Morgunblaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 12
12 B ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BÆJAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSIMINGAR 1994
Ingíbjörg Sólrún Gísladóttir nýkjörinn borgarstjóri
Breytingar á
kerfinu koma
fljótt í Ijós
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir tilvonandi borgarstjóri Reykjavíkur
segir að borgarbúar muni vonandi fljótlega sjá breytingar á stjórn-
kerfi borgarinnar. Það verði gert opnara og betri upplýsingum kom-
ið á framfæri en hingað til. Híns vegar taki aðrar breytingar, sem
R-listinn ætlar að beita sér fyrir, sinn tíma, sérstaklega uppbygging
leikskóla og grunnskóla. .Ingibjörg Sólrún segir að í breytingum á
stjórnkerfinu þurfi ekki að felast mannabreytingar i embættis-
mannakerfi borgarinnar. „Við gerum okkur ekki fyrirfram hugmynd-
ir um breytingar þar. Við ætlumst til að starfsmenn borgarinnar
vinni fyrir lýðræðislega kjörinn meirihluta af heiðarleik og trú-
mennsku. Við höfum enga ástæðu til að ætla annað en þeir g^ri
það en ef ekki, þá verður að taka á því,“ sagði Ingibjörg Sólrún.
Feðgin fagna
GÍSLI Gíslason samfagnar dóttur sinni, Ingibjörgu Sólrúnu verðandi borgarsfjóra.
R-listinn fékk 53% atkvæða í
borgarstjórnarkosningunum og 8
*Hbrgarfulltrúa en D-listinn 47% og
7 fulltrúa. „Ég bjóst alltaf við því
að mjótt yrði á mununum. En ég
er í sjálfu sér ánægð með úrslitin
og þau eru mjög skýr; það hefði
verið erfiðara ef þetta hefði verið
mjög' tæpt,“ sagði Ingibjörg Sól-
rún.
Hún sagðist telja að kjósendur
hefðu verið að gera upp við borgar-
stjórnina í kosningunum, lands-
málin hefðu spilað mjög óverulega
jnn í úrslitin. „Og ég held að það
'ké verið að gera upp við mun lengra
tímabil en síðustu fjögur ár. Það
eru ýmsir fortíðardraugar sem
hafa orðið fólki skýrir í þessum
kosningum. Ég er þarna ekki síst
að vísa til framkvæmda sem tóku
til sín geysilega mikið fé, eins og
Ráðhús og Perla, og fjármála-
stjórnina að ýmsu leyti. Fólk gerði
sér betur grein fyrir því í þessum
kosningum en áður hvaða upphæð-
ir þarna var um að ræða,“ sagði
Ingibjörg Sólrún.
Hún tók undir að stefnumál
framboðslistanna, eins og þau
hefðu birst í kosningabaráttunni,
hefðu ekki verið svo ólík. „En fólk
hlýtur að horfa til þess sem menn
hafa gert, eða haft möguleika á
að gera á undanförnum árum, og
fer þá að setja á vogarskálarnar
annars vegar þau mál sem voru
sett á oddinn í þessari kosninga-
baráttu og hins vegar framkvæmd-
ir eins og Ráðhús og Perlu sem
hafa gleypt mikið framkvæmdafé."
Gott samstarf
Fjórir flokkar standa að R-
listanum og af hálfu Sjálfstæðis-
flokksins hafa komið fram miklar
efasemdir um að þetta samstarf
geti gengið við stjórn borgarinnar
þar sem stefnumál flokkanna séu
mjög mismunandi. Um þetta sagði
Ingibjörg Sólrún að hún væri mjög
bjartsýn á að samstarfið gæti
gengið og hún tryði því að fólkið
sem stæði að R-listanum væri stað-
ráðið í að vinna saman. „Ef menn
hefðu viljað elta uppi allan ágrein-
ing hefði það verið mjög auðvelt í
kosningabaráttunni en það var
ekki gert. Það er mjög mikið í
húfi og væntingarnar eru miklar
hjá fólki. Og þeir sem ætluðu að
' fara að hlaupa útundan sér í þessu
samstarfi ættu varla bjarta póli-
tíska framtíð framundan,“ sagði
Ingibjörg Sólrún.
Um það hvort samvinna flokk-
anna um R-listann geti verið vísir
að samstarfi þeirra á landsvísu
sagði Ingibjörg Sólrún að fara yrði
varlega í slíkar ályktanir því
markalínurnar væru allt aðrar í
landsmálapólitíkinni en sveitar-
stjórnapólitíkinni. „Þar eru þessir
stóru málaflokkar eins og sjávarút-
vegs-, landbúnaðar-, efnahags- og
utanríkismál en í sveitarstjórnun-
um er unnið innan ramma sem
hefur verið_ markaður af lands-
stjórninni. Ég held því að það sé
ekki hægt að bera þetta tvennt
saman. En þetta samstarf í
Reykjavíkurlistanum gæti haft
talsverð áhrif á fólk í þessum flokk-
um og eytt tortryggni sem verið
hefur á milli manna. Sannarlega
vona ég að þetta geti haft almenn
áhrif í pólitíkinni því mér finnst
hún og íslenska flokkakerfið komið
nokkuð á skjön við veruleika fólks-
ins.“
Ingibjörg Sólrún sagðist aðspurð
telja að það hefði góð áhrif á
Kvennalistann að hún tekur nú við
embætti borgarstjóra. Hún sagði
Kvennalistann hafa setið ómaklega
undir því ámæli að vilja ekki fara
inn í stjórnkerfið. Nú væri búið að
sýna fram á að það væri ekki rétt.
Árni Sigfússon fráfarandi borgarstjóri
Munum áfram
vinna vel fyrir
Reykjavík
ÁRNI Sigfússon fráfarandi borgarstjóri segir að líklegustu skýring-
ar á tapi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum séu
þeir erfiðleikar sem þjóðfélagið hefur gengið í gegnum og þetta
hafi verið fyrstu kosningarnar þar sem kjósendur fengu að skamm-
ast í kjörklefunun. Hann segir að ef flokkurinn beri gæfu til að
halda sig við hina einu réttu sjálfstæðisstefnu sé hann sannfærður
um að þessi stærsti flokkur þjóðarinnar eigi eftir að verða enn stærri.
„Mér er efst í huga þakklæti til
þeirra fjölmörgu stuðningsmanna
"Ö-listans sem lögðu sig alla fram
í mikilli baráttu,“ sagði Árni Sig-
fússon við Morgunblaðið í gær.
„Það var ljóst að það yrði á bratt-
ann að sækja og við náðum veru-
lega að saxa á forskotið sem R-list-
inn hafði frá upphafi kosningabar-
áttunnar, en við náðum ekki að
vinna það upp og það er mjög
miður.
Við sjálfstæðismenn höfum unn-
ið vel í borginni og lagt fram
áætlanir til framtíðar. Ef R-listan-
um tekst að vinna með þær áætlan-
!i'r kvíði ég ekki framhaldinu fyrir
hönd Reykvíkinga en ég hef auð-
vitað áhyggjur af því að þessir íjór-
ir flokkar fari að breyta út af og
koma á framfæri sínum stefnumál-
um sem eru ólík og sundurleit, og
það muni kalla yfir borgina mikla
erfiðleika.“
Sjálfstæðisstefnan
Árni sagði aðspurður að ef
ástæðurnar fyrir tapi Sjálfstæðis-
flokksins væru ljósar þá væri hann
sannfærður um að tekist hefði að
vinna flokkinn út úr vandanum.
„En í mínum huga eru líklegustu
skýringarnar þeir erfiðleikar sem
þjóðfélagið hefur gengið í gegnum.
Aflabrestur, atvinnuleysi, harðn-
andi alþjóðleg samkeppni sem hef-
ur kallað drunga yfir landsmenn
og borgarbúa. Þetta eru fyrstu
kosningarnar þar sem menn fá
tækifæri til að skammast í kjör-
kiefunun.
Auðvitað verðum við sjálf-
stæðismenn svo að skoða okkar
verk og sjá hvar okkur hefur mis-
tekist að upplýsa og gera rétt. Ég
er þó ekki að mæla með einhvers-
konar naflaskoðun; Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur oft farið í gegnum
slíkt og lítið komið út úr því. En
ef flokkurinn ber gæfu til að halda
sig við hina einu réttu sjálfstæðis-
stefnu, þar sem stétt starfar með
stétt og þar sem menn vinna á
grundvelli einstaklingsfrelsisins en
hafa í huga mannúð og mildi, er
ég sannfærður um að þessi stærsti
Úrslitin rædd
ÁRNI Sigfússon fráfarandi borgarstjóri ræðir málin við samherja eftir að úrslitin í Reykjavík voru ljós.
flokkur þjóðarinnar á eftir að verða
enn stærri.“
— Hefur flokkurinn þá að þínu
mati gleymt þessum hugtökum upp
á síðkastið?
„Hann hefur ekki gleymt þeim
en ég tel að við þurfum að stunda
oftar þessa endurskoðun okkar svo
við séum trú þeim gildum sem þar
eru.“
Hert á áherslum
Því hefur verið haldið fram að
Árni hafi í kosningabaráttunni
fært borgarstjórnarflokk Sjálf-
stæðisflokksins inn á miðjuna með
því að leggja aðrar áherslur en
flokkurinn hafi gert áður. Um
þetta sagði Árni, að hann hefði
ekki viljað orða það svo. „Ég hef
fundið fyrir þessum sterku línum
sjálfstæðisstefnunnar í flokknum
og borgarstjórnarflokknum síðustu
átta ár. Það sýnir sig best á þeim
tölum um fé sem lagt hefur verið
til margvíslegra mála eins og
skólamála, dagvistarmála og um-
hverfismála. Þar hefur verulega
verið tekið á um leið og atvinnu-
málin hafa haft forgang. Það hefur
í sjálfu sér ekki breyst. En eðlilega
hef ég hert á þessum áherslum þar
sem þær eiga betur við mig.“
Árni sagði það mjög miður ef
flokksforingjar vinstri flokkanna
teldu sig nú hafa unnið sigur í
Reykjavík. „Borgin og þjóðin hafa
þörf fyrir atvinnustefnu sem bygg-
ist á sjálfstæðisstefnunni, sem þýð-
ir að það þarf að að tryggja undir-
stöðurnar og skapa starfsumhverfi
fyrir fyrirtæki sem gerir þeim sjálf-
um kleift að starfa þannig að frelsi
manna njóti sín. Það gerist ekki
með hefðbundnum aðferðum fé-
lagshyggjunnar. Hins vegar er fjöl-
skyldustefna og félagshyggja ekki
það sama.“