Morgunblaðið - 10.12.1995, Síða 1
I
I
96 SÍÐUR B/C
283. TBL. 83. ÁRG.
SUNNUDAGUR 10. DESEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
IBÚAR Grosní draga kerru með vatnsbrúsum að húsi sínu í höfuðstað Tsjetsjníju. Ár er nú liðið frá því hernaðaraðgerðir
Rússa í héraðinu hófust og þúsundir Tsjetsjena, sem misstu heimili sín, búa enn í kjöllurum, loftvarnabyrgjum eða bráða-
birgðaskýlum þrátt fyrir loforð rússnesku stjórnarinnar um að borgin verði endurreist.
Rúslan Khasbúlatov hættir við framboð í Tsjetsjníju
Telur kosningar geta
leitt til blóðsúthellinga
3rosní. Reuter.
^ Flugbann á
Ólympíudúfur
DÚFUM verður ekki sleppt við setn-
ingu Ólympíuleikanna í Atlanta í júlí
á næsta ári eins og gert hefur verið
á öllum setningarathöfnunum frá ár-
inu 1920. Ástæðan er sú að bandarísk-
ir embættismenn hafa fallist á rök-
semdir dýravina um að dúfur séu ekki
náttfuglar og vilji helst vera í búrum
sínum þegar sólin sest. Hætta sé á að
dúfurnar villist í myrkrinu og þess
vejgna sé ekki réttlætanlegt að sleppa
þeim lausum eftir að rökkva tekur.
Athygli manna beindist að þessu
vandamáli á Ólympíuleikunum í Seoul
árið 1988 þegar nokkrar dúfur settust
á Ólympíukyndilinn og brunnu til ösku
fyrir augliti hundraða milljóna manna
út um allan heim.
Mikil leynd hvílir yfir áformum
skipulagsnefndarinnar um setning-
arathöfnina í Atlanta, en búist er við
að hún skipuleggi „táknrænt" dúfna-
atriði með flóknum tæknibrellum og
mikilli Ijósadýrð.
*
Artíðar Johns
Lennons minnst
15 ÁR eru liðin frá því bítillinn John
Lennon var myrtur við heimili sitt í
New York og áhangendur hans minnt-
ust ártíðarinnar með því að koma sam-
an við minnismerki um hann á Centr-
al Park á föstudagskvöld. Frímerki
voru einnig gefin út í átta löndum til
minningar um Lennon og ekkja hans,
Yoko Ono, sá um að velja myndirnar.
Hún lagði áherslu á að notuð yrði
sjálfsmynd eftir Lennon og fyrrver-
andi sovétlýðveldið Azerbajdzhan og
Afríkuríkið Malí urðu við þeirri ósk.
Önnur ríki sem gáfu út Lennon-frí-
merki voru Antigua/Barbuda, Nic-
aragua, Guyana, Maldíveyjar, Palau-
eyjar og Ghana. Þetta er í fyrsta skipti
sem svo mörg ríki gefa út slík minn-
ingarfrímerki á sama tíma.
Ohugur í Bret-
um vegna dráps
BRESKIR kennarar, sem hafa kvartað
yfir sívaxandi ofbeldi í breskum skól-
um, eru slegnir miklum óhug vegna
dráps á skólastjóra í fátækrahverfi í
miðborg Lundúna. Skólastjórinn lést i
gær af völdum stungusára sem hann
fékk á föstudag þegar hann reyndi að
bjarga nemanda sínum sem varð fyrir
árás nokkurra ungmenna. Samtök
kennara kröfðust þess að ráðnir yrðu
öryggisverðir í skóla í Lundúnum.
RÚSLAN Khasbúlatov, fyrrverandi forseti
rússneska þingsins, tilkynnti í gær, laugar-
dag, að hann hefði hætt við þátttöku í kosn-
ingunum í Tsjetsjníju 17. desember. Hann
sagði ástæðuna þá að kosningarnar gætu
leitt til frekari blóðsúthellinga í héraðinu.
Tsjetsjenar eiga að kjósa nýjan leiðtoga
héraðsins í stað Dzhokhars Dúdajevs sam-
hliða rússnesku þingkosningunum. Aðskiln-
aðarsinnar undir forystu Dúdajevs hafa hótað
að beita vopnavaldi til að hindra kosningamar.
„Með því að boða til þessara kosninga eru
stjórnvöld í Moskvu og yfirvöld í Grosní að
skapa skilyrði fyrir frekari átökum," sagði
Khasbúlatov á blaðamannafundi í höfuðstað
Tsjetsjníju. „Ég tek ekki þátt í þessum blóð-
ugu kosningum."
Khasbúlatov hafði skráð sig sem frambjóð-
anda í leiðtogakjörinu ásamt Doku Zavgajev,
sem rússneska stjórnin hefur skipað forsæt-
isráðherra Tsjetsjníju.
„Stjórnin í Moskvu er að reyna að styrkja
lagalega stöðu leppstjórnarinnar í Grosní,
sem mætir andstöðu meirihluta íbúanna,"
sagði Khasbúlatov. „Fari kosningarnar fram
skiptist Tsjetsjníja í tvö smálýðveldi."
Samningur við Rússa
Zavgajev og Viktor Tsjemomyrdín, for-
sætisráðherra Rússlands, undirrituðu á
föstudag samning sem skilgreinir „sérstaka
stöðu“ Tsjetsjníju innan rússneska sam-
bandsríkisins. Ólíklegt er að Dúdajev fallist
á samninginn þar sem hann kveður á um
að héraðið geti ekki orðið sjálfstætt ríki.
Rússneskir ráðamenn vona að samningur-
inn geti stuðlað að friðsamlegum kosningum
í Tsjetsjníju.
Ár er nú liðið frá því rússneskar hersveit-
ir réðust inn í Tsjetsjníju til að kveða niður
uppreisn aðskilnaðarsinnanna. Rússneska
stjórnin lofaði að útvega fjármagn til að
bæta Tsjetsjenum skaðann sem þeir urðu
fyrir í bardögunum, en í Grosní sjást fá
merki um að borgin verði endurreist.
Eyðileggingin í Grosní er gífurleg, einkum
í miðborginni þar sém stór svæði eru rústir
einar.
„Við köllum þetta heimili," sagði tsjetsj-
ensk kona, Tamara Huseinova, sem býr ásamt
eiginmanni sínum og fjórum bömum í skítugu
loftvamabyrgi sem reist var til að vernda
sovéska borgara ef til kjamorkustríðs kæmi.
„Við höfum verið hér síðan loftárásirnar hóf-
ust og guð einn veit hversu lengi við þurfum
að vera héma. Við getum lifað svona í þús-
und ár án þess að láta Rússa buga okkur.“
Átökin í
verkalýðs-
hreyfingunni
JABLOKO VON
UMBÓTASINNA
VIÐSKIPnAIVINNULÍF
Á SUIMNUDEGI
Tæknin vinnur
fyrir okkur
AF
SILFRI
OG m
BLOÐI
í BÓLIVÍU