls ekki að vera flókið. Serví- ettuhringirnir eru glöggt dæmi um það.“ Við gerð servíettuhringjanna notar Annaló hugmyndaflugið. „Hægt er til dæmis að kaupa marg- lita glersteina í föndurbúðum sem síðan má brjóta niður í smærri ein- ingar og líma á málmhring með plötu. Málmhringinn er hægt að úða gylltan eða silfurlitaðan eftir smekk," segir hún. Aðra ódýra leið segir Annaló vera að nota snúrur og bönd sem Morgunblaðið/Golli fást í metravís í efnabúðum til að vefja utan unn t.d. skorna eldhús- pappírrúllu. „Á milli er gott að þétta með bómull eða eldhús pappír," segir hún. „Stundum er óþarfi að nota undirlag ef snúran er nóg þétt og stíf til að mynda hring," baetir hún við. í föndurbúðum fást einnig alls konar hringir, t.d hringir úr viði sem setja má efni á. Góð lausn og ekki síður falleg er einfaldlega að binda slaufu úr fallegum borða og setja á servíettu." I I Draumavél heimilanna! 5 gerðir Margir litir Fæst um land allt. 50 ára frábær reynsla. Morgunblaðið/Golli BER, t.d. vibunum eða jafnvel reyniber fest á vír og vafið utan um munnþurrkurnar. Gæta verður þess að vírinn sé húðaður eða úr kop- ar, svo hann smiti ekki. Myrta og mandarína eru festar á vír og lagðar á borðið og skeiðin í súpuskálina, sem sést í bakgrunni, er skreytt með beri, sem fest er með vír á. EINFALDLEIKINN í fyrirrúmi. Jólagrautur og kanill í tini og tré og ofinn jóladúkur til skrauts Morgunblaðið/Áslaug BERGFLÉTTA er fallegur servíettuhringur. JOLABORDIÐ Einar Farestveit&Co.hf. Borgartúni 28 « 562 2901 og 562 2900 GYLLT borð hæfir vel á hátíðastundum. Greinar, kerti og efnisstrangi gyllt og þurrkað- ar eplasneiðar setja punktinn yfir i-ið. JÓLABORÐIÐ getur verið með ýmsu móti, allt eftir efnum og ástæðum. Fengnar voru nokkrar góðar konur, kunnar að smekkvisi, til að leggja á jólaborð og gefa hugmynd um hvað er hægt að gera. Þær heita Erla Dögg Ingjaldsdóttir, Auður Stefánsdóttir, og Kolbrún Finnsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.