Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 10
10 E SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ HBM8MMWMWWWWWI Marsipanmolar 150-200 g þurrkaðar apríkósur 50 g þurrkaðar grófíkjur 1 dl koníak hrómarsipan 100-200 g dökkt súkkulaði Apríkósur og gráfíkjur brytjað smátt og látið liggja í sólarhring í koníaki. Hrámarsipan flatt út, ávextirnir settir á miðjuna og rúllað upp. Skorið í litla bita og hjúpað með súkkulaði sem hefur verið brætt í vatnsbaði. Coulibiac Gott er að gera blaðdeig að morgni dagsins sem rétturinn er gerður, jafnvel daginn áður. Einnig er hægt að kaupa blaðdeig tilbúið í bakaríum. Blaðdeig ___________225 g hveiti__________ ____________örlítið solt_________ 225 g smjör _________ ___________1 20 ml ísvatn________ _________1 tsk sítrónusafi_______. 1 hrært egg ■ mm - ""rrn mmm Appelsinukonfekt börkur af einni appelsínu _____2 plötur suðusúkkulaði_ 1 msk kókosmjöl 1 msk cointreau-líkjör 75 g smjör Súkkulaðið brætt í vatnsbaði og út í það bætt appelsínuberki, kók- 1. Sigtið hveitið og saltið saman í stóra skál. 2. Myljið fjórðunginn af smjörinu í hveitið með gaffli. 3. Búið til holu í blönduna, hellið vatni og sítrónusafa í holuna. Hnoðið í kúlu. Mikilvægt er að hnoða sem minnst og halda deig- inu sem köldustu. Gott er að nota gaffalinn til að hræra deigið saman þannig að það hitni sem minnst. Sláið deigið til_og skerið í það Fyrirhafnarini „ÞAÐ skiptir ekki máli hvaða matur er á jólunum, svo fremi sem hann er góður,“ segir Þorri Hrings- son myndlistarmað- ur, kennari og mat- gæðingur en hann, kona hans, Sigrún Halldórsdóttir kenn- ari, og tengdafjöl- skylda borða vegleg- an grænmetisrétt á jólunum. Ekki er minna haft fyrir þess- um rétti en stórsteik- um, því Þorri og svili hans, sem sjá um eldamennskuna á aðfangadag, hefjast handa í býtið um morguninn og eru að fram eftir degi. Þorri segir stemmninguna við matargerðina ekki minni en þegar kjöt sé á borðum, vegna þess hversu mikið sé fyrir honum haft enda sé rétturinn að- eins útbúinn á jólum. Ástæðan fyrir því að grænmet- isrétturinn er á borðum Þorra, Sigrúnar og fjöl- skyldu hennar er Ekki fó allir kjöt á sinn disk á jól- unum. Þorri Hringsson og Sigrún Halldórs- dóttir eru ein þeirra sem gæóa sér á grænmetis- rétti á aófanga- dagskvöld en slik matseld sómir sér vel á jólaboróinu sú að systir henn- ar, Kolbrún, eiginmaðurinn Ágúst, Orri Huginn og Alma Ágústarbörn, borða ekki kjöt. Fyrstu árin var bæði borið fram grænmetisréttur og hamborgarhryggur en nú er svo komið að íburðarmikil coulibiac hefur skákað hryggnum út af borð- inu. „Ég held að við séum öll full- sátt við þessa tilhögun, nema helst tengdapabbi en hann er löngu búinn að gefast upp á því að hafa vit fyrir börnunum sínum,“ segir Þorri. Coulibiac er upphaflega rúss- neskur réttur, sem barst til Frakk- lands á síðustu öld en mikil della fyrir öllu því sem rússneskt var gekk yfir Evrópu undir aldamótin síðustu, að sögn Þorra. Átti það ekki síst við matinn en nokkrir rússneskir matreiðslumenn héldu til Vestur-Evrópu til að kynna mönnum það besta í rússneskri matargerðarlist. Coulibiac er matarmikill réttur, sem bakaður er í deigi. Upprunaleg útgáfa er með laxi, grænmeti og hrís- grjónum en keis- araleg útgáfa var með styrjumerg að auki. Enginn fiskur er í jólarétti ís- lensku fjölskyldn- anna og Þorri seg- ir raunar að við lestur uppskriftar- innar hvarfli vart að manni að eitt- hvað sé varið í hann. Rétturinn er hins vegar ótrú- lega bragðgóður og seðjandi. Eins og áður segirfer mikilltími matargerðina og tímafrekast er að gera blaðdeigið. í því er 81 lag af deigi með smjöri á milli og þrátt fyrir að mikið sé á sig lagt til að það heppnist sem best, tekst það ekki alltaf. Þeir sem latari eru eða hafa lítinn tíma, geta svindlað og notað tilbúið smjördeig. Rétturinn er borinn fram með villisveppasósu en sveppina tína Þorri og Sigrún. „í villisveppasós- una höfum við kóngssveppi, kantarellur og gulbrodda (kindafót upp á frönsku) sem er einn van- metnasti sveppur á íslandi. Af honum er sterkt og fínt skógar- bragð en svo virðist sem sárafáir hafi áttað sig á því,“ segir Þorri. Undanfarin jól hefur fjölskyldan borðað fyllta sveppi. „Þeir eru ein- faldir, léttir og mjög bragðgóðir og því tilvaldir til að búa alla undir hinn viðamikla coulibiac-rétt.“ Nýjar jólahefðir í eftirrétt er borðaður heima- gerður ís og í honum er lítill syk- ur. „Við erum ekki mikið fyrir þess- FYLLTIR sveppir eru í forrétt á jólunum; „einfaldir, léttir og mjög bragðgóðir.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg SiGRÚN, Iða og Þorri. Það hefur komið til tals að gera piparkökuhús í ár, enda er Iða sólgin í þvílíkt góðgæti. ar sykursprengjur sem tíðkast að bera á borð þegar mikið stendur til. Sykur er þó alls engin bann- vara, ég nota sykur mikið við mat- argerð rétt eins og annað krydd,“ segir Þorri. Hann og svili hans sjá um eldamennskuna á sínum heimilum, Þorri segir eigin- konurnar ekki „Þessi grænmetisréttur er orðinn að okkar jólahefð. Maður verður að búa sér til hefðir, gera það að venju sem manni þykir gott en ekki ríghalda í það sem fyrir er.“ Jólaundirbúningurinn er hóf- stilltur á heimili Sigrúnar hafa sýnt mat- argerð neinn áhuga enda séu þær dætur mat- reiðslumanns og hafi ekki þurft að leggja sig eftir því að elda. Þorri er alinn upp við að borða villigæs á aðfangadagskvöld en segist ekki sakna þess, þar sem nægur tími gefist yfir jólin til að fullnægja allri sinni sérvisku í mat. HINN viðamikli coulibiac-réttur. Undirbúningurinn tekur heilan dag ef vel á að vera en margir munu sjálfsagt freistast til að stytta sér leið og spara sér þar með nokkurra klukkutíma vinnu. og Þorra, þau segjast njóta þess að gera góðan mat og bjóða heim gestum allt árið en einblína ekki á jólin. „Við reynum ekki að komast yfir ótalmargt á aðventu, heldur að gera fáeina hluti sem við höfum ánægju af,“ segir Sigrún. „Við höf- um ekki bakað smákökur en það hefur reyndar komið til tals að gera piparkökuhús í ár. Hins vegar finnst okkur gaman að gera kon- fekt, rétt eins og stórum hluta þjóðarinnar, ef marka má skoðana- kannanir sem gerðar hafa verið á jólasiðum íslendinga." osmjöli, líkjör og smjöri. Blöndunni hellt í álmót og látin kólna. Fylltir sveppir (lyrir fjóra) 1 meðalstór loukur_____ 1 msk smjör 8 stórir sveppir 50 g valhnetur (fíntsaxaðar) brytjaðar rúsínur lagðor 2 msk koníaki 50 g rjómaostur 50 g gróðaostur (helst 75% feitur) 1 egg hrært salt og pipar 50 g nýrifinn parmesanostur 1. Rúsínur brytjaðar og lagðar í bleyti í koníakið, a.m.k. hálfri klst. áður. 2. Stilkarnir eru teknir af sveppun- um og saxaðir smátt. Fanirnar á sveppunum eru skafnar varlega innanúr svepphattinum. 3. Laukurinn er mýktur í smjörinu á pönnu og þá er hnetunum, sveppastilkunum söxuðu og rúsín- unum bætt útí (geymið afganginn af koníakinu). Látið krauma í nokkr- ar mínútur. Kælt. 4. Gráðaosturinn er hrærður útí rjómaostinn og bætt útí lauk- hnetu-blönduna ásamt egginu og afgangnum af koníakinu. Saltið og piprið. 5. Fyllingin er sett í sveppahattana þar sem áður voru stilkar og fanir og yfir hana er stráð nýrifnum parmesanosti og örlítilli smjör- klípu. 6. Bakað í 200° heitum ofni í 15 mínútur. Gjafakortin á Hótel Sögu eru skemmtileg og óvenjuleg jólagjöf með ótal möguleikum. Hægt er að velja kvöldverð og/eða gistingu í eina til tvær nætur eða Rómantíska Sögu með kvöldverði fyrir tvo í Grillinu og gistingu ásamt morgunverði í svítunni. Einnig er í boði kvöldverður og skemmtun í Súlnasal. Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 552 9900. - þín saga! \ i ( C c « « C I I < \ í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.